18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (968)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Pétur Ottesen:
Ég þarf ekki að fjölyrða mikið um þetta mál. Ég er í hópi þeirra bænda, sem undanfarna tvo áratugi hafa átt við fjárpestina að búa. Er eðlilegt, að þeir, sem á þeim svæðum búa, eigi um sárt að binda, og hefði verið eðlilegt, þegar snúið var að því að stofna til fjárskipta, sem hér er um að ræða, að byrjað hefði verið á þeim svæðum, sem lengst hafa búið við veikina. Þetta hefur nú ekki verið þannig. Það var hafizt handa á Norðurlandi um þessi fjárskipti og þeim haldið áfram suður á bóginn, og niðurstaðan af því verður sú, að síðast verður skorið niður hjá þeim, sem lengst hafa búið við veikina. Þess vegna er ákaflega einkennilegt, að till. skuli koma fram á Alþ. um að gera hlut þeirra manna í sambandi við fjárskiptin verri, en nokkurra annarra. Og ég verð að segja, að þessi till., sem þessir þremenningar standa að hér, kom mér ákaflega á óvart, frá þessu sjónarmiði séð, og þá ekki síður út frá sjónarmiði þess, sem á undan er gengið í meðferð þessa máls, því að ég hef haft aðstöðu til þess að fylgjast með gangi þessa máls frá því að það var borið fram í þinginu fyrst og til þessa tíma og þar með meðferð málsins í landbn., meðan ég átti þar sæti. Það var nú svo þar litið á þetta frv., sem hér liggur fyrir, eins og af hæstv. ríkisstj., sem bar þetta fram; og að frv. var borið fram af ríkisstj., var nokkurn veginn trygging fyrir því, að ekki væri verið að stofna til lögbrota með flutningi frv., eins og mér virðist þó vera haldið fram af þessum þremenningum, sem að brtt. á þskj. 529 standa, a.m.k. eins og hv. 2. þm. Skagf. hefur haldið fram hér, að mér virðist. Að þetta er stjfrv., ætti nokkurn veginn að öryggja það, að með flutningi þess væri ekki brotið í bága við stjórnarskrá landsins eða aðrar lagasamþykktir. Það er því óþarfi að ræða málið út frá því sjónarmiði. En hv. 2. þm. Skagf. heldur því fram, að eiginlega byggist þessi till. þeirra þremenninganna á því, að hér sé í frv. um eitthvert samningsbrot, ef ekki lögbrot að ræða gagnvart þeim mönnum, sem þeir vilja undanþiggja þeim ákvæðum, sem stofnað er til með frv. að taka í lög um greiðslu á þessum bótum. Hv. 2. þm. Skagf. sagði, að hér gegndi allt öðru máli um þá menn. Að hverju leyti gegnir hér allt öðru máli? Það gegnir þannig öðru máli í þessu, að nokkur hluti þeirra manna, sem þeir hv. flm. brtt. vilja, að bæturnar verði greiddar af hendi strax til, þeir hafa aldrei búið við neinar fjárpestir. Aðrir þeirra manna hafa gert það um skemmri tíma, en Sunnlendingar, og af því stafar vitanlega sú tregða, sem varð á því að koma á niðurskurði í t.d. nokkrum hluta Eyjafjarðarsýslu, að þeir, sem þar bjuggu, höfðu svo að segja ekkert af fjárpestum haft að segja. Þeir höfðu notið þess hagnaðar óskerts, sem af því var hægt að hafa að reka sauðfjárbúskap á stríðsárunum, meðan hinir, sem þrátt fyrir það að þeir settu á allan gimbrastofninn, höfðu ekki getað haldið fjárstofninum við, heldur urðu að horfa upp á, að alltaf hrakaði möguleikunum til sauðfjárbúskapar í þeirra byggðarlagi, sem hefur orðið til þess, að margir þeirra hafa orðið sauðlausir og búa ekki við sauðfjárbúskap og hafa ekki gert það um nokkur ár. Þarna koma fram mjög mismunandi aðstæður hjá þessum mönnum, sem ég talaði um nú síðast, og hjá hinum, sem hv. 2. þm. Skagf. ber fyrir brjósti og hans meðflm. að brtt. En þessari mismunandi aðstöðu vill hv. 2. þm. Skagf. mæta með því að gera, viðkomandi bótagreiðslum í sambandi við fjárskiptin, hlut Sunnlendinga lakari, en þeirra manna, sem sumir hafa aldrei borið neinn halla af fjárpestunum og aðrir um tiltölulega skamman tíma. Það felst því að þessu leyti til ranglæti í till. þeirra þremenninganna. — Og að hér sé um samningsbrot að ræða, því vil ég gersamlega mótmæla. Þessi lög eru þannig byggð upp, að það var ekki tilætlunin að þvinga menn með l. til þess að framkvæma hjá þeim niðurskurð á fé. Þess vegna felur löggjöfin í sér heimild til handa þessum mönnum um það, að þeir geri hjá sér samþykktir um það, hvort niðurskurður fari fram hjá þeim eða ekki. Nú hefur þetta gengið þannig til á öllum öðrum svæðum, en í Eyjafirði, — því að þar hafa fjárpestir lítinn usla gert —, þar sem brtt. tekur til, að þar hafa menn menn sótt um að fá fjárskipti, af því að það hefur verið grundvöllur þess, að nokkur tök væru á því að reka sauðfjárbúskap á þessum svæðum. Og ásóknin hefur verið svo mikil um að fá fjárskiptin, að fjárframlög þau, sem ríkinu er ætlað að greiða í þessu sambandi, hafa verið það mikil með svo örum fjárskiptum, að eins og komið var þegar fjárlagafrv. það, sem nú liggur fyrir, var samið, þótti ekki tiltækilegt að ætla svo stóra fjárfúlgu á fjárl. eins og verið hefur á undanförnum árum, nema með því að breyta löggjöfinni í það form, að greiðslufrestur alllangur yrði á þessum fjárframlögum ríkisins. Og landbn. fékk þetta mál til meðferðar og var sammála ríkisstj. um, að þessu yrði að mæta, það yrði að halda áfram fjárskiptunum, því að það er prinsipmál, ekki aðeins fyrir þá, sem fjárskipti eiga eftir að fara fram hjá, heldur líka fyrir hina, sem búnir eru að skipta um sauðfjárstofn hjá sér, til þess að öryggja það, að veikin berist ekki aftur inn á fjárskiptasvæði, þar sem búið er að skipta um fjárstofninn. Það eru sameiginlegir hagsmunir þessara manna, sem þarna er um að ræða. Og landbn. féllst einróma á að leggja til, að frv. þetta, eins og það er flutt af ríkisstj., yrði samþ., og afgreiddi málið þannig til hv. þd., að gert var ráð fyrir, að þessar bætur væru borgaðar í skuldabréfum, eins og í frv. er gert ráð fyrir, og að þessi bréf yrðu vaxtalaus. Og að málinu stóðu í landbn. einmitt tveir af þessum hv. þm., sem flytja þessa brtt: Það bar aðeins á góma í n., sem í þeirra till. felst. En það kom fullkomin viðurkenning fram í n. af hálfu beggja þessara manna á því, að það væri ekki sanngjarnt að gera þennan mun. (Forsrh.: Þetta er ekki rétt.) Þetta kom fram í landbúnaðarn. Hitt er fyrir sinnaskipti, sem hafa orðið síðan málið var til umr. í n. og samkomulag fékkst um málið í landbn. um þær breyt., sem till. liggur hér fyrir um frá n. í heild.
Ég vil fara nokkrum orðum um það, hvort hér sé um samningsbrot að ræða, ef frv. þetta yrði samþ. Ég get ekki litið þannig á, að svo sé. Lögin um fjárskipti eru byggð þannig upp, að frjálst val er um það, hvort menn láti fara fram fjárskipti hjá sér á ákveðnum svæðum, og þegar það er samþ. á vissu svæði, að svo skuli gert, tekur sauðfjársjúkdómanefnd málið til meðferðar og hefur um það atkvæðisrétt að staðfesta slíka samþykkt. En nú skulum við bara athuga það, hve algengt það er hér á Alþ. að gera lagabreyt., sem hafa margvísleg áhrif á efnahagsafkomu landsmanna og á þær fyrirætlanir, sem landsmenn eru búnir að gera, þegar þeir verða svo að mæta þessum lagabreyt. Slíkt er blátt áfram daglegt brauð hér á Alþ., að lögum sé breytt, þannig að lagabreytingarnar hafi nákvæmlega sams konar afleiðingar og þær, sem hér er um að ræða. Þess vegna er hér ekki um neitt samningsrof að ræða. Það er ekki um neina samninga að ræða og ekki heldur um brot á samningum að ræða í sambandi við samþykktir, sem gerðar hafa verið hér að lútandi. Og hver er aðstaða þeirra, sem eiga eftir, að fjárskipti fari fram hjá þeim, og lengst hafa búið við fjárpestirnar og beðið mest afhroð vegna þeirra? Eiga þeir eitthvert frjálst val í þessu efni? Hvað er fyrir þá annað að gera en að hlíta hverju því, sem sett er í lög í sambandi við þetta? Þó að löggjöfin væri svo sett þannig, að kippt væri í burt ákvæðunum um bætur, þannig að ekki væri um neinn stuðning að ræða frá því opinbera, þá verða þeir að framkvæma fjárskipti fyrir því, af því að óverjandi er að hafa það ástand, sem nú er í þessu efni. Sumir á þessum fjárpestarsvæðum hafa bjargað við hag sínum með því að auka kúabúin og hafa bjargað afkomu sinni með því. En á þessum svæðum, engu síður en á Norðurlandi, eru víða mjög góð skilyrði til sauðfjárræktar. Og þrátt fyrir það að kúabúin hafa verið aukin þar á undanförnum árum, er þar víða svo háttað um jarðir, að þar mundi sauðfjárrækt með heilbrigðum fjárstofni verða arðsamari atvinnurekstur, en það að reka kúabú, og reynslan hefur sýnt, að með þeim hætti mundi sauðfjárrækt gefa mun betri arð, en mjólkurframleiðsla. Og þess vegna er það svo á þessum svæðum, þar sem eftir er að skipta um fjárstofn, að ef ekki er hægt að reisa þar upp sauðfjárbúskap piltur, þá munu mjög grisjast fylkingar bænda, sem búa á þessum svæðum. Þess vegna eiga þeir menn, sem þarna vilja vera, einskis úrkostar annars, en að hafa fjárskipti, hvort sem þeir fá stuðning til þess eða ekki. Og hvaða sanngirni er það þá, þegar hag ríkissjóðs er þannig háttað, að það verður að gera ráðstafanir til þess að dreifa á fleiri ár, en verið hefur kostnaðinum við fjárskiptin, - er það þá sanngjarnt, að þessi dreifing á kostnaðinum til 8–10 ára eigi aðeins að bitna á þeim, sem eftir eru með fjárskipti, en ekki þeim, sem þegar hafa verið ákveðin fjárskipti hjá? Nei, þetta væri sú fyllsta ósanngirni, sem felst í till., og mig furðar á, að hún skuli koma fram, og því meir á því, frá hverjum hún kemur fram, því að fullkomin viðurkenning var á því komin fram hjá þeim, sem ræddu um þetta mál í n. og þegar rætt var við sendimenn frá Norðurlandi og líka þegar stjórnin ræddi við n. beggja d. um málið, að sanngjarnt væri, að það gengi það sama yfir þá, sem um er að ræða í þessari brtt., eins og hina, sem eiga alveg eftir að framkvæma fjárskipti hjá sér. Enda geri ég ráð fyrir því, að þessi brtt. þeirra hv. þremenninganna sé helzt borin fram sem einhver sýndartill., en að það sé ekki þannig, að hv. flm. detti í hug, að þessi till. verði samþ. á Alþ., því að ég legg ekkert upp úr því, sem í till. er og hv. 2. þm. Skagf. talaði um, að það ætti svo að vinna að því á bak við tjöldin eða eftir á, að þessir menn, sem ekki væru skyldaðir til þess að taka við bréfum frá ríkissjóði sem greiðslu á bótunum, tækju við þessum bréfum sem slíkum greiðslum, með því að fara að þeim bónarveginn, svo að þeir fengju sams konar greiðslur og þeir munu eiga að fá, sem búa á þeim svæðum, þar sem eftir er með öllu að gera ráðstafanir til þess, að fjárskipti fari þar fram, enda eru kröfurnar frá þeim mönnum, sem um ræðir í brtt., þannig, að þeir vilja fá þetta bótafé án tafar. Hv. 2. þm. Skagf. hneykslaðist á því, að hv. þm. Mýr. sagði, að þessir menn, sem um er að ræða í brtt., væru hærra settir, ef brtt. væri samþ., heldur en aðrir, og tók hv. 2. þm. Skagf. í því sambandi til þá menn, sem hafa framkvæmt fjárskipti hjá sér. Það var ekki heldur meiningin, að þeir væru neitt hærra settir ,en þeir menn, sem fjárskipti hafa ekki farið fram hjá. Og hv. 2. þm. Skagf. minntist í því sambandi á Dalasýslu. Það er búið að skipta í öllum hreppum þeirrar sýslu nema þremur. Og er það þá sanngjarnt, að þeir, sem búið er að framkvæma fjárskiptin hjá, eigi að fá allt bótaféð greitt undireins og hinir, sem eftir eiga að hafa. fjárskipti hjá sér, að fá þetta á tíu árum? Er aðstaða þeirra, sem eru í þessum. þremur hreppum, svo miklu betri, að rétt sé að gera þennan mun á þeim? Það var ágætt, að minnzt var á þetta, því að þarna er um aðstöðumun að ræða innan einnar ákveðinnar sýslu.
Það er rétt að geta þess, að hv. 2. þm. Skagf. sagði, að ýmsir menn á þessum fjárskiptasvæðum yrðu að vera eitt ár sauðlausir og fengju ekki fé sama haustið sem niðurskurður færi fram. Þetta hefur nú víða verið svo. En þá fá menn bætur það árið, sem þeir hafa ekki sauðfjárafurðaframleiðslu. En þetta léttir ekki heldur samanburðinn fyrir hv. 2. þm. Skagf. viðkomandi þeim, sem eiga eftir að framkvæma niðurskurð og fjárskipti hjá sér. Því að ef svo fer sem nú er ráðgert, að fjárskipti fari fram í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum og þremur hreppum í Dalasýslu og þremur hreppum í Snæfellsnessýslu, á næsta hausti, þá er vitað, að það verður svo eða svo mikill hluti bænda á þessum svæðum að vera sauðlaus í heilt ár, svo að í því efni hallast ekkert á gagnvart því, sem framkvæmt hefur verið í sambandi við fjárskipti á undanförnum árum. Og svo gæti einnig farið á þeim svæðum, þar sem fjárskipti fara fram eftirleiðis, t.d. í Árnessýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu, sem yrðu þá sennilega sameiginlegt svæði í sambandi við fjárskiptin, þó að hins vegar vaxi líkurnar fyrir því, að hægt sé að fá ósjúkt fé inn á fjárskiptasvæði, eftir því sem fjárskipti fara fram á stærri svæðum á landinu. En það er vitað, að á næsta hausti er ekki hægt að fá á þetta fyrirhugaða fjárskiptasvæði nema nokkurn hluta þess lambastofns, sem lög gera ráð fyrir, að bændur fái stuðning til þess að kaupa. Það er vitað mál, og þeir, sem á þessum svæðum eru, ganga ekki að því gruflandi. Sauðfjársjúkdómanefnd, sem hefur alla þræði þessara mála í sínum höndum, hefur upplýst, að það er ekki hægt að láta í té á þessi svæði nema hluta af þessum fjárstofni, sem annars mundi koma styrkur á, á þessum svæðum, ef fyrir hendi væri til kaups. Svo að það er ekki neinn munur í þessu sambandi, sem hægt er að benda á til stuðnings frekari kröfum til handa þessum. mönnum, sem í till. er um að ræða, heldur en viðkomandi bótakröfum til hinna, sem eftir eiga að hefja framkvæmdir um fjárskipti hjá sér. — Annars er í frv. ekki gerður neinn munur á fríðindum til þeirra, sem hafa fjárskipti hjá sér. Þau eiga að falla jafnt í skaut þeirra manna, sem eiga eftir að framkvæma fjárskipti hjá sér, eins og hinna, sem búnir eru að því. Að þessu leyti eru till. í frv. byggðar á jafnréttisgrundvelli, eins og frv. ber með sér og hv. þm. Mýr. hefur þegar gert skýra grein. fyrir.
Ég vildi nú láta koma hér fram mitt álit um þessa brtt., þó að ég félli upphaflega frá orðinu, eftir að hv. þm. Mýr. hafði gert þessari till. góð skil. En mér fannst rétt, þegar gerð var tilraun til þess að hnekkja því, sem hv. þm. Mýr. sagði, á nýjan leik, að segja það, sem mér býr í brjósti um þessa brtt., og það hef ég gert hér með.