13.02.1951
Neðri deild: 68. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

144. mál, eignakönnun

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og hv. 5. þm. Reykv. drap á, er þessi brtt. flutt til þess að kveða nánar á um skiptinguna milli bæjar- og sveitarfélaga, þar sem komið hafa fram aths. um, að það gæti valdið ágreiningi, hvernig þessari skiptingu skyldi háttað. Ég flyt því þessa brtt. til þess að fyrirbyggja, að af þessu gæti risið nokkur ágreiningur, og vildi ég mælast til þess, að hv. þdm. léðu henni fylgi sitt.