18.12.1950
Neðri deild: 44. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

144. mál, eignakönnun

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það er gerð grein á þskj. 359 fyrir þeim ástæðum, sem voru til þess, að þetta frv. er flutt, og þarf ég ekki að skýra það nánar. Vil ég þó rifja það upp, að þegar sambræðslustjórn þriggja flokka var mynduð snemma á árinu 1947, þá var gengið frá l. um eignakönnun og samið um það mál og þá samið um það, að skipta skyldi á milli ríkis og bæjar- og sveitarfélaga því fé, sem inn kæmi fyrir sölu skuldabréfa. Þessi skipting var þó aldrei gerð. Þá komu háværar raddir frá bæjar- og sveitarfélögum um, að ef þetta væri ekki gert, þá væri sanngjarnt að skipta því, sem innheimtist í peningum vegna eignakönnunarinnar. Þetta var byggt á því, að það fé, sem ekki hefði verið talið fram undanfarið, væri að jöfnu tekjustofn ríkis annars vegar og bæjar- og sveitarfélaga hins vegar. Þessar till. sýndust eðlilegar. Og niðurstaðan varð sú, þegar þetta mál var til meðferðar fyrir tveimur árum síðan, að þáverandi ríkisstj. lýsti því yfir við forráðamenn Reykjavíkurbæjar, að hún mundi beita sér fyrir og sjá svo um, að þessu fé yrði skipt til helminga á milli ríkissjóðs og bæjar- og sveitarfélaga. Aftur á móti var ekkert í því gert að koma þessu á framfæri við Alþ. En þessi skipting gat ekki gerzt nema með lagasetningu. — Þetta lá fyrir, þegar ég kom í ráðuneytið, og var sýnt, að það yrði að gera þessa skiptingu með lagasetningu. Og með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir að skipta þessu fé til helminga á þann veg, sem ég tók fram. Og það er um það, að þegar frá hefur verið dreginn kostnaður við eignakönnunarskattinn, skuli skipta því, sem inn kemur nettó, til helminga á milli ríkissjóðs annars vegar og bæjar- og sveitarfélaga hins vegar. — Óska ég, að þessu máli verði vísað til fjhn. að umr. lokinni.