01.03.1950
Efri deild: 66. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (876)
53. mál, eignakönnun
Atvmrh. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. N-M. (PZ) geystist mjög hér áðan í ræðu sinni í garð fjmrh., að mér skildist vegna þess, að hann hefði ekki reynt að lagfæra skattal. landsins, sem hann þó hefði farið um hörðum orðum. Ég tel mér skylt að svara hér til nokkru og vil benda þessum hv. þm. á það, að ég hafði greinilega prófun af því, hvaða þýðingu það hafði, meðan ég var fjmrh., að leitast við að koma á nokkru í umbótaátt í sambandi við mál, sem snerta fjármál ríkisins, í samvinnu við hv. 1. þm. N–M. og hans flokk. Og eftir afdrifum þeim, sem sú tilraun fékk, fyrir tilstilli hv. þm. N–M., má ráða nokkuð, hvað það hefði þýtt að fara að bera fram breyt. á skattal., þ.e.a.s. gerbreyt., sem þurfa að koma. Ég hélt, og þóttist vera í fullu samræmi við stefnu fjvn. eins og hún hefur legið fyrir á undanförnum árum, að það væri meining þingflokkanna yfirleitt að koma á eftirliti hjá hinum ýmsu ríkisstofnunum og í ráðun. sjálfum. Ég byrjaði undirbúning að þessu nokkru eftir að ég tók við því embætti, með því að fá helztu forstöðumenn ríkisráðun. til þess að setjast á rökstóla og gera tillögur í því efni. Þeir lögðu í þetta mjög mikla vinnu, og það var mjög ýtt á mig einmitt af ráðh. Framsfl. að taka líka þm. með í þetta starf, og ég lét til leiðast að gera það, illu heilli, og þar var hv. 1. þm. N-M. annar þeirra þingmanna, sem teknir voru inn í þetta starf. Jú, svo var unnið að þessum málum og samið frv. um ráðsmann ríkisins og lagt fram á Alþ., og fékk það þá heldur slæmar móttökur, og kvað svo rammt að því, að ég fékk skammir fyrir þessa viðleitni mína hjá form. Framsfl. og ýmsum öðrum flokksmönnum hv. 1. þm. N-M. Og þeir, sem fóru í n. til að útbúa þessar till., gengu fram fyrir skjöldu í því að eyðileggja þetta, og þeim tókst það líka. Það var þetta, sem þessir hv. þm. gerðu. Ég ætla, að hv. þm. skilji, að þegar svo fer um sjálfsagða hluti, þá er ekki von, að vel fari. Hverjir eru það, sem hafa komið skattal. í það gereyðingarform, sem þau nú eru í? Framkoma hv. 1. þm. N-M., sem ég var að lýsa áðan, er ljósast dæmi um það, hvað hann og hans flokkur vill gera í þessum málum. Honum er troðið inn í nefndarstarf, og þegar árangurinn af starfi n. er svo lagður fyrir Alþ., þá snýst þessi hv. þm. og flokksmenn hans andvígir gegn till. og atyrða ráðh. Nú hefur hæstv. fjmrh. gert ráðstafanir, sem stefna í sömu átt. Honum er ljóst, að þetta atriði er nauðsynlegt til að koma sæmilegu skipulagi á þessi mál, en það hefur sýnt sig, að það er erfitt að koma slíku fram hér í þinginu. Ég valdi þá beinustu leið, sem ég vissi, en þessi tilraun mín var gereyðilögð.