30.01.1951
Neðri deild: 58. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)
2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Pétur Ottesen:
Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því, að þetta frv. felur í sér staðfestingu á brbl., sem hæstv. ríkisstj. gaf út á milli þinga, og ég ætla, að það hafi verið annað eða þriðja málið, sem lagt var fram í byrjun Alþ. af hálfu ríkisstj. Nú er búið að framkvæma það, sem í þessum brbl. fólst, þ.e. að mega verja stofnfé síldveiðideildar hlutatryggingasjóðs til greiðslu á tjóni, sem síldveiðimenn biðu á s.l. sumri. Nú má samkv. l. um hlutatryggingasjóð ekki skerða stofnfé sjóðsins. En eftir framkvæmd þessara brbl. þá stendur hagur síldveiðideildar hlutatryggingasjóðs þannig, að þar er ekki einn eyrir til í sjóði og ekkert upp á að hlaupa nema væntanlegar tekjur sjóðsins á yfirstandandi ári, sem eru 1/2% af út flutningsverðmæti síldarafurða og hefur gefið, þegar um litla síldveiði er að ræða, ákaflega litlar tekjur. Þær brtt., sem ég og hv. þm. Snæf. höfum flutt við þetta frv., eru miðaðar við það að bæta úr því öngþveiti, sem komið er í fyrir þessari deild hlutatryggingasjóðs, og afla sjóðnum nokkru frekari tekna en gert er ráð fyrir í l. og bæta honum þannig upp afleiðingar þeirra örþrifaráða, sem hér hefur verið gripið til með því að breyta l. sjóðsins svo, að hægt væri að nota til greiðslu allt stofnfé hans, sem l. ákváðu, að ekki mætti undir neinum kringumstæðum skerða. Með tilliti til þess annars vegar, hvernig ástatt er fyrir sjóðnum í þessum efnum, og þess hins vegar, hve mikilsvert hlutverk hlutatryggingasjóðurinn á að vinna, þá höfum við nú borið fram þessar brtt., sem hér liggja fyrir og stjórn Fiskifélags Íslands hefur sent sjútvn.
Nú er búið að taka þetta mál æðioft af dagskrá hér við fyrstu afgreiðslu þessa máls, og enn ber hæstv. forsrh. fram ósk um, að svo verði gert. Og vitanlega er ærin ástæða fyrir því, þar sem hæstv. sjútvmrh., sem þetta frv. heyrir sérstaklega undir, er nú veikur og getur ekki mætt hér, og ég tel, að það verði að greiða svo fyrir því og að því leyti sé þessi ósk frambærileg. Hitt leiðir af sjálfu sér, að það verður að láta til skarar skríða með þetta mál áður en þingi verður slitið, vegna þess að stjórnin verður að fá staðfestingu á því gagnvart þeirri framkvæmd, sem hún hefur látið gera á grundvelli þessara brbl., og ganga úr skugga um, hvort á að skilja við síldveiðideild hlutatryggingasjóðs í því ástandi, sem hún nú er í, þannig að ekki er einn eyrir fyrir í sjóðsdeild þessari og ekki annað upp á að hlaupa í framtíðinni en það, sem þessi fáu prósent af útflutningsverðmæti síldarafurða kunna að geta gefið. — Ég viðurkenni, að það er réttlát ástæða hjá hæstv. forsrh. að fara fram á það nú sökum veikinda, að málinu verði frestað að þessu sinni. En ég vildi vekja athygli hæstv. forseta og hv. þdm. á því, hversu komið er um afgreiðslu þessa máls.