18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (966)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla eigi að gera að umtalsefni nema orð hv. síðasta ræðumanns. Það var eins og ríkissjóður stæði eða félli með því, hvort 6% vextir verða greiddir af bréfunum. Ég get eigi orðið sammála því, að ríkissjóður, þótt fjárhagur hans sé þröngur, standi eða falli með þessu. En bændur skiptir þetta miklu. Þessi hv. þm. var landbrh., þegar frv. var samið, og þá voru engir vextir af bréfunum. En nú getur hann í hv. landbn. fallizt á að hafa 4% vexti. Ég held, að þessi hv. þm. hefði átt að stiga sporið til fulls og leggja til, að greiddir verði fullir vextir. Svo mikið verður greitt í skuldabréfum, að víst má telja, að bændur verði að nota bréfin sem rekstrarfé og veðsetja þau fyrir lánum. Er þá eigi um annað að ræða en taka víxillán, er kosta 7% vexti, auk framlengingargjalds. Þótt einstaka maður finnist, sem eigi þyrfti að taka lán, þá eru hinir miklu fleiri, sem svo er ástatt um, að þess verður að gæta.

Hv. þm. sagði, að á svæði, þar sem niðurskurður ætti að verða, hefðu bændur mjólkurframleiðslu sem aðalatvinnu og gætu þeir því fremur tekið þar við skuldabréfum. Kynni það svo að vera, skoðað í daufu ljósi og frá einni hlið. En þá er rétt að upplýsa, að bændur þeir, sem breytt hafa aðalatvinnurekstri sínum úr sauðfjárrækt í nautgriparækt, hafa orðið að leggja í meiri kostnað en þeir, sem eigi hafa breytt um. Þeir hafa orðið að byggja ný fjós, utan aukinnar ræktunar og meiri töðuframleiðslu en hjá hinum, sem enn búa aðallega við engjabúskap. Allt hefur orðið til þess, að þessir bændur hafa safnað skuldum vegna breyttra búnaðarhátta. Hinir, sem eiga það eftir að breyta um, og þeir eru e.t.v. fleiri, munu eiga erfiðara um þetta, nú en áður, þótt breytingin sé nauðsynleg. Mun það verða erfiðara vegna þess, að byggingarefni fer hækkandi og annar kostnaður við byggingar, áburð- arverð og kostnaðurinn við að vinna landið. Allt þetta hlýtur að kalla á aukið rekstrarfé. Því er það, að bændur þeir á mjólkursölusvæðunum, sem eru að breyta um, þurfa að nota skuldabréfin til rekstrarfjár á næstu 5 árum, og standa þeir því eigi undir því að lána ríkinu með svo lágum vöxtum sem í brtt. greinir.

Hv. þm. sagði, að það væri orðaleikur, að bændur væru að lána ríkinu. Það er bara enginn orðaleikur, því að skv. l. um niðurskurð og fjárskipti er ríkissjóður skyldur að greiða bændum bætur í peningum og hefur gert það. Hefur ekkert staðið á ríkissjóði í því efni. Nú, þegar breyta á um í 5 ára skuldabréf, þá eru bændur að lána ríkinu féð, til þess að hægt verði að halda framkvæmdum áfram með sama hraða. Breytir það engu, þótt bændur geri sjálfir sín vegna ráðstafanir til að skapa öryggi í framleiðslunni. Þetta breytir eigi því, að skv. gildandi l. er ríkissjóður skyldur til að greiða bætur í peningum, þær er þar um ræðir. Annars eru þessi 2% eigi sú fjárhæð, sem getur komið ríkissjóði á hné. Ég veit eigi, hverju það kemur til með að nema á ári. Við getum hugsað okkur 3–5 millj. kr., og 2% af því vita allir, hvað er, 60–100 þús. kr. Bændur munar um það, hvort þeir þurfa að borga þennan vaxtamismun, þegar þeir fara í banka. Nú er hækkað hlutfall í bréfunum, en eigi hefur neitt verið séð að athuga við það, þótt horfið væri að því að greiða með ríkisskuldabréfum. Það er ill nauðsyn, því að ríkið þarf á þessu að halda. En það er deilt um hitt, hvort bændur skuli lána féð með betri kjörum, en þeir eiga kost á að fá annars staðar. Ég held, að séu vextirnir sæmilegir, 6%, þá muni bændur geta notfært sér þessi bréf, því að þau verða tekin gild. Mun þá eigi koma að sök, ef bændur verða eigi að gefa stóra fjárhæð með þeim í vaxtamismun.

Þá var minnzt á till. þremenninganna, bæði af hv. 1. flm. og hv. frsm. landbn., og er ég mikið sammála hv. frsm. Ég hlustaði á ræðu hv. 2. þm. Skagf. (JS), það sem hann sagði um till., og verð ég að segja, að ég tel þann málflutning mjög vafasaman og þau rök hans, að vegna þess, að Skagfirðingar og aðrir norðanlands hafi samþykkt niðurskurð áður en þessi till. kom fram um breyt. á gildandi l., þá eigi þeir rétt á því að gera kröfur á ríkissjóð eftir gömlu l., eða m.ö.o. geti þeir krafizt að fá peningagreiðslur eingöngu. Það er vitað mál, að gengið var, um leið og byrjað var á niðurskurðinum, út frá því, að hann yrði framkvæmdur alls staðar þar, sem pestin hefði gert vart við sig, og ég get sagt, þótt atkvgr. hafi farið fram um það, að skorið yrði niður, að þá sé það aðeins pro forma, þ.e. fyrir siðasakir. Niðurskurðurinn var alls staðar samþykktur, því að bændur eiga eigi annars völ. Bændur vilja eigi ala þennan orm við brjóst sér. Þegar þeir svo missa þriðju hverja kind og niður í aðra hverja kind á ári úr pestinni, þá hljóta þeir að samþykkja niðurskurð. Þótt atkvgr. hafi eigi enn farið fram um niðurskurð í Mýrasýslu, Borgarfjarðarsýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og e.t.v. Vestur-Skaftafellssýslu, þá hlýtur það að verða gert, til þess líka að tryggja þau héruð, sem þegar hefur verið skorið niður í. Þegar málið er skoðað í réttu ljósi, kemur á daginn, að réttur þeirra, sem skáru niður á s.l. hausti, kröfur þeirra um greiðslur úr ríkissjóði geta eigi orðið hærri. Þessi till. á því engan rétt á sér, og er hún sprottin rétt af áhuga á velferð kjósenda, en er menn fara að athuga hana, þá hljóta þeir að sannfærast um, að hún er ekki réttlætismál. Tek ég undir með hv. þm. Mýr., að það getur eigi orðið hv. flm. hennar til sæmdar að halda henni fram til streitu.

Ég get þá lokið máli mínu, en vil enn fara þess á leit við hið háa Alþ., að það sýni þá sanngirni að samþykkja brtt. mína á þskj. 543.