18.03.1950
Efri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Það liggur hér fyrir brtt. frá hv. 6. landsk. þm. við 6. gr. frv., að aftan við hana bætist ný málsgr., svo hljóðandi: „Þetta nær þó ekki til þeirra stéttarfélaga, sem nú búa við svo lágt kaupgjald, að það sé fyrir neðan meðaltal kaups verkalýðsfélaga innan Alþýðusambands Íslands, þótt þau eftir gildistöku laganna hækki kaupgjald sitt upp í kr. 2,90 í almennri dagvinnu karla og í 2,10 í dagvinnu kvenna.“

Þessi till. fjallar um atriði, sem mikið var rætt á milli stjórnar Alþýðusambands Íslands og ríkisstj., og var ríkisstj. treg til þess að ganga til samkomulags um þetta atriði. Er málið var til umr. í hv. Nd., var því m.a. áður lýst yfir í ræðu hæstv. atvmrh., að það væri viðurkennt, áð hér væri um allmikið réttlætismál að ræða um að ganga lengra til móts við þau verkalýðsfélög, sem hefðu lægstu kaup- og kjarasamninga. En hins vegar hefur ríkisstj. verið það ljóst, að það gæti orðið hættulegt tilgangi frv. þessa að gera slíka hluti, því að það mætti segja, að verið væri að lögbjóða, að kaupgjald skuli hækka, en slík sérstök lögboðin leyfi, sem fólgin væru í slíkri aðstoð, gætu verið allbreytileg hvað þetta snertir. Ríkisstj. hefur nú í matarhléinu athugað brtt. hv. 6. landsk., og hef ég m.a. haft viðræður um hana við forseta Alþýðusambands Íslands, Helga Hannesson. Hélt hann því fast fram, að hann teldi hér engu réttlæti vera fullnægt, nema þessi verkalýðsfélög fengju hækkað kaup, sem væri miðað við kr. 3,08 í grunnkaup. Nú er ríkisstj. þeirrar skoðunar, að slíkt komi ekki til mála. Nú hefur forseti Alþýðusambands Íslands leyft að hafa það eftir sér, að ef útilokað sé, að þessi verkalýðsfélög fái hækkun í kr. 3,08, þá teldi hann það vera mikla leiðréttingu að samþykkja brtt. í svipaða átt og þessa, en lýsti því jafnframt yfir, að hann teldi það ekki vera fulla leiðréttingu. Ríkisstj. hefur í þeim viðræðum, sem hún hefur átt við stjórn Alþýðusambands Íslands, reynt til hins ýtrasta að ná samkomulagi við stjórn Alþýðusambandsins, án þess að raska grundvellinum, sem þetta frv. er byggt á. Nú er það ákveðinn vilji ríkisstj., að frv. verði afgreitt í kvöld eða nótt, en nú er svo ástatt, að allmargir þm. eru fjarstaddir, og ef frv. verður nú enn breytt, verður það að ganga til sameinaðs þings, en mjög er tvísýnt um, að það verði hægt í kvöld, sökum fjarvista þingmanna. Af þessum ástæðum vil ég lýsa því yfir fyrir hönd ríkisstj., að við munum nú eftir helgina taka upp viðræður við stjórn Alþýðusambands Íslands um þessi atriði og leitast þá við að ná samkomulagi um leiðréttingu á þessu, sem hún gæti sætt sig við. En þó vil ég taka það fram, að það er ekki loforð á neinn hátt um það, að farið verði að neinu leyti lengra en þessi till. gefur tilefni til.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að segja meira um þetta, en ég veit ekki, hvort hv. flm. þessarar skriflegu brtt. telur þetta fullnægjandi. Hefði ég talið bezt á því fara, að hann sæi sér fært, að draga till. alveg til baka og gæti sætt sig við þessi ummæli mín, sem ég hef sagt hér fyrir hönd ríkisstj. allrar.