07.12.1949
Neðri deild: 8. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (952)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. Það er eins og hæstv. ráðh. segir, að það stendur svipað á um þetta frv. og það, sem var hér á undan, að það er flutt af fyrrv. ríkisstjórn.
Ástæðan til þess, að þetta frv. er flutt, er sú, að mikil þörf þykir á að ganga þannig frá þessum málum, að á þeim sé fullur hraði, þannig að bæði bændur og ríkisstj. geti unnið að því hvor á sínu sviði, að þessar framkvæmdir gangi með þeim hraða, sem nauðsynlegur þykir. Undanfarin ár hefur komizt allgóður rekspölur á skipti á sjúku fé og heilbrigðu, og verður ekki annað séð en sú reynsla, sem þegar er orðin, gefi góða von um áframhaldið. Það má segja, að til þessa hafi tekizt ágallalaust fjárskiptin á þeim svæðum, sem hafa verið tekin, og lofar sú byrjun góðu um, að það takist á ekki mjög löngum tíma að losa landið aftur við þær illræmdu sauðfjárpestir, sem hafa herjað fjárstofninn um hálfan annan áratug.
Eins og flestum er kunnugt, eru fjárskiptin það langt komin með þeim niðurskurði, sem fór fram í haust milli Héraðsvatna og Eyjafjarðar, að nú er röðin komin að Borgarfirði, og telja margir, að það sé nauðsyn að hraða sem mest niðurskurði og fjárskiptum í Borgarfirði, vegna þess að sú markalína, sem nú er milli þess sýkta svæðis og þess, sem ósjúkt er talið, er svo erfið viðfangs til varnar, að talin er stór hætta á að hafa sýkt og ósýkt fé sitt hvorum megin við hana. Og eftir því sem þeim svæðum fjölgar, sem heilbrigðan stofn hafa fengið, eru meiri líkur fyrir því, að hægt sé að fá nægilega mörg lömb til lífs, sem geri kleift að skipta á hinum sjúku svæðum, sem enn eru eftir, á mjög stuttum tíma, jafnvel 4–5 árum. En til þess að unnt sé að koma því fram, verður að skjóta einhverju af þeim byrðum, sem af því stafa yfir á næstu ár á eftir.
Heildarkostnaður, sem orðið hefur við þessi mál frá upphafi fram að árslokum 1947, er um 22 millj. kr. Miklu af þeim kostnaði var varið, á fyrstu árunum, í bætur til bænda. Ég veit ekki, hvað mikill hluti það er, en ég hygg, að þriðjungurinn af þessum 22 millj. hafi farið í þau fjárskipti, sem þá voru komin á. Árið 1948 hefur þessi kostnaður numið 5 milljónum, en 1949 nokkuð á 6. milljón. Talað er um, að það muni vera um 30 millj., sem það kosti ríkissjóð að ljúka þessum fjárskiptum. Það er gert ráð fyrir, að það verði unnt að koma þessu verki fram þannig, að fjárskiptunum sé lokið á árinu 1955, og ekki ólíklegt, að þeim yrði lokið 1954. Er þó ljóst, að ef sá hraði verður hafður á þessum málum, sem full nauðsyn er á, yrði erfitt fyrir ríkið að leggja þá upphæð fram á svo fáum árum.
Til þess að gera sér grein fyrir því, hvernig er fjárhagslega haganlegast að koma þessum málum fyrir, varð samkomulag um, að atvmrn. og fjmrh. skipaði þriggja manna n. til að endurskoða l. um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma. Formaður n. var framkvæmdastjóri sauðfjárveikivarnanna, Sæmundur Friðriksson. Með honum var skipaður maður úr Borgarfirði, Guðmundur Jónsson bóndi á Hvítárbakka, sem nú er formaður væntanlegrar fjárskiptanefndar í Borgarfirði. Hefur hann siðan mjög ráðfært sig við bændur innan þess svæðis, sem á næsta árí á að búa við þessi lög. Þriðji maðurinn var Einar Bjarnason, fulltrúi í fjmrn. N. var einhuga um till. sínar um að breyta þessum l. og hefur gert grein fyrir þeim breyt. í aths. þeim, er fylgdu frv. frá n.
Aðalbreyt. á 9. gr. er sú, að þar er nú svo fyrir mælt, að varnargirðingum skuli haldið við um óákveðinn tíma, en n. leggur til, að þeim verði haldið við á kostnað ríkissjóðs í næstu fjögur ár eftir að fjárskipti hafa farið fram, en þegar þau eru liðin og fram hefur komið, að engin veiki eigi sér þar stað, þá eigi viðkomandi hérað kost á að kaupa girðingarnar, ef það vill láta þær standa áfram.
Þá er ákvæði um breytingar á banni við að flytja fé yfir varnarlinur nema með leyfi n. Það hefur verið gerð sú breyt. að binda það við 4–6 ár eða þann tíma, sem skyldugt er að halda við varnargirðingum.
Þá er lagt til að breyta 1. málsgr. 37. gr. á þá leið að miða bótaskylda fjártölu við framtal tæpum tveimur áru,m áður en fjárskipti fara fram, í stað tæpra þriggja ára, eins og áður var. Telur n. það hagkvæmara vegna framkvæmdar l.
Þá gera þeir þá breyt. við 38. gr. að miða bætur við vænleik lamba, þar sem fjárskipti fara fram, en ekki kaup líflamba. Byggja þeir það á því, að það er afurðatapið, sem verið er að bæta, en ekki verið að greiða þau líflömb, sem keypt eru.
Þá er ein aðalbreyt., sem n. leggur til, að gera megi ráð fyrir, að bætur megi greiða að verulegu leyti með ríkisskuldabréfum, þ.e. venjulegar fjárskiptabætur með 20% og sauðleysisbætur með allt að 60% í ríkisskuldabréfum. Töldu þeir, að meðal bænda væri það svo, að þeir vildu leggja svo mikið á sig til að koma þessum fjárskiptum fram, að þeir vildu taka á sig þetta form til þess að hraða málinu, en það væri hægara fyrir ríkissjóð, ef þessar breyt. fengjust á greiðslufyrirkomulaginu.
Þá leggur n. til, að bætur séu miðaðar við sem hámark 75 kr. á kind. Það er það hæsta, sem verið hefur hingað til. Er þetta gert til þess að ríkið viti nokkurn veginn fyrir fram, hvar það stendur um þessar bætur, þegar fjárskipti standa fyrir dyrum.
Ég mun ekki rekja frekar þessar breyt. nú, en vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til hv. landbn. að þessari umr. lokinni.