08.03.1950
Sameinað þing: 31. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1560 í B-deild Alþingistíðinda. (88)
Slysfarir á sjó - minning
forseti (StgrSt) :
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin. Enn hefur Ægir lagt að velli flokk íslenzkra sjómanna, — sjómenn, er voru að gegna skyldustörfum fyrir land sitt og þjóð. Í vestanfárviðri því, sem geisaði um síðustu helgi fórst vélbáturinn Jón Magnússon frá Hafnarfirði með 6 manna áhöfn. Í sama ofviðri tók mann út af vélbátnum Fylki frá Akranesi. Hér hafa því fallið í valinn fyrir hamförum náttúrunnar sjö vaskir úrvalssjómenn á bezta aldri, menn, sem voru að vinna að einhverjum allra mikilvægustu störfum þjóðfélagsins. Slíkt er mikil blóðtaka fyrir fámenna þjóð og vekur harm og söknuð í huga hvers manns.
Mestur missir og sárastur söknuður er kveðinn að nánustu aðstandendum. Vér flytjum þeim öllum alúðarfyllstu hluttekningarkveðjur, jafnframt því sem vér þökkum hinum föllnu hetjum störf þeirra.
Má ég biðja háttvirta alþingismenn að rísa úr sætum í virðingar- og þakklætisskyni við hina látnu sjómenn. - [Þingmenn risu úr sætum.]