23.11.1950
Neðri deild: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (1465)

18. mál, meðferð opinberra mála

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, er ekki nýtt af nálinni og hefur legið fyrir nokkrum þingum. Það hefur verið gerð grein fyrir því af hálfu dómsmrh. við 1. umr. nú og reyndar áður, og þegar frv. upphaflega var flutt, á þskj. 12 194$, fylgdi því mjög ýtarleg grg., sem vísað er til í núverandi grg. frv. Ég þarf þess vegna ekki að hafa mörg orð um frv. fyrir hönd n., sem hefur haft það til meðferðar, en allshn. hefur skilað um það áliti á þskj. 186. Mæla 4 nm. með því, að frv. verði samþ., en áskilja sér rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma, en 5. nm. tók sáralítinn þátt í afgreiðslu málsins og undirritaði ekki nál., en það stafaði af því, að mannaskipti urðu á víxl í n. frá þeim flokki, sem átti þann fulltrúa í n., undir meðferð málsins.

Þær brtt., sem þessir 4 nm., sem þátt tóku í afgreiðslu málsins, hafa komið sér saman um að flytja, eru mjög smávægilegar, í raun réttri að mestu leiðréttingar, sem skýra sig að mestu leyti sjálfar, og skal ég ekki fjölyrða um þær. Meiri hl. n. mælir sem sagt með því, að frv. nái fram að ganga.