25.01.1951
Neðri deild: 55. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)
47. mál, loðdýrarækt
Ásmundur Sigurðsson:
Ég vil aðeins taka fram, í tilefni af ummælum hv. þm. Borgf. og hv. 1. þm. Árn., þar sem þeir skora á mig og hv. þm. Dal. að verða á móti þeim till., sem við flytjum, eða taka þær aftur, að frv. það, sem þessir hv. þm. fluttu á síðasta þingi, hafði inni að halda þau ákvæði, sem felast í brtt. okkar nú, og verð ég að segja, að ég kann alls ekki við, að hv. þm. skuli tala á þennan hátt, þar sem þeir börðust einmitt fyrir þessum sömu breyt. á síðasta þingi. Munum við hv. þm. Dal. ekki taka brtt. okkar aftur.