13.02.1951
Efri deild: 69. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)

177. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1951

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Hæstv. forsrh. er hér ekki viðstaddur, en þetta mál skýrir sig sjálft. — Það er ljóst, að störfum þessa Alþ. mun ekki verða lokið fyrir 15. febr., og þarf því að ákveða með l. annan samkomudag reglulegs Alþingis 4954 fyrir þann tíma. Eins og menn sjá, er lagt til í þessu frv. að ákveða samkomudag reglulegs Alþ. fyrr en gert var í fyrra, sem sé 1. okt., og er það gert með það fyrir augum, að auðveldara verði að ljúka fjári. fyrir jól en annars yrði, og eru þannig meiri líkur til, að þinghaldi geti orðið lokið fyrir jól, heldur en ef það kæmi saman þann 10. okt. Það er líka eðlilegt, að þing komi fyrr saman nú, þar sem það þing, sem nú er að enda, verður miklu styttra en það í fyrra, og verður þannig langtum lengra milli þinga nú heldur en þá.

Ég leyfi mér að vænta, að frv. fái greiðan framgang hjá hv. d.