19.02.1951
Neðri deild: 71. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (1484)
18. mál, meðferð opinberra mála
Skúli Guðmundsson:
Þetta frv. er komið hingað aftur frá Ed. Mér hefði þótt eðlilegast, að sú n., sem hafði þetta mál upphaflega til athugunar, hefði einnig athugað þær breytingar, sem urðu á frv. í hv. Ed., og gæti síðan gefið okkur einhverja skýringu á þeim. Ég vil fara fram á það, að umr. verði nú frestað, svo að deildarmönnum gefist að minnsta kosti kostur á að kynna sér breytingar Ed.