18.03.1950
Neðri deild: 70. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í B-deild Alþingistíðinda. (822)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Frsm,. 3. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Þetta mál hefur verið þrautrætt svo, að ég sé ekki ástæðu til að ræða það almennt við þessa umr. Ég vil aðeins benda á, að meginrökin, sem flutt hafa verið af hálfu andstöðuflokkanna, standa að öllu leyti óhrakin. Það stendur óhaggað, sem hefur verið haldið fram, að frv. sé ranglát lausn á þeim vandamálum, sem að atvinnulífi landsmanna steðja. Það stendur óhrakið, að lagðar eru einhliða byrðar á launamenn landsins, þegar gera á tilraun til að rétta við hag útvegsins. Enn fremur stendur það óhrakið, að það er mjög hæpið, að frv. geti náð tilgangi sínum í þeirri mynd, sem það hefur nú. Það hefur komið fram, að það er ólíklegt, að bátaútvegurinn og hraðfrystihúsin geti starfað við þau skilyrði, sem þeim verða búin. Ég beindi til hæstv. stj. þeirri fyrirspurn við 3. umr., hvort stj. hefði trú á því, að hægt yrði að greiða 93 aura fyrir bátafiskinn, eins og gert væri ráð fyrir í frv. Hæstv. viðskmrh. svaraði því, að ríkisstj. gæti engan veginn ábyrgzt, að hægt yrði að greiða það verð. En sé svo, að þetta frv. tryggi ekki nokkurn veginn 93 aura verð, þá verður með engu móti séð, að frv. nái þeim tilgangi, sem því er ætlað að ná, því að megintilgangurinn er að haga gengisskráningunni svo, að 93 aura verð yrði nokkurn veginn tryggt. Allir útreikningar hagfræðinganna miðuðu að því, að hægt væri að greiða þetta verð, og — hafa þeir verið þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt væri fyrir bátaútveginn að fá það fyrir fiskinn. Fyrst því hefur verið lýst yfir af hálfu ríkisstj., að fyrir því sé engin trygging, að frv. geti fært bátaútveginum 93 aura verð, hefur það í rauninni verið játað af ríkisstj., að ekki sé víst, að frv. geti náð tilgangi sínum.

Af hálfu Alþfl. hafa í þessari hv. d. og í hv. Ed. verið fluttar brtt. við frv., þó að flokkurinn sé andvígur því í heild. Alþfl. hefur lagt til, að felld verði niður 2. gr. og gengisákvörðunarvaldið verði áfram í höndum Alþingis, stóreignaskattur verði verulega hækkaður og skattfénu skipt öðruvísi, en lagt er til í frv. Alþfl. hefur lagt til, að tilhögun vísitöluuppbótagreiðslnanna verði öðruvísi en í frv., þannig, að frá 1. apríl 1950 skuli laun breytast mánaðarlega samkv. ákvæðum 7. gr. frv. og núgildandi kaup talið svara til vísitölu kauplagsnefndar eins og hún var 1. sept. s.l., og enn fremur, að verðuppbæturnar verði framvegis greiddar mánaðarlega. Einnig hefur flokkurinn lagt til, að persónufrádráttur verði stórlega hækkaður frá því, sem nú er, þar sem það miðar að því að létta þær byrðar, sem lagðar eru á launamenn með þessu frv. Þá höfum við einnig lagt til, að hlutatryggingasjóði verði tryggt það fé, sem honum raunverulega hefur verið lofað, og enn fremur, að létt verði af námsmönnum þeim byrðum, sem þeim eru lagðar á herðar með þessu frv. Þá hefur flokkurinn og lagt til betra og einfaldara fyrirkomulag á greiðslu sparifjáruppbótarinnar, en frv. gerir ráð fyrir, og höfum við gert till. þjóðbankans í því máli að okkar till. Við höfum lagt til, að framleiðslugjöldin yrðu gerð léttari og réttlátari, en frv. gerir ráð fyrir, og lagt til, að verðtollur yrði lækkaður. Það hefur aðeins verið gengið til móts við eina af þessum brtt. af hálfu ríkisstj., þ.e. að Alþingi á nú eins og áður að halda valdi yfir gengisskráningunni. Enn fremur verður lítils háttar breyt. á greiðslu kaupuppbótanna. Allar aðrar brtt. Alþfl. hafa verið felldar, og þó er það svo, að bak við hinar mikilvægustu þeirra hefur staðið mjög einróma vilji verkalýðssamtakanna í landinu, nýlega látinn í ljós á þýðingarmikilli ráðstefnu, þar sem mættir voru formenn allra verkalýðsfélaga í landinu. Þrátt fyrir allt þetta hefur ríkisstj. treyst sér til þess að fella allar þessar till. Þess vegna þarf auðvitað ekki að orðlengja það, að Alþfl. er andvígur frv., jafnandvígur því nú og þegar það var lagt fyrir þessa hv. d. í fyrstu. Ég mun að sjálfsögðu ekki endurflytja við þessa umr. neinar af þeim till., sem þegar hafa verið felldar. En við þrír af þm. Alþfl. viljum freista þess enn við þessa umr. að fá svolitla lagfæringu á frv. og berum fram till. við 6. gr., sem flutt var af þm. Alþfl. í Ed., en náði ekki fram að ganga þar. Brtt. er í tveimur liðum, og er sá fyrri svo hljóðandi:

„Við 6. gr. Fyrir orðin „desembermánuð 1950“, „janúar 1951“, „janúar 1951“, „júníloka 1951“, „júní 1951“, „júlí 1951“' og „1. ágúst 1951“ í 3.–5. málsgr. kemur í sömu röð: október 1950, nóvember 1950, nóvember 1950, aprílloka 1951, apríl 1951, maí 1951, 1. júní 1951.“

Tilgangurinn með þessari brtt. er sá, að launþegar fái kaupuppbót þegar í stað vegna þeirrar hækkunar, sem gera má ráð fyrir, að verði á vísitölunni í sept. n.k. vegna hækkaðs verðs landbúnaðarafurða. Eins og frv. er nú, er gert ráð fyrir, að kaup geti breytzt mánaðarlega 3 fyrstu mánuðina, en síðan ekki fyrr en 1. jan. 1951. Er þó vitað, að í sept. n. k. verða landbúnaðarafurðir verðlagðar. og augljóst, að á þeim verður allveruleg hækkun, sem mun hækka framfærsluvísitöluna talsvert. Gert er ráð fyrir í frv., að kaup launþega eigi að haldast óbreytt til næstu áramóta. Þetta álítum við mjög óeðlilegt, sérstaklega með tilliti til þeirra byrða, sem að öðru leyti má gera ráð fyrir að falli á herðar launþega samkv. þessu frv., og þetta viljum við fá leiðrétt þannig, að kaup megi hækka þegar 1. nóv. 1950 vegna þeirrar hækkunar, sem verður á landbúnaðarafurðum í sept. þ. á., og breytast aðrar dagsetningar í frv. síðan samkvæmt því. Þessi brtt. þýðir því í rauninni ekkert annað en það, að launþegar eigi ekki að þurfa að bíða í þrjá mánuði eftir að fá kaupuppbót vegna þeirrar hækkunar, sem verður í sept., heldur geti fengið hana einum mánuði á eftir. Ég fæ ekki séð, að þetta verði talin ósanngjörn krafa. Sanngjarnir menn hljóta að játa, að þessi krafa er hófleg. Því hefur verið haldið fram af ríkisstj. og talsmönnum hennar, að það sé vilji hennar að bæta launþegum þá hækkun, sem raunverulega verður á framfærslukostnaði. En eins og tímatakmarkið fyrir kauphækkuninni hefur verið ákveðið, líður langur tími frá því verðlag hækkar og þangað til sú hækkun fæst bætt með hækkuðu kaupgjaldi. Ég veit ekki, hvort það hefur verið þrauthugsað af höfundum frv., að þetta skyldi vera svona. Mér er nær að halda, að svo hafi ekki verið, heldur hafi láðst að athuga þetta atriði málsins, og ég get með engu móti séð, að þetta breyti tilgangi frv. eða komi að nokkru leyti í bága við þá heildarstefnu, sem frv. að öðru leyti byggist á. Hér er aðeins verið að sníða galla af frv. Ég vil því leyfa mér að vonast til þess, að hv. d. sjái sér fært að samþ. þessa till. Það mundi vafalaust milda eitthvað afstöðu launþegasamtakanna til málsins, ef þessi skilningur væri sýndur á málstað þeirra.

Síðari brtt., sem við þessir sömu þm. flytjum, hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Aftan við greinina bætist nýr málsliður, þannig: Þetta ákvæði tekur þó ekki til verkalýðsfélaga, sem hækka ekki kaup sitt meira en svo, að það samsvari vegnu meðaltali af grunnkaupi allra félaga ófaglærðra verkamanna og verkakvenna í landinu.“

Eins og síðasta málsgr. 6. gr. er nú, þýðir hún, að ekkert verkalýðsfélag getur notið hinnar lögleyfðu kaupuppbótar, ef það hækkar grunnkaup sitt frá því, sem það var við janúarlok 1950. Hér er enginn greinarmunur gerður á því, hvort kaup verkalýðsfélags hefur verið fyrir ofan eða neðan meðaltal kaupgjalds allra verkalýðsfélaga í landinu. Þar með er fyrir það tekið, að þau verkalýðsfélög, sem hafa orðið á eftir í kaupgjaldshækkunum á s.l. ári eða s.l. tveimur árum, geti fylgzt með hinum verkalýðsfélögunum og fært kaup sitt eingöngu til samræmis við kaup annarra verkalýðsfélaga, án þess að missa um leið rétt til þeirra Iögheimiluðu verðlagsuppbóta, sem frv. gerir ráð fyrir. Sú hugsun, sem liggur til grundvallar í frv., er að sporna gegn því, að til almennra grunnkaupshækkana komi í landinu. Hugsunin er auðvitað sú, að láta ekki koma til framkvæmda hinar lögheimiluðu kaupuppbætur, ef grunnkaup verður almennt hækkað, og út af fyrir sig má segja, að í þessu sé samfelld hugsun. Hitt getur hins vegar ekki verið tilgangur frv., að koma í veg fyrir, að hægt verði að lagfæra ótvírætt ósamræmi, sem nú er ríkjandi í kaupgjaldi verkalýðsfélaganna í landinu, en eins og frá frv. er gengið, er ekki hægt að koma við lagfæringu. Það getur ekki verið tilgangurinn með þessu ákvæði að koma í veg fyrir samræmingu á kaupi, heldur hitt, að sporna við því, að almennar grunnkaupshækkanir eigi sér stað. Hins vegar hefur líklega ekki verið athugað, að kaupgjald í einstökum verkalýðsfélögum er mjög misjafnt, og sums staðar er munurinn svo mikill, að það yrði að teljast mjög ósanngjarnt, ef þetta kaupgjaldsákvæði yrði látið haldast. Tilgangurinn með þessari brtt. er sá, að ákvæðum frv. verði breytt þannig, að lagfæring á kaupgjaldi til samræmis við meðalkaupgjald verði ekki til þess að svipta hlutaðeigandi verkalýðsfélög rétti til lögheimilaðrar uppbótar, ef verkalýðsfélögin hækka kaupið ekki meira en svo, að það fari upp í meðalkaupgjald allra verkalýðsfélaga á landinu. Ég staðhæfi, að þessi brtt. fari ekki í bága við þann megintilgang, sem sjálfir flm. telja, að frv. hafi, og tel, að hægt sé að samþ. þessa till. einnig frá þeirra sjónarmiði séð. Þessi till. er mjög sanngjörn og eðlileg, og vænti ég þess því, að hv. d. sjái sér fært að samþykkja hana.