18.03.1950
Efri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég vil þá, ef ég hef misskilið orð hæstv. forsrh., lýsa því aftur yfir, að því aðeins sé ég mér fært að taka till. aftur, ef loforð fæst um að gera a.m.k. þá leiðréttingu, sem í till. minni felst. Að öðrum kosti er till. ekki tekin aftur.