28.11.1950
Efri deild: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

107. mál, bifreiðalög (viðurlög)

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Ég vil geta þess í sambandi við fjarveru þessa hv. þm., sem síðast talaði, af fundinum, að það gera þau tíðu mannaskipti, sem eru í hv. þd. og nefndum, að svo fór sem fór, að þessi hv. þm. var ekki viðstaddur á þessum nefndarfundi. Þessi hv. þm. tók sæti í n. vegna þess, að Brynjólfur Bjarnason veik frá þingstörfum, en varamaður hans var boðaður á þennan umrædda fund. En hv. þm., sem síðast talaði, tók svo sæti BrB í n.

Það er nú gerð grein fyrir því í grg. frv., hvers vegna frv. er borið fram, að það er bara af framkvæmdaástæðum, að farið er fram á þessa breyt., sem hér er gert ráð fyrir. Og það var sjónarmið n. og skoðun mín, að hér sé meir um smáatriði að ræða en að það sé svo ákaflega mikið verið að létta refsingar. Það verður nú kannske meir en áður lagt á vald dómara — aðeins meir en áður — hvenær skuli beita fangelsisrefsingu. En í raun og veru eru ákvæðin skýrari með þessari breyt. heldur en áður. Svo að það má um það deila, hvort í þessu felist linun refsingarinnar. Ég hygg, að n. hafi öll verið sammála um, að ekki væri ástæða til að draga úr refsingum fyrir þessi brot. En þessi breyt. þótti fara í rétta átt, m.a. vegna framkvæmdaörðugleika á þessum málum.

Ég vil svo geta þess út af því, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að n. tók í raun og veru ekki afstöðu til þess, sem þar var um að ræða, heldur var það, að henni virtist málið of viðurhlutamikið að svo komnu til að gera till. um þau atriði, sem hæstv. dómsmrh. minntist á. En n. mun að sjálfsögðu vera til viðræðna um það, sem hæstv. dómsmrh. ræddi um, hvenær sem tiltækilegt þykir.