09.01.1951
Neðri deild: 46. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

107. mál, bifreiðalög (viðurlög)

Skúli Guðmundason:

Mér þótti fróðlegt að hlýða á ræður hv. þm. Ísaf. og hæstv. dómsmrh., og verð ég að segja, að mér finnst ekki óeðlilegt, að það komi fram athugasemdir og óskir um skýringar.

Ég vil minnast á eitt atriði í greinargerð frv. Þar er unnlýst, að sakir þrengsla í fangelsum landsins hafi ekki reynzt mögulegt að fullnægja öllum þeim varðhalds- og fangelsisdómum, sem upp hafa verið kveðnir fyrir þessi brot. — Þetta kemur manni ekki á óvart. — Og grg. frv. heldur áfram: „Sá háttur hefur verið hafður á, að breyta þeirri refsingu með náðun í sektir, er miðaðar hafa verið við efnahag sökunauts.“ Nú hef ég litið svo á, — að vísu er ég ófróður um efnið, — að sektir ættu að vera ákveðnar af dómurum í landinu, en ekki af einstökum deildum í ráðuneytinu, en mér skilst, að nú sé farið út á þá braut. Hitt er kunnugt, að hæstv. ráðh. og yfirvöldin hafa leyfi til að náða og gefa upp sakir, ef ástæða þykir til. En það kemur einkennilega fyrir sjónir, að ráðuneyti hafi ákveðið sektir. Væri gott að fá skýringu á þessu.

Þótt þetta frv. verði samþ., skilst mér, að vera muni jöfn nauðsyn á að auka við fangarúm. En ég er ekki talsmaður þess, að menn, sem gerast brotlegir við lögin, eigi fyrst og fremst að fara í fangelsi. En það er rétt hjá hv. þm. Ísaf., að ef farið er út á þá braut að ákveða sekt í staðinn fyrir fangelsisvist, þá er þarna verkefni fyrir nýtt stéttarfélag. Sakborningarnir taka sig saman um að neita að borga sektir og skáka í því hróksvaldi, að ekki er hægt að láta þá sæta fangelsisrefsingu, þar sem fangelsi eru ekki til. — Það er rétt hjá hæstv. dómsmrh., að skortur er á efni til nauðsynlegustu bygginga, og geta því yfirvöldin ekki ráðizt í byggingu nýs fangahúss. En ég vil benda á, að það getur verið, að mögulegt sé að kaupa hús, sem mætti breyta, svo að hægt væri að nota það til þessara hluta. — Á fjárlögum var veitt nokkur upphæð til rekstrar slíks hælis, sem Reykjavíkurbær ætlaði að reka vestur á landi. Gæti ekki verið hægt fyrir ríkið að fá eitthvert hús og nota til að bæta úr fangahúsaskortinum?

Ég vil koma fram með þá spurningu, hvort ekki sé ástæða til að leita umsagnar þeirra manna, sem sömdu þessi lög, sem nú er verið að breyta, áður en frv. verður afgreitt. Það er líklegt, að þing standi nokkuð enn, og finnst mér eðlilegt að fresta málinu um stundarsakir og athuga allt betur.