23.03.1950
Neðri deild: 73. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
43. mál, jarðræktarlög
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég hreyfði því við 3. umr., hvort brtt. 413,2 ætti að koma til atkv., þar sem sams konar till. var felld við 2. umr. Sama er að segja um brtt. á þskj. 406, þar sem samþ. voru inn í frv. við 2. umr. þær breyt., sem nú er lagt til að fella út. Leyfi ég mér að óska eftir úrskurði hæstv. forseta.