13.12.1950
Efri deild: 36. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (1429)

144. mál, eignakönnun

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það nægir að mestu að vísa til athugasemda, sem fylgja frv. Ég vil þó taka það fram, að þegar l. um eignakönnun voru sett, þá var gert ráð fyrir, að andvirði skuldabréfanna rynni til ríkissjóðs. Síðar var samið um það milli þáverandi stjórnarflokka, að því fé skyldi skipt milli ríkissjóðs og bæjar- og sveitarfélaga. Ekkert varð þó úr þessum skiptum, og töldu forráðamenn bæjar- og sveitarfélaganna óeðlilegt að fá ekkert af andvirði bréfanna. Var þetta mál til meðferðar í ríkisstj. þeirri, er þá sat, og sýna skilríki í ráðuneytunum, að ríkisstj. hafði beitt sér fyrir því, að skipta skyldi til helminga því fé, sem inn kæmi í peningum, enda yrði þá fallið frá því að skipta andvirði bréfanna. Síðan eru liðin tvö ár, og ekkert hefur verið gert í málinu, og því er nú hafizt handa um breyt. á l., en efni frv. er það, að skipta skuli eignakönnunarskatti samkv. II. kafla l. til helminga, milli ríkissjóðs annars vegar og bæjar- og sveitarfélaga hins vegar. Þykir þetta sanngjarnt, þar sem bæjarfélögin hafa tapað möguleikanum á að leggja útsvör á undandregnar tekjur manna. — Ég leyfi mér að óska þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.