27.10.1950
Efri deild: 10. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)

47. mál, loðdýrarækt

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Út af þessari fyrirspurn vil ég geta þess, að eins og frv. ber með sér, þá er gert ráð fyrir, að eitthvert starf þurfi að inna af hendi, t.d. að ákveða í lögum um örugga geymslu minka. Ekkert er enn samið um, hver þóknunin verður, en fullljóst er þó, að hún verður ekki neitt svipuð launum embættismanns.

Loðdýraræktunin hefur gengið svo saman undanfarið, — t.d. refaræktin og minkaræktin jafnvel einnig, — að þessi atvinnuvegur, sem menn bundu svo miklar vonir við, hefur gengið svo mjög saman, að ekki er þar starf fyrir einn mann. Ég geri ráð fyrir, að þóknunin verði aðeins lítill hluti af laununum.

Um það, hvort lækkað verði framlagið af þessum styrk, sem loðdýraræktarfél. hefur fengið, þá hefur engin ákvörðun verið tekin um það. Það er vitanlega á valdi þingsins að taka ákvörðun um það.