18.03.1950
Efri deild: 77. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í B-deild Alþingistíðinda. (805)
125. mál, gengisskráning o.fl.
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins minnast hér á brtt. á þskj. 461, frá meiri hl. fjhn. Fyrsta brtt. er um það, að 2. gr. falli niður. Hæstv. forsrh. hefur lýst því yfir, að um það hafi orðið samkomulag við forustumenn verkalýðssamtakanna. Ég lít því svo á, að þá hafi fundizt einhver vilyrði fyrir því, að sömu samtök taki ekki upp skefjalausa sókn til að eyðileggja það, sem vinnst með frv., að öðrum kosti hefði varla verið um þetta samið. Með þessu móti hefur þá gerzt tvennt. Í fyrsta lagi hafa forstöðumenn samtakanna tekið á sig meðábyrgð um að halda niðri kaupgjaldinu og hefja ekki skefjalausa sókn til að eyðileggja þessa lagasetningu, og hins vegar að nokkru leyti lýst yfir fylgi við þetta frv. Með þessum skilningi er ég fylgjandi því, að þessi brtt. verði samþ., enda er þá alltaf hægt að breyta þessu aftur, ef í það fer, en ég geri ekki ráð fyrir, af framangreindum ástæðum, að til þess komi. Við 2. brtt. hef ég ekkert að athuga.
Varðandi 3. brtt., þá er ég þakklátur n. fyrir að hafa borið hana fram. Hins vegar er ég undrandi yfir því, að hv. meiri hl. skuli ekki hafa tekið til greina ábendingar um skattinn á togarana, úr því að það er meiningin, að taprekstur skuli ekki vera skattlagður. Ég geri þó ekki ágreining út af þessu og greiði frv. atkv. í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. afli sér heimildar til að snúast við þessu máli eins og rétt er. En það er alveg vitanlegt, að ef togaraflotinn verður stöðvaður vegna skattlagningar, þá nær þetta frv. ekki tilgangi sínum. — Máske þarf að gera breytingar á frv. þegar á þessu, þingi, og mér þykir ákaflega líklegt, að lífið muni opna augun á ríkisstj. fyrir ýmsu, sem þar horfir til bóta; en þetta er ein af þeim breytingum, sem nauðsynlegt verður að gera, ef það sýnir sig, að þessi atvinnurekstur getur ekki starfað, nema hann fái eftirgjöf á skattinum. — Mér þótti rétt að láta þetta koma fram, en skal svo ekki orðlengja þetta frekar.