18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (969)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Pétur Ottesen:
Það er mikill misskilningur hjá hæstv. forsrh., að hér sé um nokkurt samningsbrot að ræða gagnvart þessum mönnum, frekar en þeim, sem fjárskipti hafa ekki farið fram hjá, enn þá. Á þessu er enginn minnsti munur. Hæstv. forsrh. líkti þessu við kaupsamning og tók ákveðið dæmi. Ef hann keypti af mér mína jörð, væri þarna um að ræða frjálsa samninga, og það er rétt, en þetta nær ekki til þessa. Hvar er þetta frjálsa val, sem við höfum, sem búum á þeim svæðum, þar sem fjárskipti hafa ekki farið fram? Nei, sannleikurinn er sá, að aðstaða okkar og þeirra fyrir norðan er alveg sú sama. Við verðum eins og þeir að beygja okkur undir þær kringumstæður, að hér verði að gera afbrigði frá löggjöfinni, og er því enginn fótur fyrir því hjá hæstv. forsrh., að hér sé nokkur munur á. Ég þarf svo ekki frekar um þetta að ræða. Slíkt hið sama tók hv. þm. Mýr. (BÁ) einnig mjög greinilega fram, og það er um þetta, sem atkvgr. snýst, hvort alþm. vilja gera þessum mönnum hærra undir höfði en hinum, sem fjárskipti eiga eftir að fara fram hjá.
Hæstv. forsrh. hélt því fram, að ég hefði sagt, að Skagfirðingar hefðu ekki neitt orðið fyrir barðinu á þessari fjárpest. Ég sagði, að Skagfirðingar hefðu búið allskemmri tíma við þessa fjárpest, en Sunnlendingar, og það skipti mörgum árum frá því að fjárpestin kom á Suðurland og þar til hún barst til Norðurlands, og á þessum samanburði byggði ég þau ummæli mín, að hjá þeim á Suðurlandi, sem hefðu búið við þetta lengst allra manna, færu skiptin fram síðast. Hitt voru svo undantekningar, með ýmsa í Borgarfirði, sem höfðu ekkert af fjárpestinni að segja, enda hafa þeir kannske verið allra manna kröfuharðastir um það, að þeir þyrftu ekki að liða ríkissjóð um neitt af þessum greiðslum, og það voru þeir, sem voru búnir að standa á móti þeirri nauðsynlegu ráðstöfun allt árið eða lengur, að fjárskipti færu fram á þessu svæði. Þetta vildi ég hér með leiðrétta, því að hæstv. forsrh. lagði allt aðra meiningu í ummæli mín í þessum efnum, en í þeim fólst.
Það getur engan veginn talizt sanngjarnt að fara að gera upp á milli manna í þessum efnum, hvort sem búið er að gera samþykktir og fá þær staðfestar eða eftir er að gera þessar samþykktir og fá þær staðfestar, af því að aðstöðumunur fyrir þessa aðila er enginn að þessu leyti. En ástæðurnar eru að því leyti erfiðari hjá þeim, sem búa á svæðum, þar sem fjárskipti hafa ekki farið fram, að þeir eru lengur þjakaðir af því að búa við veikan fjárstofn og sumir um nokkur ár við engan fjárstofn eða gersamlega fjárlausir, af því að það var ekki vinnandi vegur fyrir þá, eins og veikinni var háttað, að reka með þessu bústofn áfram. Og það er þess að vænta, að hv. d. standi við atkvgr. þessa máls á þessum réttlætisgrundvelli, jafnframt því sem hún ljær þeim till. lið, sem miða að því að létta aðstöðuna fyrir þá óhamingjusömu bændur, sem hafa orðið fyrir barðinu á fjárpestinni, og samþykki hinar sameiginlegu brtt. n., sem gera ekkert upp á milli manna í þessum efnum eða upp á milli þeirra, sem eiga eftir að fá greiddar bætur úr öryggissjóði.