26.02.1951
Sameinað þing: 46. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (149)
Vandamál bátaútvegsins
Atvmrh. (Ólafur Thors) :
Herra forseti. Það gleður mig, að hv. form. Alþfl. lætur í ljós í aðalatriðum ánægju sina yfir því, sem við teljum meginkjarnann í okkar ráðstöfunum. Hins vegar hafði hann ýmislegt við þessar ráðstafanir að athuga, og sumt að ég hygg vegna þess, að hann hefur ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um það, hvað er tilgangurinn að gera, og beindi hann því eðlilega nokkrum fyrirspurnum til ríkisstj. Ég vil þá skýra hæstv. Alþ. frá því, einnig í tilefni af ræðu form. Sósfl., að ég átti ásamt hæstv. fjmrh. og að nokkru leyti hæstv. landbrh. viðtal við báða þessa hv. alþm., sem síðast töluðu, síðasta föstudag og gaf þeim þá ýmsar fyllri upplýsingar en komu fram í skýrslu þeirri, sem ég flutti fyrir hönd ríkisstj., svo að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem þeir heyra þetta, því að um alllangan tíma hefur það verið kunnugt, að þessar ráðstafanir yrðu gerðar, þó að menn hafi ekki fyrr en síðastl. föstudag, hvað þessa tvo hv. þm. áhrærir, haft upplýsingar sjálfrar ríkisstj. um þetta mál.
Hv. form. Alþfl. spurði, hvaða sérfræðinga ríkisstj. hefði kvatt til ráðuneytis í þessu efni. Ég get glatt þennan hv. þm. með því, að þar hefur ríkisstj. haft að fulltrúa til ráðuneytis skrifstofustjórann í fjmrn., sem þessi hv. þm. kvaddi sér til aðstoðar, þegar hann skorti ráð á miðju sumri 1949, og er það maður, sem getið hefur sér ágætan orðstí fyrir sína þekkingu í þessum efnum og orðið til þess að koma mörgu góðu til leiðar í fjármálum þjóðarinnar. Hins vegar veit hv. þm. það, að ríkisstj. fer sínu fram, hvað stefnu áhrærir í þessum efnum. Það er hlutverk sérfræðinga að gefa ráð og leysa úr okkar spurningum, — og náttúrlega tekur hver skynsöm ríkisstjórn tillit til faglegra upplýsinga, — en það verður ríkisstj. sjálf, sem markar stefnuna, eftir þeim upplýsingum, sem hún ákveður, en með þeim pólitísku tillitum, sem hún vill taka tillit til. Þetta veit hv. 8. landsk. þm., form. Alþfl., að sama skapi sem hann hefur kafað, synt eða flotið í hinu grugguga vatni stjórnmálanna.
Hv. form. Alþfl. lét í ljós hryggð sína yfir því, að með þessari skipan yrði auðið að hækka mjög vöruverðið í landinu viðkomandi vissum vöruflokkum, og það gerði hv. 2. þm. Reykv. líka. Ég get svarað þeim báðum saman, hvað þetta snertir. Það er að sjálfsögðu út af fyrir sig ekki ólíklegt, að einhverja vöruverðhækkun leiði af þessum ráðstöfunum. Hins vegar, þegar menn gæta þess, að það þarf að rétta bátaútveginum hjálparhönd, þá vita menn það, að það er ekki hægt að rétta neinum vissum aðilum hjálparhönd og láta þá hafa sinn skerf, án þess að það, sem til þess þarf, komi einhvers staðar frá. Það hefur kannske rignt gulli af himnum ofan, meðan hv. 8. landsk. þm. (StJSt) var ráðh. En það gerði það a. m. k. ekki þegar Framsfl. hafði stjórnarforustu, og ég held ekki, þó að Sjálfstfl. ætti að stjórna, en ég veit ekki, hvort það hefur verið, þegar Alþfl. stýrði ríkisstjórn. En ef þeir, sem skrifa í blöð flokka þessara tveggja hv. þm., meina nokkuð með því tali, sem prýðir dálka þessara blaða daglega, sýnist þeim ekki vera ókunnugt um svartamarkaðsbrask á Íslandi. — Og ég geri mér vonir um, að ef vörur koma í nægilega ríkum mæli á markaðinn, þá verði það ekki til þess, að kaupmátturinn notist verr en ef skortur er á vörum, — síður en svo, — heldur, að því meira sem framboð verður í hlutfalli við eftirspurn, því minni verði hættan á óeðlilegri verðlagsmyndun. Og ég dreg fullkomlega í efa, hvað margar þessar vörutegundir muni hækka í verði vegna þessara ráðstafana. Og hvað gefur það í skyn? Að það hafi ekki verið á almennum markaði, sem þessar vörur hafi verið greiddar, heldur hafi þær verið seldar einmitt með svartamarkaðsbraski, sem þessir hv. þm. hafa verið að fordæma, en nú virðast vilja láta selja vörurnar þannig áfram. (BrB: Hvaða vörur eru það?) Það getur verið, að sumar þessar vörutegundir hækki í verði. En haldið þið, að það hefði lækkað vöruverðið, ef lagðir hefðu verið milljónatugir á þjóðina til þess að borga til útvegsmanna, með því að taka til þess ráðs að ákveða nýjar fiskábyrgðir? Og get ég djarft úr flokki talað í því efni, því að ég var einn af þeim sælu feðrum þeirra ágætu laga. Ég geri mér vonir um — og hef heyrt hv. 8. landsk. þm., form. Alþfl., viðurkenna það — að aukinn vöruinnflutningur ekki aðeins bæti úr þeim vöruskorti, sem verið hefur, heldur færi almenningi kjarabætur með minnkandi álagningu og lækkuðu vöruverði með aukinni samkeppni. Og það er ákaflega mikill misskilningur, ef hv. form. Alþfl. hefur sagt, sem ég er ekki alveg viss um, að ég hafi skilið rétt, að þessi leið, sem hér er farin, væri sama eða svipuð og fiskábyrgðarleiðin. En ég geymi annars að ræða um það.
Hv. form. Alþfl. spurði um það, hvort það væri meiningin að framkvæma þessar ráðstafanir allar án lagabreyt., og hélt í því efni sem góður lýðræðissinni mikla og skörulega ræðu um, að ríkisstj. mætti ekki bæta þeirri ásetningssynd ofan á margar fyrri breyskleikasyndir að fara nú að setja um þetta lög, þegar búið væri að senda þingið heim. Ég fullvissa þennan hv. þm. um, að hann þarf engar áhyggjur að hafa að þessu leyti. Ríkisstj. mun hlutast til um, að það verði aflað lagabreyt. um þetta á Alþ.
Þessi sami hv. þm. sagði í sambandi við áhyggjur sínar um þessar ráðstafanir, að verðlag mundi mjög hækka á þessum vörum, sem verða á lista bátaútvegsmanna, og að ríkisstj. ætlaði nú að innleiða það, að hér verði enginn hemill á verði þessara vara annar en gjaldgeta almennings, eins og það væri einhver andstyggileg tilhugsun. En nú mætti minnast þess í sambandi við þetta, sem Hedtoft, hinn ágæti ráðherra jafnaðarmanna Dana, sagði, að það væri gjaldgetan, sem réði í þessu efni. Þar voru nógar vörur, sem almenningur fékk að horfa á, eins og aðra dýrð sósíalista, en gat ekki keypt. Ég segi þetta ekki til lasts okkar góða Hedtoft, vini okkar í Danmörku, heldur til þess að sýna, að oft ræður gjaldgetan þessu. En í þessu tilfelli verður það meira en gjaldgetan; það verður og kaupverðið, sem ræður. Ef viss vara t. d. kostar í dag kr. 1,50, en svo verður þessi vara, sem kostar kr. 1,50, hækkuð vegna fríðinda útvegsmanna í kr. 2,00, þá hafa verðhlutföll þarna raskazt. Við vonum, að þessi röskun verði ekki valdandi annars en að af henni leiði tilhneigingu til að spara að kaupa þessar vörur, sem hafa hækkað óeðlilega í hlutfalli við aðrar vörur. Af þessu leiðir svo aftur, að útvegsmenn í eiginhagsmunaskyni verða að kunna fótum sínum forráð og hafa fulla gát á að hafa ekki of hátt verð á þessum vörum, hvað sem verðlagseftirlitið áhrærir, svo að ég held ekki, að það sé ástæða til að hafa þessar áhyggjur.
Sami hv. þm. spurði um, hvort ríkisstj. hefði haft afskipti af innbyrðis málum þeirra aðila, sem hér koma til með að eiga hlut að máli. Í raun og veru er ekki hægt að staðhæfa það. Skilyrði ríkisstj. fyrir að vilja hníga að þessari skipan málanna voru að eðlilegum hætti sett fram, og var það gert í bréfi frá ríkisstj. 24. jan. s. l. til Landssambands íslenzkra útvegsmanna um þessi mál. Þar var sagt eitthvað á þá leið, að að því tilskildu, að takast megi að skapa það verðlag á afurðum bátaútvegsins, að eigendur hans telji sér fært að hefja útgerð, þá sé ríkisstj. tilbúin að gera vissar ráðstafanir. Þetta er meginatriðið, sem ríkisstj. tók fram, þó að hún hafi rætt nokkuð fleiri hliðar málsins.
Loks spurði svo hv. form. Alþfl. að því, hvort verðlagseftirlit á svokölluðum frílistavörum mundi gilda áfram eða ekki. Ef þessi vörufrílisti verður ekki aðeins sýnd, heldur reynd, — og það er megintilgangur ríkisstj., að hún telur sig geta lofað því, — þá hefur verðlagseftirlit á þeim vörum enga þýðingu, hvort sem heppilegt kann að reynast að afnema verðlagseftirlitið í þessu efni um skemmri eða lengri tíma, sem ég skal ekki um segja, hvort heppilegt er. Um það verða sérfræðingar okkar, bæði sérfræðingar hjá fjárhagsráði og sérfræðingar ríkisstj., að dæma, svo sem Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson, sem ríkisstj. hefur haft stuðning af.
Ég hygg þá, að ég hafi svarað meginatriðunum í ræðu hv. form. Alþfl. En það gleður mig, að það, sem er kjarni þessa máls, lýsti hann sig ánægðan með.
Hv. 2. þm. Reykv., form. Sósfl., gerði nokkrar fyrirspurnir. Sumum hef ég svarað í sambandi við svörin til hv. form. Alþfl., en skal víkja að þeim, sem eftir standa. — Ég hef þegar svarað aths. hv. form. Sósfl. um það, er hann kallaði 50–60 millj. kr. álag á almenning, og þarf ekki að gera það aftur. En út af aths. hans í sambandi við verðlagið og í sambandi við sérréttindi og einokun útvegsmanna og hinn afskaplega umráðarétt útvegsmanna yfir gjaldeyri sínum spyr ég hann, því að það eru fleiri spurningabörn hér en ríkisstj.: Er það alveg misminni hjá mér, að hann hafi sjálfur stungið upp á — og miklazt af að hafa stungið upp á því, að útvegsmenn fengju umráð yfir sínum gjaldeyri? (EOl: Nei.) Ef þetta er ekki misminni (EOl: Ég stakk upp á frjálsri verzlun.), þá vil ég segja, að það er frjáls verzlun, sem við erum hér að stíga spor í áttina til með þessum ráðstöfunum. — Ég gleðst yfir, að hv. form. Alþfl. er sammála kjarna þessara ráðstafana, og samhryggist hv. form. Sósfl. fyrir að vera svona samkvæmur sjálfum sér.
Hv. form. Sósfl. spurði um það, að eðlilegum hætti, hvort ríkisstj. skildi það ekki, að hér væri mikil nauðsyn á, að bankarnir ykju útlán sín frá því, sem verið hefur, miðað við magn innflutningsins, og hvort ríkisstj. hefði gert nokkuð til að tryggja þetta. Þetta er ákaflega eðlileg spurning. Ég get ekki staðhæft, að ríkisstj. geti í dag sagt, að bankarnir hafi lofað að láni ákveðinni hundraðshlutatölu af því verðlagi, sem myndast nú á þessum innflutningsvörum vegna þessara ráðstafana. En á fundi, sem nokkrir af ráðherrunum áttu með bankastjórum Landsbankans, lýstu bankastjórarnir yfir því, að þeim væri alveg ljóst, að það væri skilyrði þess, að þetta mál færi sæmilega úr hendi, að útlánin yrðu aukin, og gáfu um það fyrirheit. Ég mun, ef þau fyrirheit bregðast, telja mig vonsvikinn af þeim víðræðum, sem enduðu með því, að ég þakkaði bankastjórunum fyrir undirtektirnar og sagði, að ríkisstj. hefði ekki getað farið fram á aðrar eða meiri undirtektir en hún fékk hjá bankastjórunum. En þetta er ákaflega þýðingarmikið atriði, sem eðlilegt er, að menn spyrji um.
Hv. 2. þm. Reykv. spurði um, hver væri hin aukna Marshallhjálp og hver væri hin aukna hjálp frá greiðslubandalagi Evrópu eins og segir í skýrslunni. Það er um fast loforð að ræða um stóraukið framlag Marshallhjálparinnar. Ég hef áður sagt við þennan hv. þm. og hv. form. Alþfl. líka, að á þessu stigi málsins tel ég ekki varfærið að kveða sterkar að orði en þetta, sem ég geri í skýrslunni, að framlagið sé stóraukið. En þá geta menn nokkuð reiknað þetta dæmi. Upphæðin, sem miðað er við og fyrirheit hefur verið um, er 3,2 millj. dollarar frá Marshallstofnuninni, og frá þeirri tölu er um mjög stórfellda aukningu að ræða. — Varðandi aukið framlag frá greiðslubandalagi Evrópu er ekki hægt að tala um annað en vilyrði, eins og ég sagði í skýrslunni. En framkvæmd þessa máls veltur m. a., eins og ég nefndi í upphafi um Marshallhjálpina, á því, hver þörf Íslendinga verður til þess að fullnægja því meginskilyrði, sem frá upphafi var lögð áherzla á, að geta flutt inn nógar vörur til neytendanna og safnað birgðum hér, í stað þess að á undanförnum árum hefur verið vöruþurrð í landinu. Í sambandi við þessi fyrirheit eru engin sérstök skilyrði, eins og hv. þm. spurði um. Við höfum borið fram okkar óskir og fengið þeim fullnægt, án annarra skilyrða en eru almennt í sambandi við þessa starfsemi. Í skýrslunni segir, að endanlegt form á framkvæmd þessa máls sé ekki ákveðið eða um ákveðinn innflutning til landsins. Og ég vil ekki segja um það meira, þó að kannske væri hægt að gefa um það fyllri upplýsingar, því að það er heppilegra að segja heldur minna og standa við meira og láta þá tölurnar tala annars vegar og vörurnar hins vegar, þegar þessir listar verða birtir.
Skildi ég ekki hv. form. Sósfl. rétt, að hann spyrði um, hvort við ætluðum að bíða eftir svari alþjóðabankans og alþjóðagjaldeyrissjóðsins um kaup á vörum, sem við flyttum inn? (EOl: Jú.) Því er að svara neitandi. Við þurfum þess ekki í sambandi við þær stofnanir, nema að því leyti, að það þótti öruggara að spyrja stjórn alþjóðagjaldeyrissjóðsins, af því að við kaupum vörur frá mörgum löndum Evrópu og frá Ameríku, hvort hún væri ekki okkur samþykk um, að ekkert í þessum framkvæmdum okkar, sem við hér ræðum um, bryti í bág við reglur þær, sem sjóðsstjórnin setur og við höfum undirgengizt að hlíta og allar aðrar þjóðir, sem eru aðilar að sjóðnum eins og við, þurfa að hlíta. En eins og hv. form. Sósfl. veit og allir aðrir, sem þessum og þvílíkum málum eru kunnugir, tekur það nokkurn tíma fyrir menn að athuga þessa liði. Og það er ekki alltaf þannig, að ef maður spyr í dag, þá fái maður svar á morgun. Þetta var borið undir sjóðsstjórnina, sem athugaði það og samþykkti.
Ég tel ekki ástæðu til að ræða hér útflutningsverzlunina, en ég skil ekki, hversu ríkan áhuga hv. 2. þm. Reykv. hefur á frelsi fyrir verzlunina. Hann sagði, að hér kæmi ríkisstj. og berði lóminn og þættist bera velferð útgerðarinnar fyrir brjósti, en svo gerði ríkisstj. einmitt ekki það, sem útgerðarmenn vildu að hún gerði, sem sé að rýmka um sölu á útflutningsvörunum. Ég get lýst því yfir, að ef ég fengi stuðning útvegsmanna til að breyta skipulagi þessara mála og þeir teldu sig bættari að heldur, þá mundi ég gera það samdægurs. Ég mundi veita þeim það, sem þeir vildu í þessum málum, en ekki neita þeim um það.