18.03.1950
Efri deild: 78. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (843)

125. mál, gengisskráning o.fl.

Frsm. 1. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):

Herra forseti. Mér er það ekki fyllilega ljóst, hvað í ádrætti hæstv. ríkisstj. felst, hvort nú eigi strax að brjóta lögin eftir helgina. En hvað snertir brtt. hv. 6. landsk., þá er mér ekki ljóst, hvort hann tekur till. sína aftur eða ekki, en sé svo, þá tek ég hana upp.