18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (967)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Ég verð að svara nokkrum orðum og leiðrétta misskilning. Byrja ég þá á hv. síðasta ræðumanni, þar sem hann leggur mér þau orð í munn, að höfuðástæða okkar flm. þessarar brtt. væri sú, að fjárskipti hefðu verið framkvæmd áður en þetta frv. kom fram. En hún er eigi sú, heldur önnur. Ástæðan til, að ég tel, að þessum mönnum beri annar réttur en þeim, er síðar hafa samþykkt, er sú, að þeir hafa fengið samþykktir sínar staðfestar af stjórnarráðinu varðandi þær bætur, sem hafa gilt, og hljóta þeir að ganga út frá því, að þeir fái þær bætur, sem hafa gilt undanfarið. Þetta er ástæðan, nefnilega, að allt annað hefur gilt um þetta, þótt nú komi til með að gilda annað og allt aðrir aðilar komi til. Það er þetta, sem ég tel, að sé þungamiðjan í málinu og geri það vafasamt vegna samþykkta frá hinu opinbera, að l. eigi að verka aftur fyrir sig.
Þá vil ég víkja að hv. þm. Mýr. (BÁ). Hann sagði, að þessir bændur, sem við sæktum þetta fyrir, væru settir skör hærra en hinir. En þetta er misskilningur. Fjöldi bænda er búinn að lóga fé sínu undanfarið. Allir hafa þeir fengið þær bætur, sem við förum fram á, að þeim verði ekki afsalað, og aðeins fram á það, er þeir eiga rétt á. Þeir hafa því sömu aðstöðu og Vestur-Húnvetningar, Dalamenn, Strandamenn og Þingeyingar og Eyfirðingar austan Eyjafjarðar. Þetta vildi ég leiðrétta. En svo vil ég bæta við. Allir, sem fjárskipti hafa farið fram hjá og sætt hafa þessum kjörum, hafa fengið fé sama haustið. En þar, sem nú á að taka þetta fé, sem við teljum, að sömu bætur eigi að koma fyrir, er mönnum gert að skyldu að vera sauðlausir í eitt ár. Það er munur, hvort menn eru framleiðslulausir í eitt ár eða þeir fá lömb sama haustið. Ég tel því ólíku hér saman að jafna, þegar borinn er saman hlutur þessara manna, Skagfirðinga og Eyfirðinga, sem eiga að fá skuldabréfin, og bænda, er fengið hafa þessar bætur og lömbin og allt í peningum. Ég er hræddur um, að þeim þyki þeir eigi hafa verið settir við háborðið, heldur hafi hér verið misskipt gæðum. Þá sagði hv. ræðumaður, að þessir menn hefðu engan þunga borið af veikinni. Ég tel sveitir, sem eigi hafa fengið veikina, en líka þær, þar sem búið er að skera niður tvisvar til þrisvar sinnum. Og hvernig mun búskapurinn vera orðinn þá? Þetta er staðreynd, sem fyrir liggur.
Að lokum sagði hv. ræðumaður, að bændur mættu þakka fyrir að fá 5 ára 4% skuldabréf. Já, það getur verið, að svo sé, en ég hygg þó, að hafi prívatmaður gert samning, þá yrði honum haldið að honum og gert að skyldu að uppfylla hann. Hitt er annað mál, að sé um hálfgert gjaldþrot að ræða, þá neyðast menn til að gera ýmislegt, þ. á m. að taka við skuldabréfum. En annars skal ég ekki ræða það mál frekar.
M.ö.o.: Það er svo langt frá því, að það sé einhver fjarstæða, er við flytjum, að þetta er sanngirnismál. Og ég endurtek, að ég efast um, að hv. þm., hefðu þeir gert slíkan samning, mundu telja sér sæmandi að færast undan að uppfylla hann.