20.03.1950
Neðri deild: 71. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (928)
43. mál, jarðræktarlög
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Það hefur komið fram hér í umr., að vafasamt gæti verið, hvort 2. brtt. á þskj. 413 væri rétt fram borin. Í því sambandi vil ég vekja athygli á því, að ákvæðin um greiðslu vísitöluuppbótar áttu áður við 11. gr., eins og hún var þá, en við 2. umr. var 11. gr. breytt allverulega, og þess vegna eiga ákvæði þau, er felast í 2. brtt. okkar, við 11. gr., sem er á annan veg en sú, sem áður var. Það er því ekki svo, að vafi geti á því leikið, að þessi brtt. sé rétt fram borin. — Ég skal að öðru leyti ekki hafa mörg orð um þessa brtt. Flm. töldu sér skylt að gera tilraun til þess að koma brtt. fram, og vil ég vænta þess, að hún reynist ekki árangurslaus, Það er áreiðanlega ekki of í lagt, er ég sagði áður um mikilvægi votheysverkunar fyrir landbúnaðinn, og sú tiltölulega litla upphæð, sem lagt er til, að styrkirnir hækki um, er aðeins lítið brot af því verðmæti, sem þessi ráðstöfun mundi varðveita fyrir þjóðina.
Fyrir nokkrum dögum var hér til umr. mál um hagnýtingu á síldarsoði. Menn hafa uppgötvað, að verðmæti hafa þar farið til ónýtis, og eru að fá augun opin fyrir því, að nauðsynlegt sé að stemma stigu við slíkri eyðileggingu, verðmæta. Þetta er sjálfsagt rétt. En í sambandi við verkun fóðurs í sveitum landsins fer mikið verðmæti forgörðum. Með bættum og öruggari heyverkunaraðferðum er verið að gera hið sama og fyrirhugað er með síldarsoðið. Það er verið að koma í veg fyrir, til hagsmuna fyrir bændastéttina og alla þjóðina, að næringarefni rigni niður í jörðina aftur.
Viðvíkjandi hámarkinu, sem sett er í 3. brtt., hefur því verið haldið fram, að það gæti verið vafasamt. Ég held þó, að það séu ekki margir bændur, sem eru á móti því að hafa þetta hámark. Hitt er óvarlegt, að hafa þessar greiðslur óbundnar. Ýmislegt getur komið fyrir, sem rétt er að gera ráð fyrir.