01.03.1951
Efri deild: 79. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (1658)
193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. að ráði. Hæstv. ráðh. upplýsti, að bæði Bretland og Ítalía hefðu frjálsan innflutning á fiski, og hann taldi víst, að svo væri um önnur viðskiptalönd okkar, og þykir mér vænt um að fá þessar upplýsingar. Annars var ég ekki með þessar spurningar vegna þessara landa, heldur vegna hinna, sem koma til með að verða viðskiptalönd okkar í gegnum Evrópubandalagið, t.d. Holland, Belgía, Austurríki og Frakkland. Við opnum okkar land fyrir innflutningi frá þessum löndum, — og er þá um það að ræða, að þessi lönd hafi ekki þá vöru á frílista, sem okkur er nauðsynlegast að flytja út? Eða er það svo, að ríkisstj. geti ekki svarað því, hvort þessi lönd hafa fisk á frílista, eða hefur hún ekki gengið úr skugga um, að sama aðferð sé höfð í þessum löndum?
Þessi ummæli mín má nú ekki skilja svo, að ég sé á móti frílista, en ég tel, að það sé sjálfsagt, að ríkisstj. geri sér ljóst, hvað hún ætlast fyrir í þessu efni, hvort hún ætlar að tryggja það, að innflutningur fisks sé frjáls til allra helztu viðskiptalanda okkar, t.d. Bretlands. (Viðskmrh.: Það er ekki hægt að segja um það langt fram í tímann, en nú sem stendur er hann frjáls.) En vonandi hefur ríkisstj. kynnt sér, hverjar eru líkurnar í þessu efni, og mér skildist, að Bretland væri meðal þeirra landa, þar sem takmörkun kæmi ekki til greina.
Ummæli ráðh. um það, að lítil breyting verði á verðlagsákvæðunum önnur en sú, sem gerð er til samkomulags við útgerðarmenn, segja ekkert um fyrirætlanir ríkisstj. hvað aðrar vörur snertir.
Ég vil leyfa mér að spyrja í framhaldi af þessum umr. og í sambandi við upplýsingar hæstv. atvmrh., hvort stjórnin hefur í huga að afnema verðlagseftirlit á öllum framleiðsluvörum, og í öðru lagi, hvenær megi vænta þess, að almenningi verði birtir svonefndir A- og B-listar.
Hæstv. ráðh. sagði, að ekki þyrfti að leita eftir nýrri heimild til þess, að fjárhagsráð mætti afnema verðlagseftirlit, sú heimild væri þegar til. Þetta kann að vera rétt, en það er ekki lofsvert, því þó að málið liggi þannig fyrir, að það hafi nokkra afsökun í þessu efni, þá tel ég, að hér sé svo stórt stökk tekið, að ekki sé unnt að taka það án sérstakrar lagasetningar. Og það er alveg á móti öllum þingræðislegum reglum, að Alþingi fái ekki að láta í ljós vilja sinn um þetta mál.