17.03.1950
Neðri deild: 68. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (769)
125. mál, gengisskráning o.fl.
Frsm. 1. minni hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég veit ekki, hvaðan þessum ræðumanni kemur vald til að tala af slíkum þjósti í þessari d. í nafni verkalýðsstéttarinnar. Hefur hans flokkur þá sögu að baki sér sem umboðsflokkur verkalýðsstéttarinnar, að hann hafi nokkra ástæðu til að tala með slíkum þjósti? Við höfum séð, hvernig verkalýðurinn hefur markað afstöðu til hv. 8. landsk. og flokks hans. Það hefur verið gert á þann veg, að engin ástæða er til fyrir þennan hv. þm. að belgja sig svo út sem hann hefur gert. Strax við 1. umr. fannst honum ástæða til að vera með aðvaranir, og ekki dró úr því nú hjá honum.
Það gengur sú saga um bæinn, að Alþfl. hafi ákveðið að draga sig út úr pólitík. Þetta er sagt í gamni, en ekki alvöru, en það er augljóslega orðinn mikill munur frá því, þegar Alþfl. var ábyrgur, og á því, sem nú er.
Hann segir, að fjöllin tóku jóðsótt, og fæddist lítil mús. Það hefur fæðzt lítil mús í bægslagangi Alþfl. á sínum tíma, af því að hv. þm. fannst sinn flokkur koma sem lítil mús út úr síðustu kosningum.
Ég segi þetta ekki sízt vegna orða hv. þm. um þær till., sem hér liggja fyrir um skiptingu á framlagi til byggingarframkvæmda. Í gærkvöld fannst honum mikils vert um byggingar í bæjunum annars vegar og hins vegar í sveitunum. Það getur vel verið, að svo sé. Hér er engin skipting eftir höfðatölu. En það er ekki eingöngu hagsmunamál kaupstaðarbúa, að þeir hafi fé til að byggja yfir sig. Það er einnig hagsmunamál þeirra, að hægt sé að byggja í sveitunum og stemma þar með stigu fyrir fólksstraumnum til kaupstaðanna. Af þeim sökum er það, að ekki er höfðatalan ein lögð til grundvalla við skiptingu þessa fjár til bygginga.
En vel á minnzt, þegar hv. 8. landsk. er að fjargviðrast yfir því nú, að illa sé farið með kaupstaðina og þeir séu afskiptir, þegar þessu fé er skipt, þá dettur mér í hug, að öðruvísi stæðu bæjarfélögin að vígi nú, ef ekki hefði skipazt þannig undir forsæti þessa hv. þm., að ástæða þótti til að fresta framkvæmd 3. kafla l. frá 1946, um útrýmingu heilsuspillandi íbúða. Ég veit, að það kunna að hafa rekið nauður til að fresta þessari framkvæmd. Þetta sá hv. 8. landsk., þegar hann var ábyrgur í ríkisstj., en hann sér það ekki nú, því að nú er hann kominn með kommúnistum í stjórnarandstöðu. Þá rís hann upp á afturfæturna yfir því, að ekki fáist nóg fé til að byggja í bæjunum. Vilji hann leggja fram till. og vinna aðra til fylgis, að tekinn verði aftur til framkvæmda 3. kafli l. um heilsuspillandi íbúðir frá 1946, sem hann beitti sér fyrir á sínum tíma, þá er ekki víst, að það standi á mér.
Hann sagði, að það væri sízt til bóta sú breyt. að skipta fénu milli byggingarsjóða í bæjarfélögunum og sveitarstjórna, sem vilja leggja í byggingar. Ég veit ekki, hversu mikið þessi staðhæfing styðst við raunhæfan kunnugleik. Ef við lítum á Reykjavík, þá held ég, að byggingarfélag verkamanna hafi smíðað 30 íbúðir, en bæjarfélagið 200, og er þó sízt til bóta að dómi hans, að 1/3 sé ákveðinn til bæjarfélaganna, en ekki allt til byggingarsjóða verkamanna.
Hann segir, að það sé ástæðulaust að fenginni reynslu að veita fé í þessar byggingarframkvæmdir bæjanna. Ég þykist vita, að hann eigi hér við ákveðna staðreynd úr Reykjavík, Skúlagötuhúsin, sem þóttu ef til vill nokkuð dýr, þó að þau standist samanburð við verkamannabústaðina um gæði og verðlag, ef hvort tveggja er tekið saman. Ég vil halda fram, að gefnu tilefni, að byggingarframkvæmdir hjá byggingarfélagi verkamanna séu að engu, leyti fremri hvað gæði og verð snertir, en byggingarframkvæmdir á vegum Reykjavíkurbæjar, t.d. byggingarnar við Bústaðaveg, sem hefur sýnt sig, að bæjarbúar hafa mikinn áhuga fyrir, og ég vil staðhæfa, að þær þola allan samanburð hvað gæði og verðlag snertir við þær íbúðir, sem byggðar eru af Byggingarfélagi verkamanna, án þess að ég vilji, nema síður sé, draga úr, hversu mjög hagnýtt og þjóðhollt starf það félag hefur unnið fyrir Reykjavík, enda hefur áhrifamiklum og þjóðhollum stjórnmálamönnum verið sýnd sérstök heiðursviðurkenning af þessu félagi, hv. 8. landsk. og tveim af forvígismönnum Reykjavíkurbæjar á þessu sviði og öðrum, þeim Bjarna Benediktssyni og Jakob Möller, sem fyrr og síðar hafa verið miklir áhuga- og styrktarmenn þessara framkvæmda. En ég vil ekki heldur láta undir höfuð leggjast að mótmæla því, að ástæðulaust sé, að fenginni reynslu, að veita fé til byggingarframkvæmda bæjarins.
Ég vil að lokum láta það koma fram, bæði í sambandi við þessar till. og margar aðrar, og ég veit, að hv. þm. skilja það, að þegar tveir flokkar eiga hlut að máli, þá verða menn að semja um sjónarmiðin. Ég er þeirrar skoðunar, að miklu ríflegri hluta hefði átt að ætla til byggingarframkvæmda eftir 3. kafla l. nr. 44 frá 1946 en hér er gert, en þar verður að halda sig við það, sem samkomulag næst um. Þetta veit ég að hv. 8. landsk. skilur og aðrir þeir, sem ekki skortir leikni hinna æfðu stjórnmálamanna.