18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (970)
46. mál, sauðfjársjúkdómar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég hef því miður ekki getað verið við þessar umr. og hef því ekki hlýtt á annað í þeim, en síðari hluta ræðu hv. þm. Borgf. (PO). En málið er þess eðlis, að það snertir mjög það kjördæmi, sem ég á að gæta réttar fyrir hér á Alþ. bæði fjárhagslega og ég vil segja réttarfarslega líka — og ég legg enn meiri áherzlu á það síðar talda —, og þess vegna er mér ómögulegt annað, en að fara um það nokkrum orðum.
Ég verð að segja það, að mig undraði allmjög sumt af því, sem kom fram í ræðu hv. þm. Borgf., eins og ég skal koma að síðar. Annars vil ég leyfa mér að segja það almennt um málið, að frv., eins og það kom fyrst fram, var virðingarverð tilraun til þess að leysa stórt vandamál, og ég er sammála hv. þm. Borgf. og þeim, sem hér hafa aðrir talað, um nauðsynina á þessu. Það er nauðsyn á að hraða fjárskiptunum, eftir því sem unnt er. Og það getur verið nauðsyn á að gera breyt. á núgildandi l., til þess að flýta þeim fjárskiptum, eftir því sem ástæður eru fyrir hendi og unnt er að gera. En þetta getur hæstv. Alþ. aldrei gert með því að brjóta á móti rétti manna, með því að svíkja gerða samninga og koma aftan að mönnum, sem búið er að semja við, sem sagt, með því að svíkja gerða samninga við þá. Alþ. getur aldrei leyft sér að gera slíka hluti, þó að hægt væri að spara nokkurt fé með því. Þetta vil ég leyfa mér að taka fram almennt um þetta atriði, en mun koma að sérstökum atriðum málsins síðar.
Ég vil þá fyrst fara nokkrum orðum um það, sem hv. þm. sagði um afskipti landbn. af málinu. Mér virtist, að hv. þm. Borgf. gerði hvað eftir annað tilraun til þess að gera afstöðu okkar þm. Skagf. tortryggilega gagnvart meðferð málsins í n. og gagnvart því, hvaða afstöðu við hefðum tekið til málsins þar. Þetta undrar mig, að hv. þm. skuli gera. Hann vissi, að samkomulag var um það að sleppa frv. í gegnum 2. umr. málsins með mjög litlum breyt., og það samkomulag gerði ég og hv. 2. þm. Skagf. með það fyrir augum að vera ekki að óþörfu að tefja málið. Hins vegar gerðum við það, sem þm. Skagf. bar að gera í þessu máli, því að Skagfirðingar eiga svo mikið undir því, hvernig málið verður afgreitt, og það var, að við gerðum heima fyrir í héraðinu ljóst, hvað hér var á ferðinni. Hefði fjárskiptafélagið fyrir norðan getað fallizt á frv. eins og það var og viljað sjálfviljuglega taka á sig þær byrðar, sem þar átti að leggja á þá, eða svipta þá þeim rétti, sem þar var um að ræða að svipta þá, þá ætluðum við þm. Skagf. ekki að vera Þrándur í Götu fyrir slíku. En það var þannig tekið á þessu máli um allt fjárskiptasvæðið fyrir norðan, að það var algerlega óstætt á þessu fyrir okkur sem þm. þess kjördæmis, sem hvað mest átti þarna í hlut. Og sama hygg ég, að hv. þm. Eyf. segi um þann hluta fjárskiptasvæðisins, sem liggur innan þeirra kjördæmis. Mér var ljóst frá því fyrsta, að hér var miðað að því að ganga á gerða samninga með frv., og að það var því raunverulega ekki nema ein leið til í málinu til þess að fá fram efnislega ákvæði frv., sem sé samkomulagsleiðin, þ. e. að ná samkomulagi við þessa menn, sem þarna er um að ræða og búið er að gera samninga við um fjárskipti hjá, og að þar var ekki um aðra leið að ræða. Það var á þennan hátt, sem málið lá fyrir landbn., en ekki annan. Ég var þá form. í landbn., og gerði ég það af ásettu ráði að draga málið, til þess að sjá, hvernig afstaða Skagfirðinga yrði gagnvart málinu. Og mér hefði aldrei dottið í hug að láta málið fara í gegnum d. án þess að vita áður vilja umbjóðenda minna. Og ég hefði talið, að ég hefði svikið mína umbjóðendur í fjárhagsmáli og viðkvæmu réttarmáli, ef ég hefði gengið inn á, að Alþ. sjálft bryti samning á þessum mönnum, á þann hátt, sem hér er lagt til nú í frv. En mér finnst það vera mjög óheppilegt af hv. þm. Borgf. að vera að bera okkur þm. Skagf. það á brýn, að við höfum verið með einhver sérstök óheilindi í þessu máli og ekki viljað starfa að því af fullum heilindum. Við höfum viljað ganga eins langt og mögulegt væri eftir því, að samkomulag næðist við fjárskiptasvæðin um lausn þessa máls, en ekki heldur feti lengra, því að það er ekki hægt að breyta gerðum samningum, eins og hér er um að ræða. Og það er ekkert annað en það, sem gert væri með því að samþ. frv., að ganga á gerða samninga. Hv. þm. Borgf. var að reyna að færa rök að því — en þau voru mjög veik, eins og málstaðurinn —, að hér væri ekki um samningsbrot að ræða með því að samþ. ákvæði frv. Segjum, að hér hafi verið um frjálst val að ræða. En hverju breytir það í þessu máli? Ef þm. kemur með samning til mín og spyr mig, hvort ég vilji ganga að honum, — samningurinn hljóðar um ákveðin atriði, það er sama, hvað það er —, jú, það er frjálst val, hvort ég undirskrifa samninginn eða ekki, það er rétt. En þegar búið er að undirskrifa samninginn, er ekki hægt að breyta honum, nema með því móti að fremja samningsbrot, og það hefur ríkið gert með því að viðurkenna samþykktir fjárskiptasvæðanna eins og hér er gert, því að það er ekkert annað en samningsbrot. Ég veit, að hv. þm. Borgf. (PO) mælir það af ókunnugleika, en ekki af því, að hann ætli sér að fara með rangt mál, þegar hann heldur því fram, að Skagfirðingar hafi ekki orðið fyrir barðinu á þessari veiki, heldur hafi yfirleitt haft hraustan fjárstofn og ekki orðið að gjalda afhroð vegna veikinnar. Mig undrar það, að þm., sem ætti að vera kunnugur svona hlutum, skuli láta sér svona ummæli um munn fara. Nei, þessar sveitir hafa goldið mikið afhroð af þessum ráðstöfunum og jafnvel nokkrir bændur, sem hefur verið drepið þrisvar sinnum niður fyrir, og ekki von, að þeir taki því vel, ef á að brjóta á þeim þá samninga, sem nú hafa verið við þá gerðir af hálfu ríkisins, þegar þessi síðasti niðurskurður fór fram. Hitt er rétt, að það eru vissar sveitir á þessu svæði, þar sem engin fjárpest hefur verið, en sem sagt aðrar, sem hafa goldið mjög mikið afhroð. Við þm. Skagf. gerum ekki að gamni okkar að halda á rétti þessara manna, en gerum það vegna þess, að við erum víssir um, að við stöndum hér föstum fótum og þörfin er mikil. Mér er ljós aðstaða þeirra, sem vilja flýta fjárskiptum, en get sagt hv. þm. Borgf., að það er sízt minni hætta með fátæka bændur norður í Skagafirði og Eyjafirði, sem ekkert hafa annað, en sauðfjárrækt, til að styðjast við, ef þeir eiga aðeins að fá bréf, sem óvíst er, hvort hægt sé að selja. Þá getur svo farið, að þeir kasti frá sér verkfærunum og gangi frá jörðunum, þegar þeir hafa ekki möguleika til þess að nota þessi bréf til kaupa á bústofni aftur.
Já, hv. þm. Borgf. ætlaði að gera grín að okkur þm. Skagf. og sagði, að við kæmum fram með sýndartill. og sér dytti ekki í hug, að Alþ. samþykkti aðra eins fjarstæðu og þar væri um að ræða, að hans dómi. En fjarstæðan í þessari till. er þá ekki önnur en sú, að við ætlumst til þess, að Alþingi og ríkisstjórn standi við þá samninga, sem hún á sínum tíma gerði við fjárskiptafélögin þarna í Skagafirði og Eyjafirði.
Hv. þm. Borgf. talaði töluvert um það, að engin sanngirni væri í því, að þessi — ja, við skulum segja kjaraskerðing, sem hér væri farið fram á að leggja á þau svæði, sem eftir er að hafa fjárskipti á, með því að greiða þeim að einhverju leyti lægri bætur, — það væri engin meining, að þetta bitnaði eingöngu á þeim, sem nú ættu eftir að gera fjárskiptasamþykktir, því að það væri algerlega ranglátt, og virtist þm. þá vera hægt að ná fullu réttlæti með því einu að taka þessi fjárskiptasvæði, sem ekki hafa fengið fullar bætur, inn í þetta. En hví þá ekki að láta lögin ná aftur fyrir sig til allra, þar sem fjárskipti hafa faríð fram? Ef á að ná þessu fulla réttlæti, á að gera það á þann hátt, og mig undrar, að þessi maður skuli þá ekki hafa komið fram með till. í þá átt. Þetta eru því engin rök í málinu. Ég sé ekki annað en það verði að skipta þessu í tvennt. Annars vegar þau fjárskiptasvæði, þar sem búið er að gera löglegar fjárskiptasamþykktir, og það skiptir engu máli, hvort búið er að greiða bæturnar að fullu. Ríkissjóður er búinn að gangast undir ákveðna kvöð í þessum efnum, en hitt er aukaatriði, hvort búið er að greiða það að fullu. Hins vegar eru svo þau svæði, sem eiga eftir að gera sínar samþykktir. Hitt er rangt, að ætla að flokka þetta á þann hátt, sem meiri hl. landbn. vill vera láta.
Ég hef með þessum fáu orðum viljað leyfa mér að gera grein fyrir því, hvernig á því stendur, að við þm. Skagf. og hv. 2. þm. Eyf. (StSt) berum fram þessa brtt. á þskj. 529. Ég skal enn taka það fram, að það er á engan hátt af því, að ég skilji ekki mikilvægi þess, að fjárskiptum þessum sé flýtt, og afstöðu þeirra hv. þm., sem telja ríka nauðsyn fyrir því. En eins og ég tók fram í upphafi máls míns, álít ég, að Alþingi geti aldrei keypt það svo dýru verði, að það raunverulega brjóti gerða samninga á mönnum. Mér er ómögulegt að fylgja því. Ég er sannfærður um, að það, sem hv. þm. Borgf. sagði, að enginn þm. mundi fást til að fylgja till. okkar þremenninganna, mun ekki reynast svo. Þegar þm. hafa kynnt sér málið ofan í kjölinn og sjá, hvernig það liggur, finnst mér óhugsandi annað, en þeir fallist á þessa till. Ég skal svo bjóða fram aðstoð mína, og um hv. samþm. minn veit ég, að hann mun beita sér í þessu máli, hann er ekki gjarn á að bera fram meiri kröfur, en réttmætt er, hvorki í þessum efnum né öðrum, — til þess að hægt sé a.m.k. að ná nokkru samkomulagi um það, að fjárskiptasvæðin þarna taki eitthvað af bréfum.
Ég skal nú ekki tefja þetta frekar og læt máli mínu lokið.