01.03.1951
Efri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)
2. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég er annar þeirra nm., sem setti það skilyrði fyrir atkv. mínu við frv., að slík yfirlýsing fengist hjá hæstv. fjmrh. Nú hefur hann að vísu lýst yfir; að hann telji mikla nauðsyn, að síldveiðideild hlutatryggingasjóðs fái bætt það fé, sem tekið hefur verið úr síldveiðideildinni, en að hann treysti sér ekki til að gefa yfirlýsingu um þetta. Þetta þýðir það, að ég treysti mér ekki til að greiða atkv. og tel, að það öryggi, sem síldveiðideild hlutatryggingasjóðs átti að veita síldarútvegsmönnum, sé ekki fyrir hendi, þegar svo hefur verið farið að við sjóðinn að taka stofnféð til bótagreiðslna, og ég tel sjóðinn gagnslitinn, þegar farið er inn á þá braut og ekki gengið inn á, að það verði bætt, svo að sjóðurinn sé starfhæfur. Því mun ég greiða atkv. á móti málinu.