20.11.1950
Efri deild: 22. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)

95. mál, skipun prestakalla

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð hv. þm. Barð., að mér þykir óviðkunnanlegt að taka þetta mál fyrir án framsögu, eins og raunar öll önnur mál, en þetta þó því fremur sem hér á að afnema prestaköll, sem prestar eru í, en láta önnur halda sér, sem ómögulegt hefur verið að fá prest í síðastliðin 20–30 ár. Enn fremur vil ég beina því til hv. n., sem málið fær til meðferðar, að nauðsynlegt er að semja frv. alveg um. Það er flutt sem breyt. við l. frá 1907, en er einnig breyt. á breyt., sem gerðar hafa verið á þeim l. síðan, og held ég, að semja ætti upp l. frá 1907 og fella gömlu l. úr gildi, en eins og málsmeðferð er nú háttað, er mjög erfitt að átta sig á þessu, nema að hafa a.m.k. ein fern lög fyrir framan sig. Ég endurtek, að ég óska eindregið eftir framsöguræðu frá hæstv. ráðh.