01.02.1951
Neðri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (1359)
81. mál, ríkisreikningurinn 1947
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa þetta langa ræðu, þar sem hv. þm. A-Húnv., samstarfsmaður minn, hefur svarað ýmsum þeim aths., sem fram hafa komið.
Ég vil aðeins minnast á það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. N-M. (HÁ), að það er í sjálfu sér eðlilegt, að sá kostnaður, sem hann ræddi um, færist á 10. gr., en hins vegar er ómögulegt fyrir yfirskoðunarmenn að eltast við hverja smáupphæð á ríkisreikningnum eða hvar þær skuli færðar. Þá minntist hann á greiðslur til hinna einstöku gjaldinnheimtumanna hins opinbera, sem fjmrh. úrskurðar eftir þeim reikningum, sem frá þeim koma. Hér er um að ræða fjármuni, sem þeir sjálfir eiga, t.d. mistalningarfé, þar sem þeim hefur verið greitt meira en þeim ber o.s.frv.
Þá svaraði hv. þm. A-Húnv. því, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Rang. (IngJ). Mér þykir leiðinlegt, ef hann er óánægður með þessi mál, en það verður ekki úr þessu bætt, og það er ekki á okkar valdi að gefa fyrirmæli um það til ráðun., hvernig haga beri endurskoðun fjmrn. Það eina, sem við getum gert, er að ganga eftir skýrslum og gögnum þaðan, og það höfum við — ekki einu sinni eða tvisvar, heldur margsinnis — gert, og ég álit, að það hafi verið skylda okkar gagnvart þ. að vekja athygli á því, hve seint þetta hefur gengið. Hitt er mesti misskilningur hjá hv. 2. þm. Rang., ef hann heldur, að ástandið í þessum efnum sé eitthvað verra en það hefur áður verið. Það hefur færzt í betra horf, þótt það að vísu sé ekki komið í það lag, sem það á að vera. Og hv. þm. verða að gera sér ljóst, að við yfirskoðunarmennirnir getum ekki framkvæmt okkar skoðun eins og umboðslega endurskoðunin, þ.e. athugað sérhvert fylgiskjal og lagt saman alla reikninga o.s.frv., því að við kæmumst ekki yfir nema nokkurn hluta af því verki, þótt við sætum við það allt árið. Það getur því aðeins verið um heildaryfirlit að ræða hjá okkur yfirskoðunarmönnunum. Það mun hafa verið hv. 1. þm. S-M. (EystJ), sem setti löggjöf um þessi efni á sínum tíma, og þau fyrirmæli, er þar finnast, koma til viðbótar því, sem er í stjskr. um störf okkar yfirskoðunarmanna.
Hv. þm. V-Húnv. (SkG) þótti aths. okkar yfirskoðunarmanna við ríkisreikninginn vera nokkuð handahófskenndar, en ég hygg, að það muni ætið verða skiptar skoðanir um svo margþætt og yfirgripsmikið mál sem ríkisreikningurinn er. Út af þeim ummælum hv. þm., að störf okkar virtust fara eftir því, hvernig andinn kæmi yfir okkur í það og það sinnið, verð ég að segja það, að mér lízt ekki á hans vinnubrögð, ef þau eru ekki unnin, þegar andinn kemur yfir hann, og í tilefni af þessu vil ég hér minnast á mál, þar sem andinn virðist ekki hafa verið yfir honum nema öðru hverju, en það er út af endurskoðun reikninga vegna byggingar síldarverksmiðja á Siglufirði og Skagaströnd. Á sínum tíma var þetta gert að þingmáli út af þeirri vitneskju, sem þ. barst, og var okkur falin athugun á málinu. Fjhn. fékk reikningana frá okkur til athugunar, en niðurstöður af henni höfum við ekki fengið frá n., þótt við höfum ítrekað það við hana, og hlýtur þetta að stafa að einhverju leyti af því, að andinn hafi aldrei komið yfir hv. þm., og vona ég nú, að hann komi, svo að við getum fengið vitneskju um þetta mál. Á þetta er minnzt til þess að sýna, hver atvik geta legið til þess um ýmis mál, hvernig þau ganga til. Þarna mun víst ekki flaustrinu um að kenna, en þetta er þó óneitanlega léleg afgreiðsla, þar sem málið er í sama farinu hjá n. og þegar það var lagt fyrir hana.
Þá lét hv. þm. í ljós undrun sína yfir því, að við yfirskoðunarmenn hefðum ekki sett okkur skráðar starfsreglur til að vinna eftir, en ákvæði l. og stjskr. eru skýr um þetta efni. Ég tel líka vafa á því, hvort hægt væri að hafa skráðar reglur um þessi störf, því að málið er þannig í eðli sínu, að því verður að haga eftir því, hvernig á stendur um hvert einstakt atriði, og get ég ekki farið út í að rökstyðja það nánar, þar sem það væri of langt mál. — Þá minntist hv. þm. á húsnæðismálin og fannst þau vera skopleg. Það kann að vera, að þau séu skopleg í hans augum, en víst er, að hann hefur ekki sýnt neina samvizkusemi umfram aðra í þeim efnum.