08.12.1949
Efri deild: 9. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (848)
53. mál, eignakönnun
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Það varð að samkomulagi við hæstv. núv. fjmrh., að ég mælti nokkur orð fyrir þessu frv. og þeim, sem á eftir fylgja, vegna þess að þau voru lögð fram meðan fyrra rn. var starfandi.
Um þetta sérstaka mál er það að segja, að það er samhljóða frv., sem ég bar fram á siðasta þingi, en náði þá ekki fram að ganga, en ástæðan fyrir því var mér sagt eftir á, að hefði verið sú, að ýmsir alþm. töldu sig ekki hafa fengið nægar skýringar á því, að réttlátt væri, að þessi breyt. á l. um eignakönnun væri staðfest eða samþ., en ástæðan fyrir því, að frv. um þetta efni hafi komið fram, var sú, að 17. gr. l. nr. 67 5. júní 1947, um eignakönnun, kveður svo óljóst á um það, hvaða skatt eigi að leggja á þær fjárhæðir, sem ekki hafa verið taldar fram, þegar komið er yfir 45 þús. kr. L. eru alveg ljós að því er snertir upphæðir upp að 45 þús. kr., en framhaldið er ekki það ljóst ákveðið í l., að n. sú, sem hefur þessa framkvæmd með höndum, hefur ekki treyst sér til — og tjáði mér það strax á síðasta ári — að framkvæma þetta nema að fá úrskurð Alþingis, hvernig þessi gr. ætti að skiljast.
Í aths. við þetta frv., sem samið er af þessari n., segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Það kom strax í ljós, eftir að lög um eignakönnun voru samþykkt, að mismunandi sjónarmið voru uppi um það, hvernig skilja bæri 17. gr. laganna, þ.e. hvernig skattleggja bæri undandregnar eignir, sem væru fram yfir 45 þús. kr. Sumir hafa viljað halda því fram, að greiða bæri aðeins eignarskatt af því, sem umfram væri. Þetta getur varla hafa verið tilætlun löggjafans. Það er gagnstætt öllum reglum og venjum um skattlagningu, að skattstiginn lækki, þegar skattstofninn hækkar. Annað sjónarmið er það, að því, sem er umfram 45 þús. kr., verði bætt við tekjur ársins 1947, og skattar lagðir á samkvæmt því. Þetta hefði að vísu gefið ríkissjóði mestar tekjur, en varla gæti það talizt vera í anda laganna. Þriðja sjónarmiðið var að skipta umframeigninni jafnt niður á fimm ár, í líkingu við ákvæði 10. gr. laga nr. 20 20. maí 1942, og bæta henni við skattskyldar tekjur og eignir áranna 1942–1946, að báðum árum meðtöldum. Þó þykir eðlilegt, að skattur af þeirri upphæð verði ekki undir 15% að meðaltali, þar sem greiða skal þann hundraðshluta af 35–45 þús. kr. undandreginni eign. Þessa síðastnefndu leið hefur framtalsnefndin valið með samþykki fjármálaráðuneytisins og úrskurðað skatt samkvæmt þeim skilningi, þar sem þessi tilvík hafa komið fyrir. En með því að þessi óvissa hefur verið um skilning á umræddri lagagrein og margs konar óþægindi, málaferli, kostnaður og tafir gætu hlotizt af, bæði fyrir ríkissjóð og einstaklinga, ef gleggri skýringarákvæði yrðu ekki sett, þykir rétt, að sá skilningur, sem framtalsnefndin hefur til þessa farið eftir, verði lögfestur.“
Þetta eru aths. rn. við þetta frv., og með því er farið fram á, að fallizt sé á þennan skilning, sem framtalsnefnd hefur lagt í þessa gr. og ég verð að játa, að virðist liggja næst og vera í þeim anda, sem fram kemur í löggjöfinni sjálfri, sem er svo skýrt mörkuð upp að þessari tilgreindu upphæð, sem þar er nefnd, en þegar fram yfir hana kemur, er mörkuð svo óskýrt. En hvernig sem fer, er nauðsynlegt, að Alþingi geri hér bragarbót og marki a.m.k. skýra línu í þessu efni til þess að koma í veg fyrir, að sífellt standi yfir málaferli út af ágreiningi um skilning á þessu ákvæði.
Þetta frv. var borið fram á síðasta þingi, en náði ekki fram að ganga, nokkuð fyrir það, að ég var ekki eins vel vakandi með að vera viðstaddur eins og ég hefði þurft, ég var upptekinn við annað mál í þessari d., þegar þetta mál kom fyrir, og gat ekki gefið skýringu og hafði ekki haft þá fyrirhyggju að biðja um að láta mig vita, að það væri á dagskrá. En mér var sagt af þeim, sem á móti málinu voru, að hefðu þeir þá vitað þær skýringar, sem síðar komu fram, þá hefðu þeir fylgt málinu, en ekki lagzt á móti því.
Nú er frv. borið fram í annað sinn, og til viðbátar við þessar skýringar, sem ég hef nú lýst, þá á ég von á, að frá skattstjóra og framtalsnefnd komi útreikningar og dæmi, hvernig þessi framkvæmd kemur út eftir því, sem hér stendur, og ef til vill eftir fleiri leiðum. Þessir útreikningar og dæmi verða að sjálfsögðu látnir n. í té, sem fær þetta mál til meðferðar, og ætla ég ekki að þessu sinni, nema sérstakt tilefni gefist til, að fjölyrða frekar um þetta við þessa umr., en mun sjá til þess eða hæstv. fjmrh., að fjhn., sem að sjálfsögðu fær málið, fái í sínar hendur þau frekari skilríki, sem samin væru og útbúin yrðu, áður en fjhn. þarf að taka endanlega afstöðu til málsins.
Að svo mæltu vil ég mælast til þess, að hv þd. að lokinni þessari umr. vildi fallast á að vísa málinu til 2. umr. og fjhn.