12.02.1951
Efri deild: 67. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)

18. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég vil leyfa mér að þakka hv. n. fyrir afgreiðslu þessa máls. Þetta er mikið frv., sem fyrir liggur, og tekur langan tíma að athuga það, svo að vel sé. N. hefur ekki haft meir en svo tíma til meðferðar málsins, og tel ég það mjög þakkarvert, að hún skuli nú vera búin að skila af sér.

Ég vil geta þess, að ég tel þær brtt., sem n. flytur, ekki mjög miklu máli skipta. Þó að um þær megi deila, sé ég enga ástæðu til að setja mig upp á móti þeim. Ég vil aðeins geta þess út af því, sem hv. frsm. sagði um lögregluna hér í Rvík og starfshætti hennar, að ætlun mín var með orðalagi 2. mgr. 32. gr., að lögreglumenn allir yrðu í raun og veru fyrst og fremst undir stjórn lögreglustjóra og eins þeir, sem starfa hjá sakadómara. Og það er eingöngu varðandi þau störf, sem undir sakadómara heyra, sem hann fer með yfirstjórn þeirra, en þar fyrir utan er það ætlun mín, að þeir lögreglumenn, sem vinna að rannsókn mála hér í bænum, séu hópur í lögreglu Rvíkur og skyldugir að hlíta fyrirmælum lögreglustjóra varðandi þá almennu löggæzlu, þar með taka þátt í æfingum og gegna störfum við jafnvel götugæzlu, ef svo ber undir og nauðsyn er talin á. Þannig að það er ekki ætlazt til þess, að þeir séu teknir úr því almenna lögregluliði og gegni eingöngu störfum hjá sakadómara.