28.11.1950
Neðri deild: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (1041)

33. mál, gengisskráning o.fl.

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að hann hefði sagt fyrir um það, þegar gengisbreytingarlögin voru til umr., að svona mundi fara. Það kann vera, að hann hafi sagt eitthvað slíkt þá, en þá var engin ástæða til að segja það. Þá var allt, sem benti á, að togararnir gætu staðið undir þessu gjaldi, og enginn vissi þá, að togarastöðvunin mundi verða eins löng og raun bar vitni, heldur var gert ráð fyrir, að hún mundi ekki vara nema skamman tíma. En svo varð sú raunin á, að stöðvunin varð miklu lengri en nokkur hafði búizt við, svo að þetta fer fyrir ofan garð og neðan hjá hv. þm. Hann segir eins og fyrr, að ekki hefði staðið á samningum milli sjómanna og útgerðarmanna, ef þessi ákvæði hefðu verið í l. Ég vil lýsa yfir, að þetta er alrangt, vegna þess að ríkisstj. tilkynnti útgerðarmönnum, þegar þetta var til umr., að ef þetta ákvæði stæði fyrir samningum, þá mundi stj. leggja til, að þessi skattur væri afnuminn. Þetta vissu útvegsmenn alltaf, svo að það varð aldrei nein hindrun fyrir, að samningar gætu tekizt.