26.01.1951
Efri deild: 56. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (1377)
49. mál, sveitarstjórar
Frsm. minni hl. (Gísli Jónason):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Eyf. sagði, að tvær af brtt. mínum væru lítils virði, og vil ég því skýra þær nánar.
Þá er það fyrst 1. brtt. Það var eðlilegt, að 5. gr. hljóðaði svo í frv. á þskj. 83, ef frv. hefði verið samþ. eins og það var lagt fram, því að þar voru hreppsnefndir skyldaðar til að ráða sérstakan mann til að hafa með höndum framkvæmd sveitarmálefna og hreppsnefndin hafði enga völ um, hvort hún framkvæmdi þetta eða ekki, en nú er aðeins um að ræða heimild fyrir hana til að ráða sveitarstjóra. Nú hefur þetta breytzt svo, að hreppsnefnd getur ráðið til sín mann án þess að fela honum framkvæmd allra sinna mála, eins og gert var ráð fyrir í 1. gr. frv. eins og það var lagt fram hér í þinginu. En þar sem þetta skylduákvæði hefur nú verið fellt burt úr frv., en í stað þess sett heimildarákvæði, þá finnst mér, að hreppsnefndin eigi að hafa óskorað vald til að ákveða, til hvaða starfa hún ræður sér mann. Það getur verið hagnaður að því fyrir sveitarfélagið að ráða sérstakan mann til að hafa með höndum hin ýmsu sveitarmál, svo sem vatnsveitu, rafveitu, hafnarmál, togaraútgerð, frystihúsrekstur o.s.frv., þó að hún vilji ekki láta hann hafa með höndum framkvæmd allra sinna mála. Það er því rökrétt, þegar um heimildarákvæði handa hreppsnefnd er að ræða, að hún þurfi ekki að ráða mann til að sjá um framkvæmd allra sinna mála, heldur aðeins hluta þeirra, ef henni sýnist svo. Og finnst mér því, að þessi brtt. sé síður en svo þýðingarlaus.
Viðvíkjandi brtt. minni við 8. gr., þá má ekki skoða hana svo, að ég vilji ekki hafa fullan hemil á því, að menn vanræki ekki störf sín, en mér finnst undarlegt að taka þetta fram í þessu frv. um heimild fyrir sveitarfélög til að ráða sér starfsmann, þegar þetta er látið afskiptalaust um embættismenn ríkisins, en ég er þessu ákvæði hins vegar fylgjandi, ef það væri látið ná til allra embættismanna, en það er síður en svo, að það sé gert. Það er alkunna, að sumir starfsmenn ríkisins hafa setið í embættum í tugi ára, þó að þeir hafi stórlega brotið af sér í starfi sínu, og dæmi eru til, að þeir hafi eftir slíkan embættisferil verið leystir frá störfum með fullum eftirlaunum eða jafnvel fullum launum. Því er þá verið að setja þessi ákvæði um þennan eina flokk manna, þegar þau eru ekki látin ná til annarra, sem sitja í miklu þýðingarmeiri embættum og hærra launuðum? Það er af þeim ástæðum, sem ég ber fram till. mína, að ég vil láta jafnt yfir alla ganga í þessum efnum.
Viðvíkjandi brtt. minni við 6. gr. þarf ég ekki að ræða við hv. 1. þm. Eyf., því að þar er hann sammála mér, en ég tel þetta þýðingarmikið atriði, og ef því verður ekki breytt, þá held ég, að fá sveitarfélög munu nota sér heimild þessara laga, ef þau verða bundin við þessi ákvæði. — Ég vil því mælast til, að 1. og 2. brtt. verði samþykktar. 3. till. byggist á því einu, að mér finnst óeðlilegt, að slíkt ákvæði sé í þessum einu lögum, án þess að þetta sé upp tekið sem almenn regla um embættismenn.