18.04.1950
Neðri deild: 85. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (972)

46. mál, sauðfjársjúkdómar

Jón Sigurðsson:

Herra forseti. Hv. þm. Borgf. (PO) talaði um, að ég hefði breytt um skoðun frá því, er ég var með fulltrúunum á fundi, því að þá hefði ég komið ákveðið fram, en nú kvæði við annan tón. Ég hef alltaf sagt, að norðanmenn teldu fjárskiptin nauðsyn, og ég taldi það skyldu mína að koma mönnum til að líta á þá hlið málsins, að hér væri um framkvæmdir að ræða, sem þyrfti að flýta, og taldi skyldu mína að draga þessa hlið fram og eigi ástæðu til að ýta undir menn um að koma með frekari kröfur en þetta, og það réð afstöðu minni. Ég tel fulla þörf á að hraða þessum aðgerðum og vil leggja minn skerf til að það geti orðið, þó að ég vilji ekki láta bregða gerðum samningum. Hv. þm. Mýr. (BÁ) sagðist ekki geta borið þá, sem búnir eru, að lóga fé sínu og fá fullar bætur, saman við hina, en ég vil benda honum á hina, sem eru búnir að lóga og eiga ekki að fá fulla greiðslu, en geta borið sig saman við nágranna sína, sem hafa sömu aðstöðu, en hafa fengið fullar bætur. Það, sem aðaltogstreitan stendur um, er það, hvort undirskrift ráðh., sem gerð er eftir gildandi l., hafi gildi eða ekki. Ég fyrir mitt leyti er ekki í vafa um, að hún hefur gildi. Hitt er annað mál, að verið getur, að aðrir komi á eftir og heimti hið sama, en mér finnst það engin ástæða til að rifta gerðum samningum, og tel ég það óeðlilegt og okkur algerlega ósæmandi.