26.01.1951
Efri deild: 56. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)

49. mál, sveitarstjórar

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil taka það fram, að mér finnast ákvæði 8. gr. óþörf, ekki vegna þess, að þau séu ekki sjálfsögð, heldur vegna þess, að ég tel meginefni þeirra svo sjálfsagt, að ekki þurfi að taka það fram í frv. Öllum ráðningum er þannig háttað, að víkja má hlutaðeigandi fyrirvaralaust frá starfi, ef hann gerist sekur um hirðuleysi eða vanrækslu í starfi sínu, án þess að slíkt þurfi að taka sérstaklega fram í samningi eða skipunarbréfi. Aftur á móti finnst mér, að taka þyrfti sérstaklega fram, ef maður mætti halda stöðu eftir að hafa gert sig sekan um slíka vanrækslu í starfi sínu. Ég tel því 8. gr. óþarfa. Það er ekki rétt, að hér sé verið að skapa neina sérstöðu gagnvart öðrum embættismönnum með þessum ákvæðum í 8. gr. Það eru til margir dómar fyrir því, að menn hafa orðið að víkja úr embættum, ef vanræksla eða hirðuleysi í starfi hefur sannazt á þá, en hitt er rétt, sem hv. þm. Barð. sagði, að slíkum ákvæðum hefur ekki alltaf verið beitt — og má segja of sjaldan, og dæmi munu vera til þess, að menn hafi setið í embættum í mörg ár og brotið af sér í starfinu, án þess að þeir hafi verið látnir svara til saka fyrir það. En um slíkt ber ekki að kenna löggjöfinni, heldur þeim, sem hafa framkvæmd hennar með höndum. Ég tel 8. gr. því algerlega óþarfa og að menn þurfi ekkert að óttast, að það verði tekið sem forsenda í máli, sem út af slíku kynni að rísa, að ekkert væri tekið fram um slíkt í lögunum, þar sem margir dómar eru fyrir því, að menn hafa orðið að láta af starfi, ef vanræksla eða hirðuleysi hefur sannazt á þá. En fyrir utan það, að greinin er óþörf, þá er hún óljós, ef ekki fjarstæð, því að þar stendur: „Nú verður sveitarstjóri sekur um stórfellda og ítrekaða vanrækslu eða hirðuleysi í starfi sínu eða skeytir ekki áminningu hreppsnefndar, og getur hún þá með fundarsamþykkt vikið honum frá störfum.“ Með því að nota þarna orðið „eða“ er „áminning hreppsnefndar“ sett sem nokkurs konar andstaða eða annar liður en „stórfelld og ítrekuð vanræksla eða hirðuleysi“, og virðist eftir því orðalagi, að hreppsnefnd geti losað sig við sveitarstjóra með því móti að gefa honum áminningu án þess að tilgreina sakir á hann, þannig að hreppsnefnd geti losað sig við samvizkusaman starfsmann, sem hún kann að vera mótfallin, með því einu móti að áminna hann. Ef áminning hreppsnefndar á að koma vegna vanrækslu og hirðuleysis, þá ætti að standa þarna „og“ í staðinn fyrir „eða“, því að það væri alger nýjung í lögum, ef hægt væri að losna við starfsmann á þennan hátt. Þetta er því ekki einungis óþarft, heldur fjarstætt, þar sem það er auk þess tekið fram í frv., að ráða megi starfsmanninn til viss tíma, og þá ætti einnig að vera hægt að setja inn í ráðningarsamninginn, að segja megi honum upp, þegar hreppsnefndin vill, þó að enginn vilji auðvitað ráða sig með slíkum kjörum.