18.12.1950
Efri deild: 43. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)
41. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Það er hér lagt til af ríkisstj., að dómaraembættið í skattamálum verði lagt niður, en það er búið að vera í 8 ár. Hæstv. fyrrv. dómsmrh. segir, að það sé kominn tími til að leggja það niður, því þessi dómari hafi aðeins einu sinni dæmt í máli. Ég er dálítið hissa á því, að hæstv. ráðh. skuli, úr því hann fer að gefa upplýsingar, ekki fara rétt með staðreyndir, því ég hef hér plögg fyrir framan mig, sem sýna, að hér er um 3 mál að ræða; það gæti líka fleira hallazt í upplýsingum hæstv. ráðh., þegar ekki er hægt að fara rétt með,þetta atriði. Það er höfðað mál á kaupsýslumann í Vestmannaeyjum, það er höfðað mál gegn aðila hér í Reykjavík og í þriðja lagi er höfðað mál gegn iðnfyrirtæki í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Ég veit ekki, hvernig þessi mál enduðu, enda hefur hæstv. ráðh. ekki upplýst neitt um það, en hann fullyrðir að ekki hafi verið höfðað nema eitt mál við þetta embætti, en þau eru 3, ef ekki 4. Svo er hér sagt, að skattsvikarar fái ekki að leika lausum hala frekar þó skattdómaraembættið sé lagt niður, af því gefið hafi verið undir fótinn með skattsvik með aðgerðalausum skattdómara. En ég vil halda því fram, að þó það væri aldrei nema það, að skattsvikarar vissu, að þetta embætti væri til, þá gæti það út af fyrir sig gefið gott aðhald. Ég man ekki betur en ríkisstj. fengi undir lok fjárl. að bæta við einum letigarði í landinu af því að barnsfeður, í vanskilum við það opinbera vegna barnsmeðlaga, yrðu skilvísari við það að vita af letigarði, sem gæti tekið við þeim, ef þeir ekki borguðu. Eins er það með eftirlitið með skattsvikum; skattsvikararnir vita nú, að það er enginn skattdómari til lengur, og í þessu tilliti gæti aðgerðalaus skattdómari verkað eins og letigarður, þegar hið opinbera býður upp á vist. Svo segja menn, að störf hans séu ekki lögð niður, heldur fari til héraðsdómara. En góður og gegn héraðsdómari segir mér, að það sé sama sem að ætla málinu enga úrlausn, því það sé ákaflega tafsamt og erfitt í framkvæmd að ætla héraðsdómurum að eltast við skattsvikara, það þurfi að fara úr einu embættinu í annað milli margra héraðsdómara og það verði engin framkvæmd úr því, og ég þykist vera það kunnugur sveitarstjórnarmálum og skattamálum, að ég sé það í hendi mér, að það er alveg rétt, það verður engin framkvæmd í þessum málum með því að ætla héraðsdómurum það, enda er kannske ekki til þess ætlazt. Ég held líka, samkv. upplýsingum hæstv. ráðh., að fari svo, að það verði að greiða þessum dómara full embættislaun vegna ákvæða stjskr., þá geti það ekki kostað ríkið laun nema 2 ár í viðbót. En svo bendir hv. þm. Barð. á, að embættismaður eigi rétt á að sitja í embætti til sjötugs, og sé það rétt, þá eru líkur til þess, að hér sé ekki um 2 ár að ræða, heldur 7 ár. Mér finnst það því miklu betri sparnaðarráðstöfun að endurbæta þetta lagaákvæði þannig, að skattdómari flytji mál og hafi aðstöðu til að starfa þannig, að ríkisskattanefnd sé gert að skyldu að hafa samráð við skattdómara og skattanefndum og skattstjórum út um land sé gert að skyldu að hafa við hann samráð, þegar vafamál er, hvort ekki sé um skattsvik að ræða, og hann fái lagaheimild til þess að höfða mál sjálfur. En samkv. l. hefur hann engan rétt til að höfða mál, og hann hefur aldrei getað farið í mál út af skattsvikum, nema kæra hafi borizt frá einhverri skattanefnd, skattstjóra eða ríkisskattanefnd, en það hefur ekki verið kært oftar en þetta, í 3 eða 4 tilfellum. Þegar skattdómari hefur ekki rétt til að eiga frumkvæðið að l., þá finnst mér böndin berast að skattanefndum og ríkisskattan. frekar en að embættismanni, sem ekki hefur fengið heimild til þess að höfða mál, og ég fæ ekki betur séð en að það ætti að búa þannig um l., að þessi embættismaður fengi aðstöðu til áð starfa og njóta sín. Rétta svarið frá hendi Alþ., þegar hann var búinn að segja, að nærri hver maður á Íslandi væri skattsvikari, finnst mér ekki vera það að leggja embættið niður, nema því aðeins, að meiningin sé að bera blak af skattsvikurunum, heldur hitt, að skapa aðstöðu þessum embættismanni til að taka í taumana. En það hefur ekkert komið fram frá hendi ríkisstj. í þessa átt. Ég fæ ekki séð, hvaða samband er á milli þess, sem hv. þm. Barð. talaði um áðan, að vegna þess að skattal. væru brotin samkv. upplýsingum skattdómara, þá sé það eitt af mörgu, sem hnígi undir það, að það beri að afnema skattal. Vitanlega eru fjöldamörg l. brotin, og dettur þó engum í hug, að það sé sönnun þess, að það eigi að afnema þau. Fyrir mér er það bending um, að það beri að reisa rammar skorður við því, að það sé gert, og þau séu rétt framkvæmd, svo að l. nái þeim tilgangi, sem þeim er ætlað. Þetta átti að gera hér. Það hefði átt að búa svo um hnútana, að skattdómari gæti höfðað mál hvenær sem honum sýndist og kveðið upp dóma í skattamálum, en þessa heimild hefur brostið hingað til og gerir það að verkum, að ekki eingöngu er hægt að sakfella þennan embættismann um vanrækslu í störfum. Það hefur ekki verið búið að honum frá löggjafans hendi sem skyldi, en það bar Alþ. að gera.