15.02.1951
Efri deild: 72. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 626 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)
18. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. (Lárus Jóhannesson):
Herra forseti. Það kom í ljós við athugun, að þörf er lagfæringar á einni gr. frv., en það er 47. gr., þar sem rætt er um símahlustanir. Eins og frv. var samþ. til 3. umr. og það var í sinni upphaflegu mynd, hljóðaði gr. svo: „Dómari getur úrskurðað hlustanir í síma, sem sökunautur hefur eða ætla má hann nota, enda varði brot minnst tveggja ára refsivist.“ Við nánari athugun kom í ljós, að sérstök ákvæði í l. nr. 30/1941 ganga að ýmsu leyti lengra en hér er gert ráð fyrir, án þess að þau séu felld niður með 202. gr. þessa frv. En þar er gert ráð fyrir, að dómsmrh. geti leyft símahlustanir þrátt fyrir ákvæðin um þagnarskyldu starfsmanna fjarskiptaþjónustunnar. Þessi ákvæði geta varla staðið hvort við annars hlið. Meiri hl. allshn., þ.e. þeir nm., sem til náðist, hefur því í samráði við hæstv. dómsmrh. ákveðið að bera fram brtt. við 47. gr. og viðbótartill. við 202. gr. Ég tel sjálfsagt að samþ. þessar till. n., því að með l. þessum er verið að tryggja menn gegn framkvæmdarvaldinu. Og með þessari breyt. er gert ráð fyrir, að dómari, en ekki dómsmrh., úrskurði, hvort símahlustanir geti átt sér stað. — Ég hef ekki fleira um þetta að segja, en legg hér fram brtt. meiri hl. allshn.