06.03.1950
Neðri deild: 60. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (915)

43. mál, jarðræktarlög

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Mig langar til að leita örfárra upplýsinga hjá hv. frsm. í sambandi við frv. þetta. Þá vil ég nota tækifærið til að þakka honum fyrir, hversu ýtarlega hann hefur reifað málið hér. Ég hafði búizt við, að þessa máls yrði getið í dagblöðum bæjarins, en það hefur ekki orðið, og má það merkilegt heita.

Ég hef sannfærzt um það, að jarðræktarl. hafa haft mikla þýðingu fyrir landbúnaðinn, og sennilega miklu meiri en menn gera sér almennt ljóst. Nú er vitað, að jarðræktarl. kosta ríkissjóð mikil útgjöld, en þau hafa haft góð áhrif fyrir landið og þjóðina í heild.

Ég heyrði ekki á ræðu hv. frsm., hvað lög þessi mundu geta komið til með að kosta ríkissjóð, t.d. um fjárframlög til framræslu, sé sá styrkur hækkaður geysilega, eins og frv. leggur til. Enn fremur gerði hv. frsm. ráð fyrir því, að kostnaður af framkvæmd nokkurs hluta II. kafla l. mundi verða um 1/2 millj. kr. á ári. Það væri gott, ef hv. frsm. gæti upplýst, hvað afnám hámarksákvæðisins mundi hafa í för með sér. Þá væri og gott að vita, hvaða kostnað mundi leiða af ákvæðinu til bráðabirgða.

En nú langar mig til að spyrja hv. frsm. að eftirfarandi: Liggur fyrir nokkur áætlun um heildarkostnað þessara l., eins og frv. er nú? Þá langar mig og til að vita, hvort hv. frsm. telji öruggt, að útgjöldin til landbúnaðarins, sem varið er á þennan hátt, komi að beztum notum og hvort ekki sé til nein önnur leið, þar sem meira gagn sé að sömu útgjöldum. Væri t.d. ekki hugsanlegt að styrkja fyrirmyndarbúrekstur, annaðhvort ríkisbúrekstur eða bú einstaklinga? Hér á ég við, að nokkur hluti jarðræktarstyrksins yrði notaður sem verðlaun.

Ég er sammála þeim, er halda því fram, að það beri að auka landbúnaðinn og reynt verði að koma honum í það horf, að menn geti framleitt sem allra mest með sem minnstum tilkostnaði. Það hlýtur að verða hagur bæði neytenda og framleiðenda.

Ég veit varla, hvort mér hefur tekizt að orða fyrirspurnir mínar svo ljóslega, að hv. 1. þm. Skagf. hafi skilizt, við hvað ég á, en ég vona nú þó, að svo sé.