12.12.1950
Neðri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 517 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)
20. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Frsm, minni hl. (Pétur Ottesen):
Það er aðeins fáorð aths., sem ég vil gera út af ummælum hv. frsm. meiri hl. sjútvn., þegar mál þetta var til umr. hér síðast. Hv. frsm. meiri hl. n., þm. Snæf., gat þess, að það hefði reynzt að undanförnu óhjákvæmilegt að gefa eftir nokkurn hluta af sektunum, sem átti að greiða lögum samkv. vegna brota á landhelgisl., sem framin hefðu verið af smærri bátum. Við ræddum nokkuð um þetta við 4. umr. þessa máls, ég og hæstv. dómsmrh. Og ég vil aðeins endurtaka það, sem ég hélt þá fram, að að sjálfsögðu hefði átt að láta jafnt yfir alla ganga í þessu efni og ganga jafnríkt eftir sektum fyrir brot á landhelgísl., sem framin eru af smærri og stærri skipum. Og rökstuddi ég það þá, eins og ég hef enn þá gert, með því, að sektir og sektarákvæði á að miða fyrst og fremst við það tjón, sem leiðir af framkvæmd verksins. Og ef svo yrði, eins og ég legg til, að þetta frv. nái ekki fram að ganga, þá geri ég fastlega ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. eða sá ráðh., sem hefur þessi mál með höndum, framkvæmi lögin eftir orðanna hljóðan.
Hv. frsm. meiri hl. n. vildi álíta, að ég hefði gert of mikið úr því, hve mikið væri hér af erlendum skipum kringum landið að veiðum af þessari stærð, sem frv. tekur til. Það er fjarri því, að ég hafi gert nokkuð of mikið úr þessu atriði. Það er fjöldi sjómanna víðs vegar kringum landið, sem ég hef talað við um þetta, og þeir hafa sagt mér af sinni reynslu í þessu. Og það dæmi, sem ég tók hér af Vestmannaeyjum, er rökstutt hér með því að vitna til samtala við marga formenn, sem stundað hafa veiðar við Eyjar. Og það er því vitanlegt, að svona, eins og ég lýsti við umr. hér fyrr, er ástandið um ásækni þessara erlendu botnvörpuskipa oft síðari hluta vetrarvertíðar við Vestmannaeyjar. Hv. frsm. meiri hl. sjútvn. vildi gera lítið úr því, að þessi erlendu skip, sem stunda hér botnvörpuveiðar, hefðu gerzt brotleg við landhelgislöggjöfina. Við vitum, að okkar landhelgisgæzlu er ákaflega áfátt, þannig að það er ekki nema lítill hluti af þeim brotum, sem framin eru, sem kemst upp um. Þetta liggur í því, að sú landhelgisgæzla, sem við höfum á að skipa, er ákaflega ófullnægjandi, miðað við það stóra svæði kringum allt landið, sem skipin eiga að vera til gæzlu á. Og þess vegna er það, að það er ekki nema lítill brothluti þeirra brota, sem raunverulega eru framin, sem hægt er að koma undir lög og dóm. Og þetta tekur vitanlega líka til þeirra erlendu skipa alveg eins og íslenzku skipanna, sem þessar veiðar eru stundaðar á hér við land. En þó er það alls ekki svo, að ekki hafi nokkrir bátar af þessum stærðum verið staðnir að brotum á landhelgisl. og tekið út sinn dóm, hvernig svo sem farið hefur um innheimtu sektanna. Það er mér ekki kunnugt um út af fyrir sig, hvernig farið hefur. En það leiðir af sjálfu sér, að við þá niðurfærslu, sem hér er gert ráð fyrir, að verði á sektunum, þá kemur það til greina gagnvart þeim útlendu skipum af þessari stærð, sem hér yrðu að veiðum, náttúrlega alveg eins og þeim íslenzku skipum, sem brotleg yrðu. Og tel ég, að þá linkind, sem þarna er um að ræða, beri ekki að sýna gagnvart innlendum skipum, og þá náttúrlega ekki frekar gagnvart þeim erlendu skipum, sem gera oft hér svo mikinn usla á miðunum, að allmikil hætta stafar af, þrátt fyrir það, þótt þeir, sem lögin brjóta, verði kannske ekki staðnir að lagabrotunum.
Þá er það líka svo um upphæð sektanna hjá okkur í þessu sambandi, að það, að hún er svona há, er miðað við það, hversu áfátt er okkar landhelgisgæzlu, þannig að það er gert ráð fyrir, að sektarhæðin ein út af fyrir sig dragi nokkuð úr fýsnum manna til þess að fara inn í landhelgina til ólöglegra veiða. Þetta er viðurkennt, og meira að segja hafa af skipstjórum verið látin viðurkenningarorð falla um, að það sé ekki óeðlilegt, að sektir séu allverulega miklu hærri hér en annars staðar í löndum fyrir landhelgisbrot, vegna þess að aðstæðurnar, sem eru fyrir hendi hjá okkur, eru þannig, að erfiðleikar eru mjög miklir á að gæta þess, að landhelgisl. séu í heiðri höfð.
Skal ég svo ekki eyða fleiri orðum um þetta mál. Ég þykist hafa gert, bæði í nál. og í umr., grein fyrir þeim ástæðum, sem afstaða mín til frv. þessa er byggð á.