24.11.1950
Neðri deild: 27. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)
56. mál, ríkisútgáfa námsbóka
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég hef, eins og hv. frsm. sagði, flutt brtt. við tvö atriði þessa frv., eru þær prentaðar á þskj. 179.
Öllum hv. þm. er kunnugt, að er lögin voru samin 1936, var skólaskyldualdurinn til 14 ára aldurs. Síðan hefur verið gerð víðtæk breyt. á þessu, og með nýju skólalögunum frá 1946 var gerð sú breyt., að barnaskylda var til 13 ára aldurs, síðan unglingadeild og loks framhaldsdeild fyrir ofan þetta. — Brtt. mín fjallar um það, að þar sem búið er að hækka skólaskylduna í 15 ár, þá skuli rétturinn ná til þessa sama stigs, þannig að hver nemandi skuli fá bækur fyrir þetta gjald. Sé þessi brtt. ekki samþ., þá er búið að lækka réttindi þau, sem ákveðin voru með l. frá 1946, um eitt ár, og það er staðreynd, að í lögunum er ekki raunveruleg heimild til að láta börn fá bækur nema til 13 ára aldurs.
Í till. minni er lagt til, að í stað „barnafræðslunnar“ í fyrri málsl. 1. gr. laganna komi: barna- og unglingafræðslunnar.
Breytingar mínar eru þær, að veita skuli öllum börnum og unglingum, sem stunda nám skv. skólaskyldunni, rétt til að fá þessar bækur.