30.01.1951
Efri deild: 58. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)
95. mál, skipun prestakalla
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Tveir af menntmnm. hafa andmælt hinni rökst. dagskrá og vilja ekki, að hún verði samþ. Báðir hafa þeir lagt áherzlu á, að hér sé um sparnaðarmál að ræða. Ég álít hins vegar, að ekki geti verið um nokkurn sparnað að ræða, þótt frv. þetta verði samþ., en hv. 11. landsk. þm. (ÞÞ) hefur lýst yfir, að það verði ekki samþ. á þessu þ., því að það hefur verið viðurkennt af hæstv. ráðh. og einnig af öðrum ræðumönnum, að það sé ekki hægt að raska þeirri venju að greiða þjónandi prestum laun sín, og að engin breyt. geti orðið hér á fyrr en prestaköllin losni. Mér hefði því fundizt, að bezta lausnin væri sú, að hv. menntmn. gæti komið sér saman um að gera ályktun til hæstv. ríkisstj. um að taka upp samvinnu við þjónandi presta um, að þeir hefðu ekki mörg embætti og sætu á margföldum launum, meðan þetta ástand er í landinu, því að sýnilegt er, að þótt málið næði fram að ganga, verður þetta ekki til neins sparnaðar fyrr en einhvern tíma síðar meir. Hér er um svo ákaflega viðkvæmt mál að ræða, að ég tel ekki rétt að samþ. það nú eins og það allt er í pottinn búið.
Við 1. umr. færði ég fyrir því sterk rök eftir manni í Strandasýslu, sem þar er gerkunnugur öllum staðháttum og aðstæðum, hve óheppilegt það væri að skipta prestaköllum þar eins og lagt er til í frv., og ég tel málið svo illa undirbúið af hæstv. ríkisstj., að n. hafi ekki getað gengið frá því eins og þyrfti, og þess vegna sé eðlilegast að vísa málinu frá. - Hv. 6. landsk. þm. (HV) telur, að ómögulegt verði að fá samkomulag við kirkjuyfirvöldin um málið, því að þau vilji ekki fækka prestum. Um það skal ég ekkert fullyrða, en mér skilst þó miklu frekar á bréfi kirkjuráðs til n., að það vilji athuga málið og hafa um það samvinnu, en áreiðanlega verður hægt að hafa samvinnu um að flytja prestana til. Hæstv. dómsmrh. hefur m.a. lýst því yfir, að hann muni krefjast þess, að prestum í Reykjavík verði fjölgað, og er á þetta minnzt til þess að sýna fram á, að einnig á því sviði er ekkert samkomulag. — Hv. 6. landsk. þm. sagði einnig, að það væri óeðlilegt, að ég væri að blanda till. um heiðursprestaköll á Þingvöllum og Rafnseyri inn í dagskrártill. mína, og þyrfti þetta frekari útskýringar. Nú er hér ekki verið að blanda þessu saman við þetta mál, því að í tili. minni er aðeins farið fram á athugun á þessu atriði, og hefur mér ekki dottið í hug að óska eftir frávísun á málinu af þessari ástæðu, en kalla það enga goðgá, þótt bent sé á að taka þetta til athugunar, og væri það einkennilegt, ef slíkt gæti spillt fyrir till. minni, því að þarna er ekki till. um, að þetta skuli sett inn í löggjöfina.
Þá sagði hv. 11. landsk. þm., að tilgangur máls þessa væri að gefa ríkisstj. frjálsari hendur um prestaköllin. Ég fæ ekki skilið þessa hlið málsins og allra sízt eftir yfirlýsingu hæstv. landbrh., því að hann sagði, að hendur sínar væru bundnar af venju til að greiða prestum hálf laun fyrir hvert aukaprestakall, hvort sem þeir þjóna einu, tveim eða fleirum, en þessu atriði gengur hv. n. fram hjá, en þarna er einmitt hægt að spara.
Þá sagði hv. 11. landsk. þm. enn fremur, að hann væri því samþykkur, að endurskoðun þyrfti að fara fram á málinu, en vill samt samþ. frv., sem ef til vill verður til að torvelda endurskoðun á löggjöfinni, því að á því er enginn vafi, að þegar Alþ. er nýbúið að ganga frá löggjöf um nýja skipan prestakalla, mun reynast erfitt að láta fram fara slíka endurskoðun á sama ári og Alþ. sendir hana frá sér.
Hv. 11. landsk. þm. sagði, að í frv. væri ekki lagt til að leggja niður önnur prestaköll en þau, sem enginn ágreiningur er um. Þetta er ekki rétt. Það er mjög mikill ágreiningur um ýmis þeirra, t.d. Rafnseyrarprestakall og um skiptingu prestakalla í Strandasýslu og fleiri staði, og það eru ákveðnar óskir um það í ýmsum héruðum að fá presta, þar sem þá vantar, en lagt er til í frv., að þau verði lögð niður. Þessi prestaköll eru fyrst og fremst prestslaus af því, að ríkið hefur vanrækt þá skyldu að búa betur að prestunum á þessum stöðum.
Hv. 6. landsk. þm. bað mig um frekari skýringar á þessum heiðursprestaköllum, sem ég hef minnzt á. Ég skal viðurkenna, að ég hef ekki athugað það mál út í yztu æsar, en fyrst og fremst vakir það fyrir mér, að þeir prestar, sem veljast í heiðursprestaköllin, verði ekki kosnir af söfnuðunum, heldur verði þar skipaðir prestar, sem séu sérstakir menntafrömuðir og geti innt þar af hendi sérstök fræðistörf og meira en venjuleg prestsstörf, og þessi litlu prestaköll væru einmitt sérstaklega heppileg, þar sem þeir gætu þar haft mikinn tíma til annarra fræðistarfa. Það er svo atriði út af fyrir sig, hvort Skálholt og Hólar koma þarna fyrst til greina. Ég vil benda á, að nú er verið að gera Hóla að prestssetri. Á presturinn að sitja á staðnum, og er veitt fé til þess í fjárl. þessa árs til byggingar prestssetursins. Það er því raunverulega búið að gera Hóla að prestssetri, hvort sem það verður heiðursprestakall eða ekki. — Svo skulum við snúa okkur að Skálholti. Það er nú búið að verja stórkostlegu fé, — allt að 1 millj. kr. — í kirkjujörðina Torfastaði, og það eru stórkostleg mistök að hafa ekki sett það fé í Skálholt og gera það að prestssetri og höfuðkirkju, og þegar búið er að fara þannig með málið, þá er þess ekki að vænta, að Skálholt verði gert að kirkjustað nema með sérstakri löggjöf. Hins vegar hafa ákveðnir menn tekið sér fyrir hendur að endurreisa Skálholtsstað. Fyrrv. ríkisstj. gerði það strik að kaupa allar eignir á staðnum, flytja ábúandann burtu og hugðist setja þar á fót búnaðarskóla, og mun þetta hafa kostað ríkissjóð 1% 2 millj. kr. og málið í heild orðið öllum þar viðkomandi til ósóma. En nú mun ríkið hafa leigt bónda nokkrum jörðina aftur, og hefur því ekkert þokazt í áttina með að byggja upp staðinn, en Skálholtsn. hefur tekið að sér að reyna að bæta þar að einhverju um. Og hefur nú hv. menntmn. leitað til Rafnseyrarn. um það, hvort hún vilji ekki hafa Rafnseyrarprestakall áfram? Ég verð að segja, að mér finnst hún vera aðili, sem hv. menntmn. hefði átt að snúa sér til, áður en hún leggur til, að það verði lagt niður, en hér er hún aðeins að rífa niður í sambandi við þennan stað, en ekkert að byggja upp. Og það er fáránlegur sá hugsanagangur hv. frsm. n., að það eitt vaki fyrir mér að fá þá ánægju að horfa á prestssetrið frá Bíldudal þær fáu stundir, sem ég dvel þar á árinu, og það er því engin furða, þótt mikið gróm sé í till. n., þegar hugsunin er svona takmörkuð og ofstækiskennd, og ég efast um, að það sé frambærilegt að koma fram með slík rök. Þá sagði hv. frsm., að hann héldi, að það yrði þröngt á Þingvöllum, þegar ég væri búinn að flytja alla gesti þangað, — en veit hv. þm., eftir hvaða reglum Þingvallan. veitir gestum sínum vist? Ég veit, að engum er boðin þar vist nema með samþykki n., og það eru aðeins forseti Íslands og örfáir fremstu menn þjóðarinnar og þeir útlendir gestir, sem ríkisstj. óskar eftir og hafa gert þjóðinni sóma út á við. Þetta eru aðalreglurnar, en ég sagði, að úr því að búið væri að skapa slíka reglu í sambandi við Þingvallabæinn, þá væri það meiri sómi fyrir landið, að þar væri prestur, eins og þar á að vera samkv. l., sem jafnframt því að vera prestur væri einnig mikill fræðimaður, en það væri einmitt mjög tilhlýðilegt, að slíkur maður væri á staðnum til þess að fræða og leiðbeina gestunum um hinn sögufræga stað, en nú er þarna enginn maður, sem getur gert þetta. En það, að ég hef minnzt á Þingvelli, er vegna þess, að þetta er sá staður, þar sem kristni var lögtekin í landinu á sínum tíma, og þess vegna verður að sýna honum fullan sóma, en ég tel, að mjög skorti á í þeim efnum. Þaðan var flæmdur burtu hinn ágætasti prestur, sem hið háa Alþingi veitti sérstök heiðurslaun fyrir vísindastörf, og er hér átt við séra Guðmund Einarsson. Síðan hefur enginn prestur verið á Þingvöllum, og meira að segja hafa allir kirkjumrh. og biskup Íslands vanrækt að auglýsa þessa sókn á hverjum fardögum, eins og venjan er að gera, og enginn maður hefur fengíð leyfi til að sækja um þennan stað síðan. Ég hef spurzt fyrir um það sem formaður Þingvallanefndar, hvort búið væri að leggja niður þessa sókn, og fengið þær upplýsingar, að svo er ekki, en samt hefur alltaf verið vanrækt að auglýsa sóknina. Er ekki sjáanlegt, að hægt verði að kippa þessu í lag nema með því að bera fram ályktun til ríkisstj. um, að hún sjái til þess, að þessi l. verði ekki lengur brotin og prestakallið verði auglýst. Launum Þingvallaprests er nú skipt milli annarra presta, sem þjóna þar þegar þeim henta þykir, og þetta er á þeim stað, sem kristni var lögtekin! — Ég geri ráð fyrir, að hvorugur þeirra háttv. þm., sem hér hafa talað, beri hina minnstu virðingu fyrir þessum sögustað eða fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, en ég get hins vegar ekki, þótt ég sé hundheiðinn, því miður, sætt mig við, að þessum stöðum sé sýnd lítilsvirðing, en það virðist báðum þessum hv. þm. vera sama um.
Ég mun svo ekki ræða þetta miklu frekar. Það er upplýst, að þrátt fyrir hina miklu vinnu, sem hv. menntmn. hefur lagt í þetta mál, hefur hún ekki spurt þá n., sem hefur fyrirætlanir um endurreisn Rafnseyrar, hvort það sé vilji hennar, að sá staður verði þurrkaður út sem prestssetur, en þetta er eitt af því, sem mælir með, að mín dagskrártill. verði samþ., og ég vonast eftir því, þar sem upplýst er, að það er ekki hugsað svo, að málið nái fram að ganga á þessu þingi, að menn komist að raun um, að betra sé að afgreiða það á þann hátt, sem ég legg til, sem sé að ýta undir, að endurskoðun á löggjöfinni fari fram og málið verði undirbúið fyrir næsta Alþ., heldur en að láta það sofna í hv. Nd. Hv. menntmn. telur hins vegar betra að fá málið samþ. hér með öllum þeim ágöllum, sem nm. sjálfir hafa lýst, og að það fái svo andlát í Nd., en í þeirri afgreiðslu felst engin hvatning til ríkisstj. um að taka það upp aftur fyrir næsta þ. Ég legg því til, að málinu verði nú vísað frá með dagskrártill. minni og tel, að með því verði því beint inn á þá braut, sem Alþ. óskar eftir, að það endi að síðustu á.