12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (1497)
2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Frsm. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til meðferðar á þskj. 2, hefur verið til athugunar hjá sjútvn., og gaf hún út nál. á þskj. 442. Varð n. sammála um að mæla með því, að frv. yrði samþ., en einstakir nm. áskildu sér rétt til að flytja eða styðja brtt. Raunverulega er hér aðeins um staðfestingu á bráðabl. frá í sumar að ræða, sem samþ. voru til þess að hlaupa undir bagga með síldarútveginum og voru gefin út 19. ágúst. — Því miður reyndist það svo enn við rannsókn, að síldarútvegurinn gaf erfiða afkomu 6. árið í röð, og varð því hæstv. atvmrh. að leggja til við forseta Íslands að gefa út bráðabl., sem heimiluðu að skerða stofnfé síldveiðideildar til styrktar síldarútvegsmönnum, sem sjáanlegt var, að mundu verða að stöðva útgerð sína, ef ekki hefði verið komið til hjálpar. Síðar kom á daginn, að þrátt fyrir, að eytt væri stofnfé síldveiðideildar, sem nam 2,5 millj., og tekjum sjóðsins til 1. des. s.l., sem námu 0,5 millj., þá voru aðeins greidd 30% af þeim kröfum, sem lágu hjá síldarútvegsmönnum í sambandi við hlutagreiðslur háseta. Það hljóta því allir að sjá, hversu alvarlegt þetta mál er, þegar menn verða fyrir því að fá önnur eins aflaleysisár og 6 undanfarin ár. Það má því vera hverjum þm. ljóst, að það verður að leysa þennan vanda útvegsins í sambandi við að tryggja tekjur hlutatryggingasjóðs heldur en að kalla á aðstoð ríkissjóðs til að takast á hendur greiðslur sjóveða. Því höfum við hv. þm. Borgf. flutt brtt. á þskj. 445 til þess að afla honum meiri tekna, og mun hv. þm. Borgf. fylgja þeim úr hlaði. En ég vil beina því til hv. alþm., að það mun heppilegri leið að sjá hlutatryggingasjóði fyrir eðlilegum tekjum, svo að hann megi standa undir þeim kröfum, sem á hann kunna að falla í erfiðu árferði, heldur en leitað sé á náðir ríkissjóðs um greiðslur þeirra skulda, sem útvegsmenn eiga að standa skil á.
Eins og ég tók fram í upphafi, þá varð sjútvn. sammála um að mæla með samþykkt þessa frv., en hv. þm. Borgf. mun fylgja úr hlaði þeim brtt., sem við höfum flutt. — Að svo komnu tel ég óþarfa að fara fleiri orðum um þetta mál.