23.11.1950
Neðri deild: 26. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)
18. mál, meðferð opinberra mála
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Hér er um mjög merkilegt mál að ræða, og vona ég að það nái fram að ganga á þessu þingi. Ekki stóð ég þó upp til þess að ræða þetta mál sérstaklega, heldur til þess að beina þeirri fsp. til hv. frsm. n., hvort n. hafi ekki jafnframt tekið til athugunar og fyrirgreiðslu annað frv., þ.e. frv. um saksóknara ríkisins og rannsóknarstjóra, og hvaða von megi telja til þess, að það mál fái afgreiðslu frá n. svo snemma, að það gæti náð fram að ganga. Það er eðlilegt, að þessi tvö mál fái jafnhliða athugun og afgreiðslu.