08.02.1951
Neðri deild: 65. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
151. mál, ríkisreikningurinn 1948
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Út af ræðu hv. þm. V-Húnv. vil ég gera hér nokkur atriði að umtalsefni, er rætt var hér um ríkisábyrgðir um daginn og þau fjárútlát, er ríkið hefur orðið fyrir vegna þeirra. — Við umræðurnar um fjárlögin á s.l. hausti gerði ég grein fyrir því, að þessar ríkisábyrgðir væru orðnar vandamál. Ég ætla, þótt ég geti ekki sagt það með vissu, að það tap, sem ríkið verður fyrir vegna þessara ábyrgða, muni nú nema um 51/2 millj. króna, og það bendir til þess, að þessi upphæð sé nú að nálgast þá upphæð, sem veitt er til nýrra akvega á landinu. Er þetta vissulega háskalegt fyrir ríkissjóð. Þessar ábyrgðir eru margs konar, og hafa þær verið veittar mörgum fyrirtækjum, — oftast er um að ræða fyrirtæki bæjar- eða sveitarfélaga. Við í fjmrn. höfum nú haft til athugunar, hvað er hægt að gera til þess að draga úr þessum háska, og hefur athugun okkar beinzt að einstökum málum, og við höfum rannsakað, hvort allir þeir aðilar, sem hér eiga hlut að máli, hafi gert sitt ýtrasta til þess að þessar ábyrgðir skelli ekki á ríkinu.
Hv. þm. V-Húnv. minntist á 9 tiltekin mál, og vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um hvert þeirra, því að ég hygg, að þau geti verið fulltrúar fyrir önnur mál, sem eru í uppsiglingu og þingmenn æskja að fá vitneskju um.
1. Tvær síldarverksmiðjur hafa fengið ríkisábyrgðir, það eru Síldarverksmiðjur ríkisins og Rauðka. S.R. hafa fengið ríkisábyrgðir fyrir á 2. tug millj. kr., en ábyrgðir Rauðku eru ekki nema smáfjárhæðir hjá þessu. Við þessu er nú ekkert hægt að gera, aðeins að bíða eftir því, hvort síldin komi. Á s.l. sumri var ekki nema 1 vinnsludagur hjá Rauðku, svo að það er ekki að furða, þótt verksmiðjan standi ekki undir lánum, en ekki mun hún þurfa mjög marga vinnsludaga til að greiða sínar fjárhæðir.
2. Virkjanir. Það má skipta þeim í vatnsvirkjanir og dieselstöðvar. Í sambandi við vatnsvirkjanir er um tvær virkjanir að ræða: Andakilsárvirkjun og Skeiðsfossvirkjun. — Um Andakilsárvirkjunina er það að segja, að til hennar hefur verið lagt stórfé. Skiptir það nú yfir 2 millj. kr., og hefur virkjunin lítið sem ekkert getað greitt af lánum sínum. Við höfum athugað þetta mál í samráði við raforkumálastjóra með þeim árangri, að rafmagn yrði látið hækka, en svo sanngjarnt gæti talizt, og væri þar séð fyrir hagsmunum beggja. Nú þegar þessi hækkun er komin á, mun Andakilsárvirkjunin geta staðið undir nokkrum hluta lána sinna, úr því að þessu ári sleppir. Það mun ekki hætta á, að þarna bætist við nýjar greiðslur. Hins vegar er ekki gott að sjá, hvenær virkjunin getur farið að borga til baka. — Til Skeiðsfossvirkjunarinnar hefur líka verið greitt stórfé, en þar er aðalatriðið það, að hún er of lítil og hægt er að selja meira rafmagn. Siglufjörður verður nú að leggja mikið í kostnað til að framleiða rafmagn handa íbúum sínum og þó með halla. Við höfum endurskoðað rafmagnsverðið, og það mun ekki duga að hækka það. Þessi virkjun mun vera áfram baggi á ríkinu, nema því aðeins, að hægt verði að bæta við nýrri vélasamstæðu, en kostnaður við það mundi nema nokkrum millj. króna. Það mætti ef til vill segja, að hlutaðeigandi bær hefði getað greitt einhvern hluta af ábyrgðum sínum, ef allar endurbætur hefðu verið stöðvaðar og fé hefði ekki verið varið til fyrirhugaðrar stækkunar. En stjórnin getur ekki rekið þá pólitík. Þessi virkjun á enga framtíð fyrir sér, nema hún verði stækkuð, og mundi þá ríkissjóður losna við mikinn bagga.
3. Hafnargerðir. Til Skagastrandar- og Húsavíkurhafna hefur verið lagt stórfé — og reyndar til fleiri. Skagaströnd hefur nú um mörg ár ekki greitt neitt af lánum sínum. Þessi lán þar eru mörg til skamms tíma og þung. Við höfum endurskoðað hafnarreglugerðina á staðnum til að sjá, hvort lögð hafa verið á nægilega há hafnargjöld og hvort þeir gætu ekki staðið undir þyngri gjöldum. Sú athugun hefur gert það að verkum, að þeir á Skagaströnd hafa sjálfir gert uppástungu um hækkun á tekjustofnum hafnarinnar. Ég vil ekki fullyrða, hversu miklu hér gæti munað, en augljóst er, að á meðan síldin er dauf verður halli á þessari höfn, nema eitthvað nýtt komi til. Húsavíkurhöfn er í athugun hjá okkur, en inn í það blandast það atriði, sem ég veit ekki, hvort Alþingi er vel ljóst. Þegar það var á döfinni að byggja höfn á Húsavík, og þegar kom til að leggja fé í hana, spurðust þeir fyrir um það, hvort byggja ætti þar síldarverksmiðju. Þá fengu þeir þá yfirlýsingu, að þar skyldi byggð síldarverksmiðja og því mundi óhætt að leggja fé í höfnina, því að þar af mundu koma tekjur, en nú halda Húsvíkingar því fram, að þeir eigi hönk upp í bakið á ríkissjóði, þar sem ekki er farið að byggja neina síldarverksmiðju. Hvað sem öðru liður, er ekki fullrannsakað um hafnargjöldin þar, og ef gjöldin eru lægri en fjármálaráðuneytinu þykir nauðsynlegt, þá mun það gera kröfu um að hækka þau. Þess vegna get ég ekki fullyrt um, hvort von er til, að úr þessum greiðslum dragi. — Það er mjög áþekkt, sem ég get sagt um fleiri hafnargerðir, þótt miklum mun minna hafi verið varið til annarra hafna. Þá má t.d. nefna landshöfnina í Keflavík. Hún átti að standa undir 2/3 stofnkostnaðarverðs síns, og hefur ríkissjóður lagt út mikið fé fyrir þá höfn, en hún hefur ekki greitt nema mjög lítið enn þá. Það er í athugun, hvort hægt er að hækka hafnargjöldin þar. Hið sama má segja um fleiri hafnargerðir. Það er verið að athuga, hvort hafnir þessar geti ekki staðið betur undir greiðslum sínum til ríkissjóðs.
4. Rafveitur. Hér ræði ég um dieselrafstöðvar. Hv. þm. V-Húnv. minntist á eina rafstöð, rafstöðina í Stykkishólini. Athugun á því máli er ekki komið svo langt, að ég geti gefið fullnægjandi upplýsingar, en ég verð að segja það, að mér lízt þunglega á það mál. Þessar rafveitur koma nú hver af annarri og tilkynna, að þær geti ekki staðið undir lánum sínum, og mun fjmrn. taka upp rannsókn á verðlagi rafmagns og rekstri þeirra og vita, hvað hægt er að gera.
5. Byggingarsamvinnufélög. Hv. þm. V-Húnv. minntist á eitt þeirra, byggingarsamvinnufélagið í Ólafsvík. Það mun vera eina félagið, sem hefur verið leyst upp; annars hefur ábyrgð byggingarsamvinnufélaga ýmist verið greidd eða næstum því það og ekki bakað ríkissjóði neitt tjón.
Þá er hér sérstakt mál, þ.e.a.s. útgerðarfélag í Stykkishólmshreppi. Mál þetta horfir nú þannig við, að skip félagsins hafa verið auglýst á uppboði um næstkomandi mánaðamót, og ekki er hægt að segja, hvernig þessu máli lýkur.
Ég vildi nú nota þetta tækifæri, þar sem hv. þm. V-Húnv. minntist á þessar ábyrgðir, til að segja örfá orð um það, hvernig stendur á um þessi mál, sem hann drap á, og þá frekar til þess að leiða athygli hv. þm. að þessu vandamáli, með ábyrgðirnar, og leitast við að bregða upp mynd af þeirri baráttu, sem í þessu málefni er háð daglega í ráðuneytinu.
Það er þýðingarlaust að loka augunum fyrir því, að þessar miklu ábyrgðir ríkisins, þar sem ríkið á oft mest eða jafnvel allt í hættu, verða þess valdandi, að hætt er við, að það geti orðið til þess, að menn leggi í ýmis hæpin fyrirtæki, sem erfitt er að láta bera sig, og þegar kreppir að mönnum, er hætt við, að menn láti sitja á hakanum að láta peninga upp í þau lán, sem ríkisábyrgð er fyrir. Er því þörf á að hafa mjög strangt eftirlit í þessum efnum og ganga fast fram í þessu og leggja fast að mönnum að standa í skilum með ríkisábyrgðarlán. Horfurnar eru ekki glæsilegar í þessum efnum, og bólar orðið hérna á þeim hugsunarhætti, að menn hugsi sem svo: Ríkið gerir mikið að því að leggja út í ábyrgðir, það eru stórkostlegar fjárhæðir, svo að skiptir hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum, sem renna í einstök pláss eða staði með þessu móti. — Og ef ekki verður höfð á þessu mikil gát, þá er hætt við, að niðurstaðan geti orðið sú, að menn blátt áfram láti sér hægt um greiðslu á þessum lánum, til þess að vera ekki að reyta sig, ef nágrannarnir gera það ekki. Ég vildi nota tækifærið til að beina því til þm., sem áreiðanlega hafa mjög mikið um það að segja, hvernig þessi mál verða í framtíðinni, að þeir reyni að hjálpa ríkisstj. til þess að halda þessu máli í viðunandi horfi, því að ef þetta fer allt úr böndunum, veldur það því, fyrir utan öngþveitið, sem af því stafar, að ekki verður jafnhægt að nota ákveðin úrræði til stuðnings góðum málum og verið hefur. Ég vil þess vegna mjög eindregið biðja hv. þm. að hafa gát á þróuninni í þessum efnum og hafa holl áhrif, hver á sínum stað, til þess að koma í veg fyrir það, að jafnilla fari í þessum efnum og horfir nú í dag.