02.03.1951
Efri deild: 80. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (1645)

95. mál, skipun prestakalla

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég get verið fáorður. Mál þetta hefur verið rætt hér áður, og ég hef borið þetta mál undir hv. menntmn., og mun hún ekki koma fram með neinar brtt. við málið. — Hins vegar er brtt. frá hv. þm. Barð. ekki komin fram, og ætla ég ekki að eyða mörgum orðum um það, en ef hún kemur fram, þá má eins breyta þessu máli þannig, að kalla það ekki lengur frv., heldur aðeins áskorun til ríkisstj. — Ég vil geta þess, að í hv. Nd. tók málið nokkrum breytingum, og var það gert til samkomulags milli aðila í Nd., og er það heldur til að tefja framkvæmd málsins, en menntmn. vildi ekki bregða fæti fyrir það og hvað afgreiðslu málsins snertir ber að fagna því, að menntmn. hv. Nd. varð sammála og sömuleiðis öll deildin að heita mátti. Ég held það hafi verið eitt atkv. greitt gegn frv.