17.03.1950
Efri deild: 75. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (782)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Hæstv. atvmrh. sagði í frumræðu sinni, að lítið þýddi að ræða hið liðna, því að allir hefðum við gert mistök, og þýddi ekki að sakast um slíkt, hitt væru allir sammála um, að nú væri allt komið í óefni.

Þessi yfirlýsing ein út af fyrir sig, að allt sé komið í fullt óefni, er harla athyglisverð.

Enginn neitar því, að undanfarin ár, allt til tveggja eða þriggja hinna síðustu, hafa verið fjárhagslega óvenjulega hagstæð fyrir okkur. Þjóðartekjurnar hafa aukizt gífurlega, svo að við söfnuðum árlega innstæðum erlendis og áttum um eitt skeið allt að 600 millj. kr. innstæður erlendis. Það eru nú rúmlega 10 ár siðan gengi íslenzku krónunnar var síðast breytt. Í heild sinni hefur þetta tímabil verið okkur mjög hagstætt, en samt er nú svo komið, samkvæmt því sem hæstv. atvmrh. sagði, að eina leiðin út úr ógöngunum er að fella gengið og það ekki um neitt smáræði, heldur um 42–43%. Ég held því, að það sé fullkomlega athugavert, hvort ekki sé ástæða til að gera aðrar og meira róttækar breytingar á þjóðarbúskap okkar, en endurtaka gengislækkunina frá 1939 og nú í enn stærri stíl, en þá var.

Hæstv. atvmrh. sagði, að það þýddi ekki að deila nú um, hverjir ættu sök á ástandinu. Ég skal taka undir það, að það er þýðingarlítið að hafa mörg orð um það. En ég vil þó benda á, að Alþfl. hefur sérstöðu í þessum efnum allt þetta tímabil, og hefði ráðum hans verið fylgt, þá væri nú ekki komið í slíkt óefni í þessum málum og raun ber vitni. Og ef von á að vera um, að vel fari, þá verður að fara þær leiðir, sem Alþfl. hefur bent á. Veröldin er nú svo breytt, að það er hreinn barnaskapur að halda, að hægt sé með einu frv. að færa allt í sama horfið og var fyrir styrjöldina.

Ég vil nú rifja upp stefnu og tillögur Alþfl. á þessu tímabili.

Strax haustið 1940, þegar ljóst var, að verð á ísfiski mundi hækka í Bretlandi, og verð á landbúnaðarvörum var hækkandi hér heima, lagði Alþfl. til, að skattur yrði lagður á útfluttan ísfisk til að greiða niður farmgjöld og landbúnaðarvörur, en þetta fékk engar undirtektir.

1941 og 1942 flutti Alþfl. ýtarlegt frv. um ráðstafanir gegn dýrtíðinni, og var í því lagt til, að allt verðlagseftirlit væri á einum stað og næði til allrar vöru, bæði innlendrar og erlendrar, og álagning skyldi ekki vera miðuð við hundraðshluta verðsins, heldur einingu. Farmgjöld skyldu lækka, og tollar á nauðsynjavörum skyldu afnumdir, en söluskattur lagður á vörur, sem seldar væru til útlanda með stríðsgróða. Stofnaður skyldi sjóður, dýrtíðarsjóður, til að halda niðri verði innanlands. Ríkisstj. skyldi fá ótakmarkað leyfi til að kaupa birgðir af erlendum nauðsynjavörum, svo að ekki yrði skortur á þeim í landinu, og til að minnka dreifingarkostnað á vörum, sem til landsins væru fluttar. Ég er sannfærður um, að ef þetta hefði verið gert, væri ástandið allt annað og betra, en nú er.

Sama ár, 1942, flutti Alþfl. einnig frv. um, að gengi krónunnar yrði hækkað, þannig að eitt sterlingspund jafngilti 22,50 kr. Slíkt hefði þá verið leikur einn. Og slík ráðstöfun hefði orðið til þess að hamla mjög á móti verðhækkun á þeim tíma og draga úr dýrtíð og verðbólgu síðar. Traust manna á gildi peninga hefði þá aukizt og minna hefði verið eytt í óþarfa, og gildi peninganna hefði vaxið í stað þess að minnka.

Fram að þessum tíma hafði kaup lítið hækkað, samanborið við innlendar afurðir, þannig að 1. okt. 1941 hafði kaup hækkað um rúmlega 60%, en innlend matvara hafði á sama tíma hækkað um ca. 125%, eða tvöfalt það, sem kaup hafði hækkað. Þannig var ástandið, þegar við lögðum fram dýrtíðartillögur okkar. En tillögur okkar voru að engu hafðar. Og um áramótin 1941 og 1942 komu Sjálfstfl. og Framsfl. sér saman um að setja gerðardómslögin, sem bönnuðu allar kauphækkanir með lögum, á sama tíma sem þjóðartekjurnar höfðu aukizt meira, en dæmi voru til áður, en hlutur verkamanna í þeim hafði að sama skapi minnkað með ári hverju. En það reyndist að vonum ekki hægt að framkvæma lögin, og flokkarnir, sem að þeim stóðu, fóru í hár saman strax á eftir og skildu með heitingum, sem enn eru í minnum hafðar, og hefur eimt eftir af þessum viðskilnaði og torveldað samvinnu milli flokkanna allt til þessa dags. Afleiðingarnar voru svo þær, að alþýðusamtökin hófu sókn til að hrinda gerðardómslögunum og fá kauphækkanir með skæruhernaði. Og haustið 1942 varð svo hækkun á landbúnaðarvörum, Ingólfsstyttan svokallaða, sem var svo gegndarlaus, að jafnvel þeim, sem að hækkuninni stóðu, hnykkti við, en þetta leiddi svo aftur til hærra kaups, og þar með var skrúfan komin af stað.

Alþfl. varaði við þessu og sagði, að þetta stefndi að því að gera þá fátæku fátækari og þá ríku ríkari. Fasteignir söfnuðust saman hjá auðmönnunum, en sparifé og laun urðu verðminni með hverjum deginum sem leið.

Eftir að till. Alþfl. voru að engu hafðar, þá þótti mér sýnt, að hverju stefndi, eins og nú er komið á daginn. 1943 flutti Alþfl. frv. um uppbætur á sparifé og miðlunarsjóð húsaleigu, en þessu var heldur ekki sinnt, húsaleigan hækkaði óðfluga. Ekkert var gert í þessum efnum. Enginn skyldusparnaður og ekkert gert til að jafna húsaleiguna, svo að hún varð mjög mismunandi eftir því, hvort menn bjuggu í nýjum húsum eða gömlum. Húsaleigan í nýju húsunum óx með hverjum mánuðinum sem leið og um leið mismunurinn á kjörum manna.

Þegar sýnt þótti, að allar leiðir til að stöðva dýrtíðina væru lokaðar, þá átti verkalýðurinn ekki annars kost en reyna að hækka tekjur sínar svo sem unnt var, enda er sagt í áliti hagfræðinganna, að allt fram á s.l. vor hafi kauphækkanir almennings í landinu verið afleiðing dýrtíðarinnar, en ekki orsök. Ber jafnan að hafa þetta í huga, þegar rætt er um kaupgjald verkalýðsins.

Þegar nýsköpunarstjórnin var mynduð og Alþfl. fór í hana, setti hann sem skilyrði, að 300 millj. kr. að minnsta kosti af innstæðunum erlendis yrði varið til kaupa á framleiðslutækjum til að auka afkastamöguleikana, svo að kjör alþýðu bötnuðu. Alþfl. lagði aldrei til, að öllum innstæðunum yrði varið í þessu skyni. Honum var ljóst, að nokkur hluti þeirra væri nauðsynlegur í efni í byggingarframkvæmdir og annað slíkt. En auk þess fjár, sem verja skyldi til efniskaupa í byggingarframkvæmdir og þess háttar, ætluðumst við til, að hluti af innstæðunum væri geymdur, 100–200 millj., til þess að jafna síðar hallann, meðan útflutningsframleiðslan nægði ekki til nauðsynlegra vörukaupa og jafnvægi væri að skapast. Ef þetta hefði verið gert, væri annað viðhorf nú. Með því hefði mátt koma í veg fyrir vöruskortinn og svarta markaðinn.

Þegar Alþfl. tók þátt í stjórnarsamstarfi 1947, var þegar uppi krafa um gengislækkun, en fyrir tilstilli flokksins tókst að koma í veg fyrir það, en þess í stað var valin sú leið, að uppbætur voru greiddar á bátafiskinn og atvinnuvegunum þannig haldið gangandi, án þess að gengið væri lækkað, að minnsta kosti fram á s.l. sumar. Það kann að vera, að sú leið sé torfær nú, enda allt nekið á reiðanum siðan stjórnarsamstarfið slitnaði, og þess vegna ekki verið gert neitt til, að sú leið yrði fær áfram. Raunverulega hefur verið verkfall á stjórnmálasviðinu frá því í sumar, því að enginn meiri hluti hefur verið til, sem komið gat í veg fyrir, að niðurgreiðsluleiðin stöðvaðist. Það hefur heldur ekki verið beðið eftir því að sjá, hvaða áhrif gengislækkun sú hefði, sem varð á íslenzku krónunni s.l. haust gagnvart dollar, en það er ekki komið í ljós enn.

Í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, og undirbúning þess, sem hæstv. stjórn virðist mjög ánægð með, finnst mér vanta ýmis þýðingarmikil atriði og furðar satt að segja mjög á, að hagfræðingarnir skuli ekki hafa gert grein fyrir þeim.

Í hinni löngu greinargerð, sem fylgir frv., er ekki minnzt á tekjuskiptinguna í landinu, hvorki milli stétta né einstaklinga, en slíkt hlýtur þó að vera grundvallarsjónarmið, þegar gera á ráðstafanir eins og frv. miðar að. Það er heldur ekkert í greinargerðinni um, hvernig eignaskiptingin í landinu er, hvorki miðað við einstaklinga né stéttir. Tekjuskiptingin og eignaskiptingin hljóta þó að skipta höfuðmáli, þegar raska á þessu hlutfalli eins og frv. gerir ráð fyrir. Það er að vísu viðurkennt í áliti hagfræðinganna, sem sömdu þetta frv., að hlutur verzlunarinnar og iðnaðarins hafi verið og sé óeðlilega mikill og meiri en hann þyrfti að vera, og látið skína í, að það stafi af innflutningshöftum, en hins vegar gert ráð fyrir, að það lagist af sjálfu sér, þegar verzlunin verði frjáls, án þess að nokkrar ráðstafanir í frv. leiðrétti þessa óeðlilegu skiptingu, sem viðurkennd er, og mun ég víkja að því síðar.

Í frv. er gert ráð fyrir skatti á stóreignamenn, án þess að nokkrar upplýsingar liggi fyrir um, hvað sá skattur verður mikill, og meira að segja hefur þessum skattaákvæðum nú verið gerbreytt, frá því að frv. var lagt fram, enda þótt ekkert sé vitað um, hvort sú breyting hefur í för með sér hækkun eða lækkun á skattinum, og er alveg undravert, að slík vinnubrögð skuli vera viðhöfð í svo stóru máli. Samkv. frv., eins og það var fyrst lagt fram, var gert ráð fyrir að leggja skatt á fasteignir, allt að 12%. hjá hlutafélögum átti að leggja á allar fasteignir, en einstaklingar máttu draga 300 þús. kr. frá. En hins vegar var gert ráð fyrir, að eignaraukaskatturinn yrði látinn halda sér eins og hann var ákveðinn með eignakönnunarlögunum. Nú hefur þessu verið breytt þannig, að eignaraukaskatturinn er alveg felldur niður, án þess að nokkrar upplýsingar liggi fyrir um, hversu hár hann mundi verða, og tel ég vafasamt, að hækkunin á stóreignaskatti frv. verði meiri, en sem eignaraukaskattinum nemur, ef hann væri innheimtur. Hann átti, eftir því sem ég man, að nema upp í 30 af hundraði af eignarauka umfram 2 milljónir. Enn fremur hefur sú breyting verið gerð á skattaákvæðum þessa frv., að skatturinn verði ekki lagður á hlutafélög eða samvinnufélög, heldur verði eignum þessara félaga skipt á hluthafana og félagsmenn og þeir á þann hátt látnir greiða af þeim skatt. Það er eins með þessa breytingu, að það liggur ekkert fyrir um, hvort hún muni hafa í för með sér hækkun eða lækkun á skattinum. Það er augljóst, að af samvinnufélögunum verður skattur enginn eða mjög lítið tekið á þennan hátt, og sömuleiðis eru líkur til, að takmarkað náist af því fé, sem í hlutafélögum er bundið, þar sem auðvelt hefur verið að skipta þessu fé á marga aðila, kannske 7–8 í sömu fjölskyldunni. Hitt kann að vera, að meira náist af þeim, sem eiga í mörgum hlutafélögum, á þennan hátt. Annars liggur ekkert fyrir um, hvað þessi skattur muni nema miklum upphæðum, og verð ég að lýsa furðu minni yfir því, að ekki skuli svo mikið sem stafkrókur um það atriði fylgja þessu mikla frv. — Þá er ekki heldur neitt um það, hvaða áhrif gengisbreytingin hefur á tolltekjurnar, en verðtollurinn er áætlaður í fjárlagafrv. um 60 millj. Hækkun á honum ætti því að nema 30–40 millj., og yrði þá um verulega tollahækkun að ræða þrátt fyrir lækkun þá, sem gert er ráð fyrir í frv. Er þörf á slíkri hækkun á neyzluvörum landsmanna? Um það liggja engar upplýsingar fyrir, hvorki frá hæstv. ríkisstj. né þeim hagfræðingum, sem frv. sömdu.

Loks liggja engar upplýsingar fyrir um afkomuhorfur útgerðarinnar, sem þó er talað um að verið sé að bjarga með þessum aðgerðum. Það eina, sem er upplýst í sambandi við afkomu útvegsins, er það, að fyrir hraðfrysta fiskinn þurfi að fást 10 pence og þá geti hraðfrystihúsin greitt 93 aura, en það er líka upplýst, að þau geta ekki greitt þetta. Um söluhorfur er ekkert fjallað í sambandi við þetta mál. Það er t.d. ekkert um markaðsmöguleika í Bandaríkjunum fyrir hraðfrystan fisk og ekki vitað, að nokkuð hafi verið gert til að leita fyrir sér um það vandamál. Það er heldur ekkert getið um, hvort líkur séu til, að Rússar mundu kaupa af okkur fisk eftir gengislækkunina. Ef til vill er líka ætlunin hjá hæstv. ríkisstj. að byggja eingöngu á markaðinum í Bretlandi og Mið-Evrópu. Ég verð að segja, að það er hrein furða eftir allan þennan undirbúning, sem talað er um í sambandi við þetta frv., að hæstv. ríkisstj. skuli hafa látið sér sæma að veita engar upplýsingar um þessi atriði; eða hefur kannske farizt fyrir að láta athuga þessar hliðar málsins?

Þá vil ég víkja að ræðu hæstv. atvmrh. Hann taldi, að Alþfl. hefði ekki bent á neina leið út úr þeim erfiðleikum, sem nú steðja að, aðra en þá að taka upp landsverzlun, og það væri þýðingarlaust mál, sem enginn tæki alvarlega. Ég get játað það, að vandinn er meiri nú, en ef fyrr hefði verið móti honum snúizt, og það getur verið, að landsverzlun leysti hann ekki allan eins og nú er komið. Hins vegar vil ég benda hæstv. atvmrh. á, að ekki ómerkari þjóð en Bretar tóku það ráð, þegar efnahagsvandamál stríðsáranna steðjuðu að þeim, að þjóðnýta utanríkisverzlunina, taka upp ríkisinnkaup í svo stórum stíl, að allar brýnustu nauðsynjar voru keyptar af því opinbera, og má í því sambandi nefna t.d. olíu, kornvöru, feiti, kjöt, ull og fisk, nema þann, sem fluttur var á markaðinn til þeirra. Þannig var utanríkisverzlunin svo til öll í höndum ríkisins, en með því var allt verðlagseftirlit miklu auðveldara í framkvæmd og milliliðagróðinn stórkostlega lækkaður eða af tekinn.

Það er áreiðanlega enginn vafi á, að ef við hefðum verið svo hagsýnir að hafa slíkt fyrirkomulag á stríðsárunum, þá værum við betur á vegi staddir nú og hefðum sennilega losnað við þá erfiðleika að miklu leyti, sem nú á að leysa úr með gengislækkun. Nú segja menn, að Bretar séu að leysa upp landsverzlunina, og það er að verulegu leyti rétt, en þeir eru líka að losna úr sínum efnahagserfiðleikum, sem stríðið hafði í för með sér. Nú erum við aftur á móti í líkum vanda og Bretar voru, þegar þeir gripu til landsverzlunarinnar, og þar af leiðandi athugandi, hvort við eigum ekki að gripa til sömu ráða og þeir gerðu.

Fyrir tveimur árum var gerð athugun á verzluninni hér hjá okkur, bæði álagningu og hversu margir væru í þeirri atvinnugrein. Sú athugun leiddi í ljós, að á fjölmörgum vörutegundum var álagningin meiri, en innkaupsverðið í erlendum gjaldeyri.

Ég benti áður á, að hagfræðingarnir Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson birta í áliti sinu, að til verzlunarinnar og iðnaðarins hafi runnið óhóflegur gróði á undanförnum árum. Þó neitar enginn því, að fólkið, sem vinnur að verzlun, er margfalt fleira, en þarf að vera. Það er því augljóst, þar sem hægt hefur verið að borga öllum þeim fjölda, sem unnið hefur við verzlun, gott kaup, en hafa auk þess óhóflegan gróða, þá mætti ná allmiklu fé með því að taka upp landsverzlun eða lækka verðið og spara þjóðinni fé. Ég fullyrði ekki, að hægt væri að ná í nægilegt fé til að rétta við sjávarútveginn með þessari leið, en fullvíst er, að verulega mætti létta á útveginum, ef þetta fé væri flutt til hans, og telja verður það eðlilegri lausn en láta launastéttir landsins bera þær byrðar. Auk þess hefði slíkt fyrirkomulag í för með sér, að auðvelt væri að leggja aukalega á vissa vöruflokka og veita því fé til útvegsins, þar sem öll verzlun væri í höndum ríkisins. Það kunna sumir að segja, að slíkt væri raunar ekki annað, en gengislækkun, og má á vissan hátt segja, að svo sé. En með því móti væri einungis sú króna lækkuð, sem notuð væri til kaupa á sérstökum vörum og þá væntanlega ekki á brýnustu nauðsynjum. Krónan, sem notuð væri til kaupa á brauði og slíkum nauðsynjum, væri óskert, en hins vegar lækkuð krónan, sem varið væri til kaupa á sígarettum og bílum o.s.frv. Þetta væri auðvelt, ef fólkið vildi fara þessa leið.

Ég verð að segja, að jafnvel þótt þetta frv. verði samþ., sé nauðsynlegt að athuga þetta mál. Ég fæ ekki séð, að nein trygging sé fyrir því, að gengi það, sem gert er ráð fyrir í frv., haldist, enda eru beinlínis ákvæði í frv., sem ótvírætt gefa í skyn, að það geti þurft að breytast aftur og það án aðgerða Alþingis.

Um ummæli hæstv. atvmrh. í sambandi við eignaraukaskattinn ætla ég ekki að ræða nánar nú. Það gefst væntanlega tækifæri til að ræða það í sambandi við umræður um einstök ákvæði frv. Hæstv. ráðh. og aðrir, sem að frv. standa, draga ekki dul á það, að takmarkið með því sé að gera verzlunina frjálsa, en við það muni annað lagast af sjálfu sér, og það getur vel verið, að frjáls verzlun bætti úr einhverju, sem henni er ætlað. Hitt er bara lakara, að fátt bendir til, að þessu markmiði verði náð í náinni framtíð. Í sjálfu sér teljum við Alþýðuflokksmenn heldur ekki, að svokölluð frjáls verzlun sé neitt takmark út af fyrir sig. Höfuðmarkmiðið teljum við að sé að tryggja öllum atvinnu við arðbær og gagnleg störf, en það er undirstaða þess, að fólkinu líði vel. Hitt er miklu minna atriði, hvort verzlunin er frjáls eða ekki, aðeins ef hún er rekin með hag almennings fyrir augum.

Það er líka augljóst, að þetta frv., þótt samþ. verði, leysir ekki höftin, vöruskortinn eða svarta markaðinn af hólmi fyrst um sinn. Það, sem skeður, verður sennilega það, að þær vörur, sem nú liggja á hafnarbakkanum, koma í búðirnar með háa verðinu, og hræddur er ég um, að eitthvað kunni að hækka í verði af þeim vörum, sem nú eru í búðunum, nema sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að koma í veg fyrir það. En þrátt fyrir það helzt vöruskorturinn áfram og hætt er við, að bakdyr svarta markaðsins lokist heldur ekki alveg.

Það er nú augljóst, að þessi tímamót eru mjög óhagstæð fyrir gengislækkun. Hækkunin kemur alveg strax, eins og ég áður sagði.

Það er nú alveg fyrirsjáanlegt, hvernig þessu máli lýkur. Það eru 36 alþingismenn, sem standa saman um þá ríkisstj., sem nú situr, og þetta frv. verður samþ. af þessum mikla og öfluga meiri hluta.

Hæstv. atvmrh. sá ástæðu til þess að beina nokkrum leiðbeiningar- og varnaðarorðum til Alþfl. í sambandi við afgreiðslu þessa máls og tók sér tilefni af ummælum formanns Alþfl., sem hann hafði í neðri deild í nótt, en þar varaði hann ríkisstj. og flokka hennar við því að sýna fullkomna óbilgirni við afgreiðslu. málsins. Ég er að sjálfsögðu mjög þakklátur hæstv. atvmrh. fyrir umhyggju hans nú og fyrr fyrir Alþfl., sem hann varaði nú við að taka á sig þunga þeirrar ábyrgðar að standa gegn þessu frv. Mér skildist á honum, að hlutur Alþfl. mundi verða miklu betri og ábyrgðin minni, ef hann væri um þetta í öllu samþykkur hinum flokkunum. Ég þakka hæstv. ráðh. umhyggju hans og þykir skylt að gera grein fyrir því, hvers vegna Alþfl. getur ekki tekið afstöðu með þessu frv.

Það er þá í fyrsta lagi vegna þess, að þær ráðstafanir ýmsar, sem þar um ræðir, eru ekki réttlátar; þungi þeirra kemur ekki réttlátlega niður á þjóðfélagsþegnana. Þá telur Alþfl. í öðru lagi, að þetta frv. veiti ekki sjávarútveginum þá tryggingu, þó að samþ. yrði, sem til er ætlazt. Í þriðja lagi óttast Alþfl. það, af ástæðum, sem ég hef þegar tilgreint, að þetta verði til þess, að dýrtíðarhjólið snúist enn einn hring og haldi áfram að velta, jafnvel þótt verkalýðssamtökin hefji ekki kauphækkunarbaráttu nú þegar. Í fjórða lagi hefur Alþfl. haft þá reynslu af samstarfinu við þá flokka, sem nú ætla að knýja fram þetta mál, bæði í sambandi við gengislækkunina 1939 og enda síðar í samsteypustjórninni, að hann telur sig ekki geta búizt þar við góðu um framkvæmdir.

Þetta eru í stuttu máli þær ástæður, sem Alþfl. hefur til andstöðu gegn þessu frv. En í sambandi við varnaðarorð hæstv. ráðh. þykir mér rétt að rifja upp þau atriði, sem formaður Alþfl. drap á í neðri deild í nótt. Hann beindi því til stjórnarflokkanna og ríkisstj., hvort hún sæi ekki ástæðu til þess að ganga nokkuð til móts við óskir verkalýðsráðstefnunnar, sem hér hefur setið undanfarna daga. En höfuðatriði í þeim breytingum, sem hún bendir á í ályktun sinni, voru í fyrsta lagi, að felld yrði niður 2. gr. frv., þ.e.a.s. ákvæðin um að svipta Alþingi valdinu til þess að ákveða gengi íslenzku krónunnar og leggja það í vald Landsbankans; í öðru lagi, að kaupuppbætur yrðu ekki miðaðar við nýju vísitöluna, heldur þá gömlu, a.m.k. þangað til búið væri að reikna út rétta vísitölu; í þriðja lagi, að brúað yrði bilið, sem skapazt hefur við það, að kauphækkanir hafa gengið skemmra, en vísitöluhækkuninni nemur á því tímabili, sem liðið er síðan hún var sett föst; og í fjórða lagi, að uppbætur yrðu greiddar mánaðarlega, eins og verið hefur, en ekki á 6 mánaða fresti, eins og ráðgert er í frv.

Um þessar ábendingar vil ég segja það, að þær eru að vísu fram komnar eftir að sýnt var, að meiri hluti Alþingis mundi knýja frv. fram; en eigi svo smávægilegar tilfærslur að sæta þannig meðferð af hálfu Alþingis, að þeim sé í engu sinnt, þá tel ég óviturlega haldið á almennri afgreiðslu þessa máls og ómaklega lítilsvirðingu sýnda fulltrúum þeirrar ráðstefnu, er tillögurnar hefur gert. Og það lofar ekki góðu um hug þessarar stjórnar til verkalýðsins, ef virða á tillögur þessar að vettugi. Ég vil því taka undir þau varnaðarorð, sem formaður Alþfl. hafði í sambandi við þessa hlið málsins.