28.11.1950
Neðri deild: 30. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í B-deild Alþingistíðinda. (1056)
33. mál, gengisskráning o.fl.
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins svara þeirri aths. hæstv. ráðh., þar sem hann gaf í skyn, að ég hefði bætt inn í till. eftir að ég fékk hana til athugunar, eftir að honum hafði láðst að athuga fyrri hluta hennar. Og ég vil bera það undir forseta, hvort ég hafi breytt þar nema einu orði, sem af vangá hafði fallið niður. — Ég sé enga ástæðu til að gefa í skyn, að ég hafi fengið till. til þess að breyta henni eftir að hún hafði komið fram.